Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

359. fundur 17. ágúst 2026 kl. 08:15 - 11:23 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Hrafn Ágúst Björnsson varaformaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Viktor Elvar Viktorsson aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarsson sviðsstjóri
  • Lárus Ársælsson umhverfisstjóri
  • Anna María Þráinsdóttir byggingarfulltrúi
  • Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis

 

1. 2608-5850 - Umhverfisviðurkenningar 2026

Fyrirkomulag umhverfisviðurkenninga 2026 lagt fram til umræðu.

Jón Arnar Sverrisson., garðyrkjustjóri, fór yfir fyrirkomulag hvernig staðið er að umhverfisviðurkenningum hjá Akraneskaupstað. Skipulag- og umhverfisráð þakkar Jóni góða kynningu og gerir ekki athugsemdir við það fyrirkomulag sem við er haft við umhverfisviðurkenningar.

 

2. 2606-5374 - 3. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

3. fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 07. júlí lögð fram til kynningar.

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

3. 2607-5460 - Veðurstöð - erindi frá Veitum

Lagt er fram erindi frá Veitum vegna veðurmælinga á Akranesi

Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram.

 

4. 2607-5551 - Vallholt - Beiðni um hraðahindrun

 

Lagt er fram erindi frá íbúa við Vallholt um aðgerðir vegna hraðaksturs í götunni.

Skipulags- og umhverfisráð stefnir á að vinna við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar hefjist á árinu 2027.

Ráðið leggur áherslu á að framkomin beiðni verði hluti af þeirri vinnu.

 

5. 2608-5844 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Óðinsgata 4

Lagt er fram erindi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Sementsreit. Fyrirhugað er að byggja tvö hús með fjórum íbúðum í hvoru húsi, samtals átta íbúðir. Hver íbúð yrði 93,6 m², eða samtals 748,8 m² byggingarmagn. Horft er til lóðarinnar Óðinsgötu 4, þar sem samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja tvö hús með samtals fimm íbúðum og 605 m² byggingarmagni. Fyrirspurnin felur því í sér fjölgun íbúða úr fimm í átta og aukningu byggingarmagns um 143,8 m², eða um 24%. Um væri að ræða forframleidd timburhús sem yrðu aðlöguð að ásýnd Sementsreits. Jafnframt er óskað eftir ábendingum um aðrar lóðir eða útfærslur sem gætu hentað verkefninu.

Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra skipulagsmála og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.

 

6. 2607-5521 - Akurgerði 4 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn frá Vali Þór Sigurðssyni, f.h. Ás-smíði byggingafélags ehf., dags. 13. júlí 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu skipulags- og umhverfisráðs til breytingar á deiliskipulagi sem heimili byggingu nýs stakstæðs tveggja hæða íbúðarhúss á lóðinni Akurgerði 4, samhliða núverandi íbúðarhúsi. Fyrirhuguð uppbygging felur í sér aukningu byggingarmagns og nýtingarhlutfalls umfram gildandi deiliskipulag.

Skipulags- og umhverfisráð telur að um sé að ræða verulega breytingu á gildandi deiliskipulagi þar sem fyrirhuguð uppbygging felur í sér nýtt tveggja hæða íbúðarhús til viðbótar við núverandi hús, fjölgun íbúða og verulega aukningu á nýtingarhlutfalli. Áður en afstaða verður tekin til þess hvort ráðast skuli í breytingu á deiliskipulagi óskar ráðið eftir frekari rökstuðningi og greinargerð um forsendur breytingarinnar og skipulagsleg áhrif hennar á nærumhverfið ( m.a. með hliðsjón af byggðamynstri, götumynd, nýtingu lóðarinnar, aðkomu og bílastæðalausnum).

 

7. 2605-3704 - Breyting á deiliskipulagi Höfðasels

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Höfðaseli á Akranesi. Breytingin felur í sér breytingu á gatnakerfi með tengingu Grjótkelduflóa við Akrafjallsveg ásamt tengingu við skipulagssvæði Æðarodda. Skipulagsmörk deiliskipulagsins breytast ekki og breytingin hefur ekki áhrif á landnotkun, byggingarmagn eða nýtingarhlutfall lóða innan svæðisins. Gert er ráð fyrir að endanleg útfærsla gatnamóta við Akrafjallsveg verði unnin í samráði við Vegagerðina.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Höfðasels skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

8. 2605-3703 - Deiliskipulag Æðaroddi

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Æðarodda á Akranesi. Breytingin felur í sér breytingu á gatnakerfi og útfærslu tengingar við Akrafjallsveg ásamt lokun núverandi tengingar milli Grjótkelduflóa og Æðarodda. Tillagan er unnin samhliða breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Höfðaseli þar sem um er að ræða sömu gatnamót og sömu tengingu við Akrafjallsveg. Gert er ráð fyrir að endanleg útfærsla gatnamóta við Akrafjallsveg verði unnin í samráði við Vegagerðina.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Æðarodda skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

9. 2608-5846 - Höfðasel 2-4 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

Lögð er fram fyrirspurn frá BM Vallá vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýrrar helluverksmiðju að Höfðaseli 2–4. Fyrirhugað er að koma þar fyrir nýrri byggingu, sem er um 22 m á breidd og 65 m á lengd, og nýta Höfðasel 6 sem lagersvæði fyrir starfsemi verksmiðjanna. Óskað er eftir afstöðu til þess hvort mögulegt sé að stækka lóðina að Höfðaseli 2–4 frekar til austurs, í átt að Akrafjalli, þar sem erfitt reynist að koma fyrirhugaðri byggingu fyrir innan núverandi lóðarmarka.

Skipulags- og umhverfisráð fagnar metnaðarfullum áformum fyrirtækisins um frekari uppbyggingu og felur verkefnastjóra skipulagsmála og sviðstjóra að vinna málið áfram.

 

10. 2604-3181 - Deiliskipulagsbreyting - Skógarlundur 30, 32 og 34

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs 15. maí 2026 var fjallað um fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis, áfanga 3C, vegna lóða við Skógarlund 30, 32 og 34. Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi, dags. 12. ágúst 2026. Breytingin felst í að nýtingarhlutfall lóðanna lækkar úr 0,40 í 0,28. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins eru óbreyttir.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis, áfanga 3C, vegna Skógarlundar 30, 32 og 34, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna og að hún verði birt í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni málsmeðferð skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

11. 2608-5845 - Smiðjuvellir 17 - Beiðni um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands óskar eftir umsögn Akraneskaupstaðar vegna fyrirhugaðrar starfsemi bílaþvottastöðvar að Smiðjuvöllum 17, en húsnæðið er skráð sem verslunarhúsnæði. Bílaþvottastöðvar teljast lyktarmengandi starfsemi og eru skráningarskyldur atvinnurekstur samkvæmt reglugerð nr. 830/2022. Heilbrigðiseftirlitið getur ekki samþykkt skráningu starfseminnar nema hún sé í samræmi við gildandi skipulag og samþykkta notkun fasteignarinnar.

Skipulags- og umhverfisráð bendir á að fasteignin er innan svæðis ÍB-144 samkvæmt Aðalskipulagi Akraness 2021–2033, þar sem landnotkun er skilgreind sem blönduð byggð, íbúðarbyggð með atvinnustarfsemi. Samkvæmt skipulagsákvæðum geta atvinnufyrirtæki verið á svæðinu, m.a. í núverandi sérhæfðum byggingum, enda valdi starfsemi þeirra ekki verulegum óþægindum vegna lyktar, ryks, hávaða eða óeðlilega mikillar eða fyrirferðarmikillar umferðar. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum felst fyrirhuguð starfsemi ekki í hefðbundinni bílaþvottastöð heldur handbónun og sambærilegri bílaþjónustu fyrir einn til tvo bíla í senn. Að teknu tilliti til þess gerir skipulags- og umhverfisráð ekki athugasemd við starfsemina út frá skipulagslegum sjónarmiðum.

 

12. 2607-5500 - Umsagnarmál nr. 0220/2026 - Aðalskipulag Hvalfjarðarsveit 2020-2032 - Fellsendi L133625 - Bílasafn

Óskað er eftir umsögn Akraneskaupstaðar vegna breytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Fellsenda, L133625. Breytingin felst í að skilgreina um 16 ha verslunar- og þjónustusvæði fyrir upplifunarmiðstöð þar sem fornbílasafn verður miðpunktur, auk m.a. veitingareksturs, verslunar, gistingar með allt að 50 rúmum og fjölbreyttrar afþreyingar. Jafnframt er gert ráð fyrir nýrri göngu- og hjólaleið milli Eiðisvatns og Akrafjalls. Samhliða aðalskipulagsbreytingunni er unnið deiliskipulag fyrir svæðið og sameiginlegt umhverfismat. Akraneskaupstaður veitti umsögn um skipulagslýsingu í mars 2026 og gerði þá ekki athugasemdir, þar sem fyrirhuguð skipulagsgerð var ekki talin snerta beina hagsmuni sveitarfélagsins.

Skipulags- og umhverfisráð hefur kynnt sér vinnslutillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Fellsenda, L133625. Ráðið vísar til fyrri umsagnar sinnar um skipulagslýsingu, dags. 19. mars 2026, og telur að fyrirliggjandi vinnslutillaga gefi ekki tilefni til frekari athugasemda af hálfu Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð fagnar þeirri uppbyggingu í tengslum við ferðaþjónustu sem mun eiga sér stað í landi Fellsenda. Ráðið fagnar einnig þeirri stígagerð sem áætlað er að fara í og vonast eftir að slíkur stígur geti í framtíðinni tengst stígakerfi Akraness og myndar góða heild íbúum og gestum beggja sveitarfélaga til góða.

 

13. 2512-5160 - Deiliskipulag Grjótkelduflóa

Lagðar eru fram skýringarmyndir með mismunandi útfærslum á lóðum og gatnakerfi í Grjótkelduflóa.

Árni Ólafsson arkitekt fór yfir hugmyndir af skipulaginu, Lögð er áhersla á sveigjanleika í lóðarstærðum og gatnakerfi til að geta mætt mismundi þurfum væntanlegra umsækjanda um lóðir. Um leið og skipulags- og umhverfisráð þakkar Árna Ólafssyni kynninguna leggur ráðið á að sem fyrst verði komið gilt skipulag á svæðið þ.a. hægt verði að taka á móti umsóknum um lóðir.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu