Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2603-2581 - Vesturgata 62 - Tilboð og greinagerð Lagt er fram erindi frá Snikkerí ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Akraneskaupstaðar til kaupa og uppbyggingar á fasteigninni að Vesturgötu 62. Akraneskaupstaður á um þriðjungs hlut í fasteigninni við Vesturgötu 62, en ríkið á hinn hlutann. Í febrúar 2026 samþykkti skipulags- og umhverfisráð að húsið yrði rifið en þar sem ekki hefur borist afstaða frá meirihluta eigenda er framtíð eignarinnar enn óljós. Komi til þess að húsið verði endurbyggt þarf að fylgja hefðbundnu auglýsingaferli. Skipulags- og umhverfisráð vísar málinu áfram til bæjarráðs til ákvörðunar um hvort selja eigi eignina eða ráðast í niðurrif hennar og ná þá samtali við ríkið um næstu skref.
|
|
2. 2512-5159 - Endurskoðun Deiliskipulag Ægisbrautar - Undirbúningur Undirbúiningur fyrir frumhönnun nýjum leikskóla og nýtt deiliskipulag Ægisbrautar. Skipulagsfulltrúi fer yfir framlagðar tillögur frá hönnunarstofunum Basalt, Hjark og Tark. Skipulags- og umhverfisráð þakkar skipulagsfulltrúa fyrir yfirferðina og hlakkar til þess að taka á móti íbúum á kynningarfund þar sem farið verður yfir frumtillögur þriggja hönnunarstofa vegna endurskoðunar á skipulagi Ægisbrautar. Kynningarfundur verður haldinn í Grundaskóla þann 20. maí, kl. 17:00.
|
|
3. 2602-1314 - Vinnuskóli - tillögur til vinnuhóps í kjölfar samantektar á störfum og stöðu vinnuskólans 2025 Upplýsingaerindi um framgang mála með 8. bekk í sumar. Garðyrkjustjóri kynnir tillögur frá vinnuhóp. Skipulags- og umhverfisráð þakkar vinnuhópi fyrir framlagðar tillögur að sumarverkefnum fyrir 8. bekk sumarið 2026 og felur garðyrkjustjóra að vinna málið áfram.
|
|
4. 2605-3736 - BS ritgerð kynning Garðyrkjustjóri kynnir ritgerð sína úr BS námi þar sem fjallað er um útivistarsvæði við dvalarheimili, aldraðir og útivist. Skipulags- og umhverfisráð þakkar garðyrkjustjóra fyrir flotta kynningu og telur að mikilvægt sé að huga að útisvæðum við stækkun Höfða út frá sjónarmiðum um lýðheilsu.
|
|
5. 2605-3697 - Skógarlundur 30, 32, 34 - Breytt nýtingarhlutfall Lagt fram erindi frá Trésmiðjunni Akur ehf., dags. 11. maí 2026, varðandi lóðirnar Skógarlund 30, 32 og 34 í Skógahverfi. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagsskilmálum þannig að nýtingarhlutfall á lóðunum verði lækkað úr 0,40 í 0,28. Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og felur verkefnastjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram og leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





