Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2512-5542 - Breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna - Hringtorg Akranesvegur Lögð er fram tillaga að verulegri breytingu á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna að lokinni auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér stækkun skipulagssvæðis, aðlögun göngustíga og gerð hringtorgs við gatnamót Akranesvegar, Akrafjallsvegar og Lækjaskógar. Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 24. mars 2026 og var auglýst frá 7. apríl til 24. maí 2026. Tvær umsagnir bárust á auglýsingatíma. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerði ekki athugasemdir við tillöguna. Veitur bentu á legu háspennulagnar innan svæðisins og óskuðu eftir að stofnlagnir yrðu sýndar á uppdrætti eða þeirra getið í greinargerð, auk samráðs við áframhaldandi hönnun og framkvæmdir. Ekki er talið að framkomnar umsagnir kalli á breytingar á meginforsendum tillögunnar. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða samantekt umsagna vegna breytingar á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna vegna hringtorgs við Akranesveg. Skipulags- og umhverfisráð telur að framkomnar umsagnir gefi ekki tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni og leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, áður en hún tekur gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
|
|
2. 2605-3705 - Framkvæmdaleyfi - nýtt hringtorg og undirgöng við Akrafjallsveg ásamt fleiri verkþáttum Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 11. maí 2026 um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á vegamótum Akrafjallsvegar (51-01/02) og Akranesvegar ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi, undirgöngum undir Akrafjallsveg fyrir göngu- og hjólastíg, stígagerð og veitulögnum. Framkvæmdin er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar, Landsnets og Veitna. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta umferðaröryggi allra vegfarenda, auka greiðfærni og efla göngu- og hjólatengingar á svæðinu Framkvæmdin er í samræmi við Aðalskipulag Akraness 2021–2033. Samhliða er í auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna vegna hringtorgs við þjóðveg. Auglýsingartíma tillögunnar lýkur 25. maí 2026. Með umsókninni fylgja framkvæmdalýsing og teikningar sem sýna fyrirhugaða framkvæmd, m.a. hringtorg, undirgöng og tengdar framkvæmdir. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir nýju hringtorgi við Akrafjallsveg/Akranesveg, undirgöngum fyrir göngu- og hjólastíg, stígagerð og veitulögnum á grundvelli framlagnar umsóknar og meðfylgjandi gagna. Framkvæmdaleyfið tekur ekki gildi fyrr en breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna, hringtorg við þjóðveg hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Verkefnastjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að ganga frá útgáfu framkvæmdaleyfis að uppfylltum framangreindum skilyrðum fyrir hönd Skipulagsfulltrúa.
|
|
3. 2605-3848 - Eyrarflöt 13 - Deiliskipulagsbreyting Lögð er fram umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Eyrarflöt 13. Breytingin fellst í að skilgreindur sé byggingarreitur á lóðinni og falla fyrirhugaðar svalir og breyting á útistiga innan hans. Einnig verður skilgreint svæði fyrir skjólvegg, smáhýsi og saunaklefa. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vegna Eyrarflöt 13 skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur verkefnastjóra að annast kynninguna. Tillagan skal kynnt fyrir eigendum aðliggjandi lóða Eyrarflöt 6, 9 og 11.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





