Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

362. fundur 05. október 2026 kl. 08:15 - 12:30 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Hrafn Ágúst Björnsso n varaformaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Viktor Elvar Viktorsson aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri
  • Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri
  • Anna María Þráinsdóttir byggingarfulltrúi
  • Lárus Ársælsson umhverfisstjóri
  • Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri
Fundargerð ritaði: Lárus Ársælsson umhverfisstjóri

1. 2610-7284 - Húsnæðismál - Slökkviliðið

Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri, kynnti starfsemi Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Umræða um húsnæðismál og aðstöðu.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar slökkviliðsstjóra kynninguna. Tillaga varðandi húsnæði og aðstöðu verður lögð fyrir næsta fund ráðsins.

Jens Heiðar Ragnarsson víkur af fundi.

 

2. 2605-3445 - Fjárfestingaráætlun 2026-2027

Lögð er fram vinnslutillaga að fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun fyrir 2026-2033. Sviðstjóri fór yfir valkosti og stöðu.

Afgreiðslu málsins frestað. Skipulags- og umhverfisráð hyggst taka málið fyrir á næstu fundum ráðsins.

 

3. 2609-6832 - 7. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundargerð 7. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 21.9.2026 lögð fram til kynningar

Fundargerð lögð fram.

 

4. 2609-7091 - 8. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundargerð 8. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 29.9.2026 lögð fram til kynningar

Fundargerð lögð fram.

 

5. 2609-7102 - Sleðabrekka - lýsing

Lögð er fram tillaga um uppsetningu staurs með ljóskösturum við sleðabrekku til að lýsa hana upp á notkunartíma.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að tillagan verði kynnt fyrir nærliggjandi heimilum. Tillagan verði að því loknu lögð að nýju fyrir ráðið.

 

6. 2609-6653 - Beiðni um styrk - Skógræktarfélag Akraness

Lögð er fram beiðni frá Skógræktarfélagi Akraness um styrk fyrir næsta starfsár.

Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í að styrkja starfsemina um 2,5 milljónir eins og síðustu 2 ár og vísar málinu til bæjarráðs.

7. 2608-6312 - Grenndarstöðvar - fyrirkomulag

Umræða um breytingar á staðsetningu og fyrirkomulagi grenndarstöðva.

Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfisstjóra að láta fjarlægja alla gáma fyrir pappír og plast af grenndarstöðvum. Unnið verði áfram að nýrri staðsetningu á málm- og glergámum. Eins og áður verða settir upp aukalega gámar um hátíðir þegar þörf er á.

8. 2606-4467 - Fimleikahús - Handrið í stúku

Lögð eru fram 2 tilboð í smíði og uppsetningu handriða í stúku í fimleikahúsi.

Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra framkvæmda að semja við lægstbjóðanda.

 

9. 2609-6900 - Íþróttahús Jaðarsbakka - Verðkönnun brunakerfi og aðgansstýringar

Lögð fram drög að lokaðri verðkönnun á vinnu við brunakerfi og aðgangsstýringar í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Verðkönnunin felst m.a. í færslu augnskanna, uppsetningu hurðasegla og svo þjónustu við kerfin næstu 5 árin.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að farið verði í verðkönnun á verkinu.

 

10. 2609-6807 - Vesturgata 62 - Sala

Lögð er fram yfirlýsing, ástandskoðun og framkvæmdaskilmálar vegna fyrir sölu á Vesturgötu 62.

Verkefnastjóra framkvæmda er falið að vinna málið áfram.

11. 2608-5801 - Tjaldsvæði útboð 2026

Lögð eru fram drög að útboðsgögnum ásamt fylgiskjölum fyrir rekstur tjaldsvæðisins í Kalmansvík.

Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra framkvæmda að ljúka við útboðsgögnin og að bjóða út rekstur svæðisins til 3 ára með möguleika á tveggja ára framlengingu eitt ár í senn.

 

12. 2609-7080 - Fyrirspurn um rekstur tjaldsvæðis í Kalmansvík

Lögð er fram fyrirspurn frá rekstraraðila tjaldssvæðisins um fyrirætlun Akraneskaupstaðar um rekstur þess á næsta ári.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar fyrir fyrirspurnina. Líkt og sjá má í máli nr. 2608-5801 er hafin vinna við útboð á tjaldsvæðinu 2027 - 2030 með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum eitt ár í senn.

 

13. 2609-6771 - Nýbygging: Jörundarholt 1B, 300 Akraneskaupstaður

Sótt er um byggingarleyfi til að byggja bílskúr og tengibyggingu í Jörundarholt 1b. Svæðið er ekki deiliskipulagt. Grenndarkynna þarf byggingarleyfið skv. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að umsóknin verði grenndarkynnt. Grenndarkynnning verði fyrir heimilum á lóðunum Jörundarholti 1a, 1c, 3, 5 og 7.

 

14. 2604-2878 - Sólmundarhöfði 2 - Árnahús

Fyrir liggur vilji til að stækka hjúkrunarheimilið Höfða um 60 rými til suðurs. Árnahús og skemma standa innan fyrirhugaðs byggingarreits stækkunarinnar. Áður en unnið verður áfram að útfærslu deiliskipulags þarf skipulags- og umhverfisráð að taka afstöðu til framtíðar húsanna, þ.e. hvort stefnt skuli að flutningi þeirra og varðveislu á öðrum stað eða hvort óska eigi heimildar til niðurrifs á húsunum. Við matið þarf meðal annars að taka tillit til varðveislugildis húsanna og ástands Árnahúss.

Vegna fyrirhugaðar uppbyggingar hjúkrunarheimils á Sólmundarhöfða á svæði sem Árnahús er í dag er nauðsynlegt að mannvirkið víki. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að stefnt verði að flutningi Árnahúss á nýjan stað í samráði við Minjastofnun. Ef þau áform ganga ekki eftir verði skoðað með niðurrif á því ásamt skemmunni sem er við hlið þess.

 

16. 2610-7358 - Aðalskipulag breytt - Höfðasel

Gerð er tillaga um breyting aðalskipulags vegna Höfðasels. Um er að ræða breytingu á landnotkunarreit úr opnu svæði yfir í athafnasvæði vegna stækkunar lóðanna Höfðasel 2-4 og Höfðasel 6-8.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að óveruleg breyting á aðalskipulagi skv. 2 mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 verði samþykkt og birt í B-Deild Stjórnartíðinda.

 

17. 2610-7356 - Deiliskipulag breytt - Höfðasel 2-8

Gerð er tillaga að breyting á deiliskipulagi í Höfðaseli. Breytingin felst í að stækkun athafnalóðanna við Höfðasel 2-4 og Höfðasel 6-8.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 3 mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 113/2010 verði samþykkt og birt í B-Deild Stjórnartíðinda.

 

18. 2609-7111 - Suðurgata 126 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Guðlaugur I. Maríasson sækir, fyrir hönd S126 ehf., um breytingu á deiliskipulagi Sementsreits vegna Suðurgötu 126. Tillagan felur í sér að kvöð um göngutengsl almennings innan lóðarinnar verði felldur út. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir. Með erindinu fylgir skipulagsuppdráttur dags. 30. september 2026.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sementsreits vegna Suðurgötu 126. Breytingin felur í sér að kvöð um göngutengsl innan lóðarinnar verði felldur út. Málsmeðferð verði sem óveruleg breyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

19. 2512-5187 - Breyting á deiliskipulag - Akraneshöfn Fylling

Breyting á deiliskipulagi Akraneshafnar vegna landfyllingar fyrir hafsækinn iðnað, í samræmi við Aðalskipulag Akraness. Með breytingunni er gert ráð fyrir landfyllingu og nýjum lóðum fyrir hafsækna atvinnu- og iðnaðarstarfsemi. Skilgreindir eru byggingarreitir og skilmálar um starfsemi, byggingarmagn og húshæðir, auk aðkomu, umferðar og hafnarmannvirkja. Einnig er gert ráð fyrir sérstakri þjónustulóð vegna móttöku og þjónustu við farþega- og skemmtiferðaskip. Vinnslutillaga var kynnt í Skipulagsgátt 23.–29. mars 2026 og hafa gögn verið unnin áfram með hliðsjón af umsögnum sem bárust. Unnið er að rýni Vegagerðarinnar á lögun sjóvarnargarðs og mögulegum áhrifum landfyllingar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

20. 2608-5844 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Óðinsgata 4

Lagt er fram erindi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Sementsreit. Tillagan felst í að byggja tvö hús með fjórum íbúðum í hvoru húsi, samtals átta íbúðir. Hver íbúð yrði 93,6 m², eða samtals 748,8 m² byggingarmagn. Horft er til lóðarinnar Óðinsgötu 4, þar sem samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja tvö hús með samtals fimm íbúðum og 605 m² byggingarmagni. Fyrirspurnin felur því í sér fjölgun íbúða úr fimm í átta og aukningu byggingarmagns um 143,8 m², eða um 24%. Um væri að ræða forframleidd timburhús sem yrðu aðlöguð að ásýnd Sementsreits. Jafnframt er óskað eftir ábendingum um aðrar lóðir eða útfærslur sem gætu hentað verkefninu.

Skipulags- og umhverfisráð leggst gegn því að gera breytingar á skipulagi sem fram kemur í erindinu. Skipulagsfulltrúa er falið að vinna málið áfram, m.t.t. annarra staðsetninga. Jón Guðni Guðmundsson víkur af fundi undir þessum fundarlið.

 

21. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Lögð eru fram drög að breytingu á gjaldskrám sem falla undir starfsemi Skipulags- og umhverfisráðs.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að gjaldskrár fyrir hundahald, kattarhald og búfjáreftirlit hækki um 2,5% um áramót.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu