Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2603-2548 - Stjórnsýslukæra nr. UUA2603013 - Bjarkargrund 26 - Einar Guðmundsson Lagður er fram til kynningar úrskurður í máli nr. UUA2603013 vegna kæru á ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 16. febrúar 2026 um að synja beiðni um að veita byggingarleyfi fyrir stækkun húss á lóðinni Bjarkargrund 26. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu kæranda um að ógilda ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 16. febrúar 2026 um að synja beiðni um byggingarleyfi fyrir stækkun húss á lóðinni Bjarkargrund 26.Skipulags- og umhverfisráð leggur áherslu á að mikilvægt sé að unnið verði deiliskipulag fyrir Grundarhverfi til að eyða óvissu og tryggja að skýrt liggi fyrir hvaða breytingar verði heimilaðar þar í framtíðinni.
|
|
2. 2606-4696 - 1. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 1. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa frá 11. júní 2026 lagður fram til kynningar. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
3. 2604-3173 - 2. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 2. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa frá 25.6.2026 lagður fram til kynningar. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
4. 2606-4744 - Grundaskóli Lóð 2026 - Verðkönnun Lögð er fram verðkönnun vegna framkvæmda á lóð Grundaskóla. Eftirfarandi tilboð barst: - Lóðaþjónustan ehf.: 31.746.150 kr. Kostnaðaráætlun verksins er 23.927.335 kr. Framkomið tilboð í framkvæmd við lóð Grundaskóla er 32.6% yfir kostnaðaráætlun. Í ljósi mismunar á tilboði og kostnaðaráætlun samþykkir skipulags- og umhverfisráð að hafna framkomnu tilboði í lóð Grundaskóla. Ráðið leggur áherslu á að teknar verði saman heildarbreytingar sem fyrirhugaðar eru á lóðinni. Í framhaldinu verði horft til þess að bjóða verkið út í heild á því tímabili sem ákveðið verður við gerð fjárhagsáætlunar.
|
|
5. 2607-5417 - Beiðni um kaup á húsgögnum í Brekkubæjarskóla Óskað er eftir fjárheimild til kaupa á húsgögnum fyrir stofu bekkjarteyma í gula húsi Brekkubæjarskóla. Við framkvæmdir í Brekkubæjarskóla vegna rakavandamála var tekin ákvörðun um að fjarlægja skápa úr tíu kennslustofum á árunum 2021–2023. Nú er talið mikilvægt að koma fyrir geymsluskápum í umræddum kennslustofum. Skipulags- og umhverfisráð vísar málinu til bæjarráðs m.t.t. fjárheimildar.
|
|
6. 2606-4882 - Breytingar á almenningssamgöngum á landsbyggðinni Tekin er fyrir tilkynning Vegagerðarinnar um skerðingu á þjónustu landsbyggðarvagna á Akranesi. Skipulags- og umhverfisráð vill árétta að fjöldi Akurnesinga sækir daglega nám og vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Því er ljóst að nái þessi breyting fram mun hún hafa veruleg áhrif á möguleika íbúa til að nýta sér almenningssamgöngur. Óskað er eftir frekari rökstuðningi frá Vegagerðinni um hvers vegna ferðum almenningsvagna á þessari leið er fækkað á sama tíma og meirihluti annarra leiða á landsbyggðinni er óskertur hvað varðar fjölda ferða. Skorað er á Vegagerðina að endurskoða ákvörðun um þessa skerðingu í ljósi þeirra áhrifa sem hún hefur á möguleika Akurnesinga til að sækja nám og atvinnu á höfuðborgarsvæðinu. Enn fremur er óskað eftir því að ef Vegagerðinni hefur áform um skerðingar á almenningssamgöngum sem snerta sveitarfélagið verði því gert viðvart með skýrum hætti og með nægum fyrirvara hvaða breytingar eru fyrirhugaðar, þannig að sveitarfélagið geti brugðist við.
|
|
7. 2607-5387 - Skógarhverfi - D reitur Staða skipulags á D-reit í Skógahverfi lagt fram til kynningar. Árni Ólafsson arkitekt situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Árni Ólafsson arkitekt fór yfir helstu hugmyndir að útfærslu íbúðabyggðar á D-reit í Skógahverfi. Skipulags- og umhverfisráð þakkar Árna fyrir kynninguna og leggur áherslu á að vinnu við deiliskipulag D-reitsins verði lokið fyrir næstu áramót.
|
|
8. 2512-5160 - Deiliskipulag Grjótkelduflóa Staða skipulags athafnasvæðis í Grjótkelduflóa lagt fram til kynningar. Árni Ólafsson arkitekt situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Árni Ólafsson arkitekt fór yfir helstu hugmyndir að útfærslu athafnasvæðis í Grjótkelduflóa. Skipulags- og umhverfisráð þakkar Árna fyrir kynninguna og leggur áherslu á að vinnu við skipulag svæðisins verði lokið á komandi haustmánuðum.
|
|
9. 2605-3848 - Eyrarflöt 13 - Deiliskipulagsbreyting Lögð er fram umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis vegna lóðarinnar að Eyrarflöt 13. Breytingin felst í því að skilgreindur verði byggingarreitur á lóðinni þar sem fyrirhugaðar svalir og breytingar á útistiga falla innan hans. Jafnframt verður skilgreint svæði fyrir skjólvegg, smáhýsi og saunaklefa. Erindið var grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 fyrir Eyrarflöt 6, 9 og 11. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð í umboði bæjarstjórnar að grenndarkynning sem gerð var skv. 43. gr. 2. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010 verði samþykkt og send á Skipulagsstofnun og í B-deild stjórnartíðinda. Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni fellur á lóðarhafa.
|
|
10. 2604-3198 - Suðurgata 68 - Umsókn til skipulagsfulltrúa Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits sem nær til lóðarinnar Suðurgötu 68. Tillagan felur í sér að skilgreindur verði nýr byggingarreitur fyrir bílgeymslu á lóðinni á svæði þar sem áður var bílgeymsla auk þess sem gert er ráð fyrir stækkun svala á efri hæð sem ná yfir þak bílgeymslunnar. Erindið var grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 fyrir Suðurgötu 65, 67, 69, 70 ásamt Mánabraut 3 og 5. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð í umboði bæjarstjórnar að grenndarkynning sem gerð var skv. 43. gr. 2. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010 verði samþykkt og send á Skipulagsstofnun og í B-deild stjórnartíðinda. Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni fellur á lóðarhafa.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





