Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2602-1595 - Bárugata 15 - Umsókn til skipulagsfulltrúa Umsókn til skipulagsfulltrúa um breytt deiliskipulag fyrir lóðina Bárugötu 15. Breytingin felst í því að heimiluð bygging er lækkuð úr fjórum hæðum í tvær hæðir og heimilaðar íbúðir fækkað úr átta í fimm. Tillagan var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir lóðarhöfum Bárugötu 17, 18 og 19 og Háteig 10 frá 14. apríl til 15. maí 2026. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010 og birt í B-deild stjórnartíðinda.
|
|
2. 2602-1805 - Skagabraut 7 - Umsókn til skipulagsfulltrúa Umsókn til skipulagsfulltrúa um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Skagabrautar 7. Í breytingunni felst að heimila þrjá kvisti á þaki hússins ásamt auknu byggingarmagni. Leitað var umsagnar Minjastofnunar Íslands þar sem húsið var byggt 1934 og er því umsagnarskylt. Minjastofnun gerði enga athugasemd í bréfi sínu sem fylgir með tillögunni. . Tillagan var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 14. apríl til 18. maí 2026, fyrir lóðarhöfum Skagabrautar 5, 8, 9-11, Sunnubraut 21 og 30 ásamt Kirkjubraut 46. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010 og birt í B-deild stjórnartíðinda.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





