Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2606-4606 - Gjafabekkur - staðsetning Lagt fram erindi frá Minningarsjóði Lovísu Hrundar um gjöf á bekk eða bekkjum til Akraneskaupstaðar. Bekkirnir yrðu merktir Minningarsjóði Lovísu Hrundar og með QR kóða, þar sem hægt væri að fá frekari upplýsingar um sjóðinn. Fyrirhugaðar staðsetningar hafa verið skoðaðar í samráði við garðyrkjustjóra, annars vegar við göngustíginn ofan Langasands við Guðlaugu og hins vegar á Akratorgi við sjómannsstyttuna. Óskað er eftir afstöðu skipulags- og umhverfisráðs til staðsetningar bekkjanna.Jón Arnar Sverrisson, garðyrkjustjóri, setur undir þessum lið. Skipulags- og umhverfisráð þakkar góða gjöf og felur garðyrkjustjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins.
|
|
2. 2604-3228 - Skammtímadvöl á Laugarbraut - Frumáætlun Frumáætlun um uppbyggingu skammtímadvalar á lóðinni við Laugarbraut 6 liggur fyrir. Lárus Ársælsson umhverfisstjóri kom inn á fund velferðar- og mannréttindaráðs þann 19.05.2026 og kynnti frumáætlunina. Á þeim fundi var gerð eftirfarandi bókun.: Velferðar- og mannréttindaráð leggur til að farið verði í frumhönnun. Ráðið leggur jafnframt til að verkefnahópurinn sem skilaði frumáætlun haldi áfram störfum við undirbúning frumhönnunar en fái jafnframt stuðning þvert á svið Akraneskaupstaðar. Málinu vísað til umfjöllunar í bæjarráði, skipulags- og umhverfisráði, mennta- og menningarráði og til kynningar í notendaráði um málefni fatlaðs fólks á Akranesi. Skipulags- og umhverfisráð þakkar umhverfisstjóra fyrir yfirferðina.
|
|
3. 2606-4717 - Fundartímar skipulags- og umhverfisráðs 2026-2030 Fundartímar skipulags- og umhverfisráðs ákveðnir. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breyttan fundartíma kl. 08.15 á mánudögum.
|
|
4. 2606-4693 - Breyting á fjárhagsáætlun - framkvæmdir og fjárfesting 2026-27 Lögð fram tillaga að breytingum á fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2026–2027 vegna verkefna við Grundasel, Akrasel og Jaðarsbakka. Emil Kristmann Sævarsson víkur af fundi undir þessum lið. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun til samræmis við mál nmr. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun og 2603-2522 - Akraborgin félagsaðstaða, Jaðarsbakkar - Tillaga ÍA og felur sviðsstjóra að vinna viðauka við áætlun. Málinu vísað áfram til bæjarráðs.
|
|
5. 2606-4276 - Sólmundarhöfði 5 stækkun dvalarheimilis - Athugasemdir húsfélags Sólmundarhöfða 7 Lagt er fram erindi frá stjórn Húsfélagsins Sólmundarhöfða 7, dags. 29. maí 2026, vegna fyrirhugaðrar stækkunar Dvalarheimilisins Höfða. Í erindinu kemur fram stuðningur við fjölgun hjúkrunarrýma, en jafnframt eru sett fram sjónarmið um staðsetningu mögulegrar stækkunar, mikilvægi samráðs við íbúa, vernd útivistarsvæðis sunnan heimilisins og áhrif landbrots á svæðinu. Erindið er lagt fram til kynningar. Skipulags- og umhverfisráð þakkar húsfélaginu Sólmundarhöfða 7 fyrir góðar ábendingar og hefur þær til hliðsjónar í áframhaldandi vinnu.
|
|
6. 2606-4417 - Jörundarholt 178 - fyrirspurn til byggingarfulltrúa - skjólveggur á lóðarmörkum Lóðarhafi að Jörundarholti 178 óskar eftir að setja 1,8 m háan skjólvegg 75 cm frá lóðarmörkum. Skv. byggingarreglugerð skal lóðarhafi óska eftir samþykki landeiganda sé skjólveggur að þessari hæð nær lóðarmörkum en 1,8 m. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir beiðnina og felur byggingarfulltrúa að svara fyrirspurninni.
|
|
7. 2606-4804 - Stöðuleyfi matarvagna - Norðurálsmót 2026 Lagt fram erindi frá Knattspyrnufélagi ÍA þar sem óskað eftir heimild til að hafa allt að fjóra matarvagna við tjaldsvæði Norðurásmótsins við Byggðasafnið á meðan mótinu stendur. Jafnframt er óskað eftir að félaginu verði heimilað að semja beint við rekstraraðila matarvagnanna í stað þess að gjöld verði innheimt af Akraneskaupstað. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að veita KFÍA stöðuleyfi fyrir allt að fjóra vagna við Byggðasafnið dagana 18-21. júní 2026 án greiðslu gjalda, allur tilheyrandi kostnaður fellur á KFÍA. Með stöðuleyfi þessu fylgir ekki aðgangur að vatni né rafmagni. Nákvæm staðsetning vagnanna skal útfærð í samráði við byggingarfulltrúa.
|
|
8. 2606-4719 - Bamba gróðurhús Lagt fram erindi frá StarfVest um uppsetningu Bambahúss á bæjarlandi. Óskað er eftir afstöðu skipulags- og umhverfisráðs til mögulegrar staðsetningar við fyrirhugaða samfélagsmiðstöð að Dalbraut 6. Fyrirhugað er að nýta húsið til ræktunar og félagsstarfs. Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið en leggur til aðra staðsetningu og felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
|
|
9. 2601-0669 - Grundasel Endurbætur Lögð er fram tillaga Andrúm arkitekta að endurbótum á Grundaseli vegna loftgæðamála. Tillagan felur í sér breytingar á húsnæðinu með það að markmiði að bæta innivist og aðlaga rými betur að núverandi starfsemi og notkun þess sem kennsluhúsnæðis. Emil Kristmann Sævarsson víkur af fundi undir þessum lið. Skipulags- og umhverfisráð leggur til að haldinn verði sameiginlegur vinnufundur með mennta- og menningarráði.
|
|
10. 2605-3507 - Stækkun Akrasel - Hönnun Lögð er fram tillaga að stækkun við Akrasel. Skipulags- og umhverfisráð leggur til að haldinn verði sameiginlegur vinnufundur með mennta- og menningarráði.
|
|
11. 2603-2522 - Akraborgin félagsaðstaða, Jaðarsbakkar - Tillaga ÍA Lögð er fram beiðni frá Íþróttabandalagi Akraness um að breyta Akraborg við Akraneshöllina úr geymslurými í félagsaðstöðu með heimild til veitingasölu án eldunaraðstöðu. Jafnframt er óskað eftir að opna tengingu milli rýmisins og Akraneshallar. Fyrirhugað er að rýmið verði hluti af rekstri KFÍA og nýtist öllum félögum á svæðinu. Leitað var til hönnuða mannvirkisins um tilboð í hönnunarvinnu. Tilboð bárust frá ASK Arkitektum og COWI, en tilboð COWI þótti ekki samræmast umfangi verkefnisins. Í framhaldinu var leitað til EFLU um tilboð í verkfræðihönnun. Tillögur Ask og Eflu lagðar fram. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillöguna og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
|
|
12. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun Lögð er fram tillaga að breytingum á sundlaugarbyggingu og vallarhúsi vegna aukinnar aðsóknar og þarfar fyrir betri aðgreiningu sundlaugargesta og nemenda í skólasundi. Tillagan felur í sér breytingar á klefum í vallarhúsi, endurnýjun anddyris, nýjan aðgang að sundlaugarsvæði og bætta aðgengislausn með sérútbúnu salerni í samræmi við viðmið ChangingPlaces International. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir 1. áfanga og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
|
|
13. 2605-4220 - Umsókn til skipulagsfulltrúa - Kirkjubraut 2 Umsókn til skipulagsfulltrúa um breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna lóðarinnar Kirkjubrautar 2. Sótt er um að skipta núverandi íbúð á 4. hæð hússins í tvær sjálfstæðar íbúðir. Með breytingunni fjölgar íbúðum í húsinu úr fjórum í fimm. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á útliti hússins, byggingarmagni eða byggingarreit. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að erindið verði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012. Grenndarkynnt skal fyrir Suðurgötu 65 og 67, Skólabraut 35, 35A og 37, og Kirkjubraut 1, 3 og 4.Allur kostnaður vegna breytingarinnar fellur á lóðarhafa.
|
|
14. 2605-4064 - Umsókn til skipulagsfulltrúa - Elínarvegur 13a Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Miðvogslækjarsvæðis vegna Elínarvegar 13A. Um er að ræða viðbótarbreytingu við áður samþykkta deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. nóvember 2025. Breytingin felur í sér stækkun byggingarreits til norðvesturs, tilfærslu bílastæða innan lóðar og hækkun nýtingarhlutfalls úr 0,20 í 0,21. Að öðru leyti haldast skilmálar gildandi deiliskipulags óbreyttir. Skipulags- og umhverfisráð leggur til að erindið verði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012. Grenndarkynnt skal fyrir Elínarveg 13 og 15b, Akurprýði 5 og 7.Allur kostnaður vegna breytingarinnar fellur á lóðarhafa.
|
|
15. 2605-4163 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Furugrund 36 Lögð fram fyrirspurn til skipulagsfulltrúa vegna Furugrundar 36 um stækkun núverandi einbýlishúss á lóðinni. Fyrirhugað er að byggja 30,6 m² viðbyggingu við húsið til norðvesturs, í átt að Furugrund. Þakform og hæð viðbyggingarinnar verða í samræmi við núverandi hús. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,20 í 0,24. Deiliskipulag er ekki í gildi fyrir hverfið og er óskað eftir afstöðu skipulags- og umhverfisráðs til erindisins. Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í fyrirspurn um stækkun einbýlishúss að Furugrund 36 eins og hún er kynnt í framlögðum gögnum. Ráðið telur að fyrirhuguð viðbygging falli vel að núverandi byggð og yfirbragði svæðisins. Umsækjanda er bent á að sækja þurfi um byggingarleyfi í samræmi við ákvæði mannvirkjalaga og byggingarreglugerðar.
|
|
16. 2606-4514 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Suðurgata 22 Lögð er fram fyrirspurn frá Kjarnahúsum ehf. um uppbyggingu fjögurra íbúða íbúðarhúss á lóðinni Suðurgötu 22. Fyrirhugað er að reisa tveggja hæða timburhús með fjórum íbúðum, alls um 320 m² að stærð. Samkvæmt Aðalskipulagi Akraness 2021–2033 er lóðin staðsett innan íbúðarsvæðis ÍB-112, þar sem gert er ráð fyrir þéttingu byggðar og endurnýjun. Deiliskipulag er ekki í gildi fyrir svæðið og er óskað eftir afstöðu skipulags- og umhverfisráðs til erindisins. Skipulags- og umhverfisráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





