Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

361. fundur 14. september 2026 kl. 08:15 - 11:00 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Hrafn Ágúst Björnsson varaformaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Viktor Elvar Viktorsson aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri
  • Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri
  • Alfreð Alfreðsson rekstrarstjóri áhaldahúss
  • Lárus Ársælsson umhverfisstjóri
  • Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri
  • Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis

1. 2608-6166 - 6. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

6. fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

2. 2608-5850 - Umhverfisviðurkenningar 2026

Kynning á tillögum garðyrkjustjóra að umhverfisviðurkenningum.

Jón Arnar Sverrisson, garðyrkjustjóri, fór yfir framkomnar tilnefningar til umhverfisverðlauna. Í framhaldinu var lögð fram tillaga að umhverfisviðurkenningum ársins 2026. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur.

 

3. 2609-6489 - Vinnuskólinn skýrsla 2026

Garðyrkjustjóri kynnir starfsemi Vinnuskólans sumarið 2026

Skipulags- og umhverfisráð þakkar garðyrkjustjóra fyrir góða yfirferð á starfsemi Vinnuskólans sumarið 2026.

 

4. 2608-6312 - Grenndarstöðvar - fyrirkomulag

Lagt er til að fyrirkomulag grenndarstöðva verði endurskoðað. Í dag eru grenndarstöðvar á þremur stöðum, með samtals 13 gámum. Um er að ræða stöðvar sem settar voru upp til bráðabirgða og afmarkaðar með færanlegum veggjum. Í ljós hefur komið að umgengni er ekki nægilega góð, auk þess sem pappagámar fyllast fljótt. Notendur hafa því þurft að aka á aðrar grenndarstöðvar í leit að lausu plássi. Lagt er til að fyrsta skrefið verði að sameina grenndarstöðvarnar þrjár í eina stöð við Dalbraut þar sem boðið verði upp á betri þjónustu, aukna lýsingu og vöktun.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu umhverfisstjóra um að sameina grenndarstöðvarnar þrjár í eina stöð við Dalbraut með bættri þjónustu og vöktun. Umhverfisstjóra er falið að vinna málið áfram.

 

5. 2608-5979 - Akraneshöll - Klæðning minnisblað

Lagt fram minnisblað um ástand klæðningar Akraneshallar og hvort unnt sé að mála yfir núverandi klæðningu eða hvort þörf sé á frekari úrbótum.

Verkefni vegna viðhalds á þaki og göflum Akraneshallar er vísað til fjárhagsáætlunar ársins 2027.

 

6. 2606-5367 - Kirkjubraut 2 / Suðurgötu 65 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn frá EFLA verkfræðistofu, fyrir hönd húsfélaga Kirkjubrautar 2 og Suðurgötu 65. Óskað er eftir heimild til að klæða útveggi hússins með ljósum, möttum sementsplötum, með dekkri klæðningu á neðstu hæð og skyggnum, auk þess sem fyrirhugað er að bæta við svölum á vesturhlið hússins. Samkvæmt erindinu eru nú einar svalir á vesturhlið hússins og samþykktar teikningar gera ráð fyrir þremur svölum Suðurgötu 65-megin. Fyrirhugað er að bæta við þremur svölum Kirkjubraut 2-megin.

Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í fyrirspurn um klæðningu hússins.Ráðið telur að fyrirhugaðar breytingar geti samræmst ákvæðum gildandi deiliskipulags Akratorgsreits um breytingar á ytra útliti húsa. Við frekari hönnun skal gæta að samræmi við núverandi byggð og götumynd svæðisins.

 

8. 2605-4220 - Kirkjubraut 2 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 2. Breytingin felst í því að núverandi íbúð á 4. hæð hússins verði skipt í tvær sjálfstæðar íbúðir og fjölgar íbúðum hússins því úr fjórum í fimm. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á útliti hússins, byggingarmagni eða byggingarreit. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 dagana 4. ágúst til 1. september 2026. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Veitum og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða fjölgun íbúða en bendir á atriði er varða hollustuhætti og heilnæmi íbúðarhúsnæðis sem fylgja þarf eftir við afgreiðslu byggingarleyfis.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 2, sem grenndarkynnt var samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

 

9. 2609-6414 - Umsókn til skipulagsfulltrúa - Skagabraut 31

Lögð fram umsókn Guðlaugs I. Maríassonar, f.h. eigenda Skagabrautar 31 um breytingu á deiliskipulagi Arnardalsreits. Breytingin felst í því að heimila tvær íbúðir í húsinu, skilgreina byggingarreit um núverandi hús og svalir og sýna bílastæði innan lóðar. Á neðri hæð hússins er rými sem skráð er sem verslunarrými og hefur verið nýtt sem hárgreiðslustofa. Fyrirhugað er að breyta notkun rýmisins í íbúð þannig að húsið verði tvíbýlishús. Ekki er gert ráð fyrir nýrri uppbyggingu eða breytingum á umfangi hússins.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnardalsreits vegna Skagabrautar 31, samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að heimila tvær íbúðir í húsinu, skilgreina byggingarreit og sýna bílastæði innan lóðar.

 

10. 2605-4064 - Elínarvegur 13a - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Miðvogslækjarsvæðis vegna Elínarvegar 13A. Um er að ræða viðbótarbreytingu við áður samþykkta deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. nóvember 2025. Breytingin felst í stækkun byggingarreits til norðvesturs, tilfærslu bílastæða innan lóðar og hækkun nýtingarhlutfalls úr 0,20 í 0,21. Að öðru leyti haldast skilmálar gildandi deiliskipulags óbreyttir. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 dagana 4. ágúst til 1. september 2026. Engar athugasemdir bárust. Ein umsögn barst frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands sem gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða breytingu.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Miðvogslækjarsvæðis vegna Elínarvegar 13A, sem grenndarkynnt var samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

11. 2604-3135 - Stjórnsýslukæra nr. UUA2604014- Deiliskipulagsbreyting Kirkjubraut 4-6

Lagður er fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2604014 vegna breytingar á deiliskipulagi Akratorgsreits fyrir Kirkjubraut 4–6, 6A og Suðurgötu 67. Kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar var hafnað.

Skipulags- og umhverfisráð tekur úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2604014 til kynningar.

 

12. 2512-5159 - Endurskoðun Deiliskipulag Ægisbrautar - Undirbúningur

Þann 20. maí 2026 var haldinn kynningarfundur vegna endurskoðunar deiliskipulags Ægisbrautar. Þrjár hönnunarstofur, Hjark, T.ark og Basalt, kynntu tillögur sínar og um 90 íbúar sóttu fundinn. Í kjölfar fundarins var opnað fyrir spurningakönnun fyrir íbúa Akraness um þá valmöguleika sem kynntir voru. Alls bárust 64 svör. Niðurstöður könnunar lagðar fram.

Niðurstöður könnunarinnar þar sem spurt var um þær tillögur sem helst höfðuðu til svarenda sýndu að tillaga Basalt hlaut meirihluta atkvæða eða 64,1%.Skipulags- og umhverfisráð tekur niðurstöður könnunarinnar til hliðsjónar og tekur jafnframt fram að allar tillögurnar sem kynntar voru voru áhugaverðar og vandað framlag til umræðu um framtíðaruppbyggingu við Ægisbraut. Ráðið þakkar öllum hönnunarstofunum fyrir þátttökuna og þeirra framlag til verkefnisins.Verkefnastjóra skipulags er falið að kynna hönnunarstofunum niðurstöður könnunarinnar og koma á framfæri þakklæti fyrir þátttökuna.Ennfremur er verkefnastjóra skipulags falið að ræða við Basalt um frekara framhald vinnu við endurskoðun deiliskipulags við Ægisbraut.

 

13. 2604-3085 - Fjárfestingaáætlun 2026-2033

Lögð eru fram drög að fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árin 2027–2033.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar sviðsstjóra fyrir yfirferðina.

 

14. 2609-6516 - Jaðarsbakkar íþróttahús - Virkni brunahurða

Lagt er til að settir verði upp hurðaseglar á nokkrar valdar brunahurðir í íþróttahúsi Jaðarsbakka, þannig að virkni hurðanna samræmist betur notkun hússins. Hrafn Ágúst Björnsson víkur af fundi undir þessum lið.

Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra framkvæmda að vinna málið áfram.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu