Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

360. fundur 31. ágúst 2026 kl. 08:15 - 10:45 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Hrafn Ágúst Björnsson varaformaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Viktor Elvar Viktorsson aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Berglind Sigurðardóttir verkefnastjóri skipulags
  • Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri framkvæmda
  • Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags og umhverfis
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis

1. 2606-4467 - Fimleikahús - Handrið í stúku

Lögð er fram kostnaðaráætlun fyrir handrið í stúku fimleikahúss.

Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra framkvæmda að fá verðtilboð.

 

2. 2608-5907 - FIFA Arena verkefni, mini-knattspyrnuvöllur

Til kynningar er FIFA Arena verkefni KSÍ og FIFA um knattspyrnuvelli. Lagðar eru til nokkrar staðsetningar fyrir velli.

Verkefnastjóra er falið að senda umsókn fyrir völl á Grundaskólalóð í samstarfi við KFÍA.

 

3. 2608-5719 - Raforkukaup - götulýsing og stofnanir 2027-2030 - útboðsgögn

Útboðsgögn og útboðsferli fyrir raforkukaup lögð fram.

Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfisstjóra að bjóða verkið út.

 

4. 2608-5682 - 4. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundargerð 4. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

5. 2608-6011 - 5. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundargerð 5. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

6. 2601-0439 - Framhaldsmál - Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun vegna ársins 2026 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2027 til og með 2029.

Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar sviðsstjóra fyrir yfirferðina.

 

7. 2608-6311 - Grundasel - viðhald

Til kynningar er þörf á viðhaldi vegna vandamála með loftgæði í Grundaseli.

Verkefnastjóra framkvæmda falið að vinna málið áfram.

 

8. 2608-6312 - Grenndarstöðvar

Farið er yfir fyrirkomulag grenndarstöðva á Akranesi.

Umhverfisstjóra er falið að vinna málið áfram.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu