Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

352. fundur 04. maí 2026 kl. 17:00 - 19:00 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson formaður
  • Sædís Alexía Sigmundsdóttir varaformaður
  • Anna Sólveig Smáradóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri
  • Berglind Sigurðardóttir verkefnastjóri
  • Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis
  • Lárus Ársælsson umhverfisstjóri
  • Sigurður Páll Harðarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis

1. 2604-2858 - Deiliskipulag - Stækkun Akrasel

Lagðar eru fram frumhugmyndir að breyttu deiliskipulagi á Ketilsflöt vegna stækkunar Akrasels, um 600 m² eða allt að 3 einingar.

Farið yfir valkosti á stækkun leikskólans Akrasels um 3 deildir. Ljóst að endurskoða þarf fjárfestingaráætlun 2026 og 2027 til að mæta þeim kostnaði sem hlýst af ofangreindri stækkun með viðauka í bæjarráði. Arnóri Guðmundssyni verkefnastjóra falið að vinna verkefnið áfram.

 

2. 2604-3387 - Suðurgata 57 - Breyting á deiliskipulagi

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57. Tillagan felur í sér hækkun núverandi húss um eina hæð, þannig að það verði fjórar hæðir með kjallara, auk þess sem gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 1,36 í 1,78. Jafnframt er gert ráð fyrir breyttri starfsemi í húsinu, þar sem áformað er að starfrækja hótel á efri hæðum og veitingastað á jarðhæð, ásamt fjölnotasal á 4. hæð. Svæðið er skilgreint sem miðsvæði í Aðalskipulagi Akraness 2021–2033 og er tillagan í samræmi við stefnu aðalskipulags um þéttingu byggðar og blandaða starfsemi í miðbæ. Kynningarfundur með íbúum og hagsmunaaðilum var haldinn 27. apríl þar sem um 85 manns mættu. Viðbrögð voru almennt jákvæð og fram komu ábendingar sem unnið hefur verið með við frekari útfærslu tillögunnar. Skipulags- og umhverfisráð þakkar íbúum Akraness fyrir góða þátttöku og uppbyggilega umræðu.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

3. 2604-3198 - Suðurgata 68 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits sem nær til lóðarinnar Suðurgötu 68. Tillagan felur í sér að skilgreindur verði nýr byggingarreitur fyrir bílgeymslu á lóðinni á svæði þar sem áður var bílgeymsla auk þess sem gert er ráð fyrir stækkun svala á efri hæð sem ná yfir þak bílgeymslunnar. Byggingarreiturinn nær að hluta að lóðarmörkum aðliggjandi lóða og hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,59 í 0,92. Að öðru leyti gilda skilmálar gildandi deiliskipulags Akratorgsreits.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni skal greiddur af lóðarhafa. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Suðurgötu 65, 67, 69, 70 ásamt Mánabraut 3 og 5.

 

4. 2602-1828 - Sementsreitur Deiliskipulag Reitir A og B

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sementsreits, reita A og B, að lokinni grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Alls bárust 12 athugasemdir á kynningartíma sem lúta einkum að áhrifum á útsýni, skuggavarp og ásýnd byggðar. Fyrir liggja drög að svörum við athugasemdum.

Skipulags- og umhverfisráð hefur fjallað um framkomnar athugasemdir og viðbrögð við þeim. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða samantekt og svör við athugasemdum.Sveitarfélagið bendir á að sú byggingarhæð sem vísað er til er hæð mænis en ekki heildarhæð byggingar. Þök húsanna eru með a.m.k. 20° halla, sem dregur úr sjónrænum áhrifum og mildar ásýnd byggðar. Mænisstefna er skilgreind á uppdráttum og ekki er heimilt að tengja saman þök þvert á mænisstefnu.  Um er að ræða takmarkaða hækkun um 0,9 m, sem ekki er talin breyta megináhrifum byggðar á útsýni umfram það sem þegar leiðir af gildandi deiliskipulagi. Uppdráttur hefur verið uppfærður og skýringarmyndum bætt við til frekari skýringar. Ekki er talið tilefni til að gera breytingar á tillögunni.Ráðið leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Sementsreits, reita A og B, og að málið verði birt í B-deild Stjórnartíðinda, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

5. 2601-0713 - Nýtt deiliskipulag Kirkjubraut kalmansbraut

Lögð er fram, að loknum auglýsingatíma, tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Kirkjubraut og Kalmansbraut sem felur í sér endurskipulagningu gatnarýmis á um 2 ha svæði í miðbæ Akraness. Tillagan byggir á stefnu Aðalskipulags Akraness 2021–2033 og miðar að bættri bæjarmynd, auknu umferðaröryggi og betra aðgengi fyrir gangandi og hjólandi, m.a. með einni akrein í hvora átt, samfelldum stígum, endurskipulagningu bílastæða og auknum gróðri og blágrænum ofanvatnslausnum. Tillagan var auglýst frá 11. febrúar til 27. mars 2026. Alls bárust 12 umsagnir og athugasemdir.

Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir tillögu að nýju deiliskipulagi Kirkjubrautar að loknum auglýsingatíma. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða samantekt og svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

 

6. 2604-3262 - Skipulagsmál Nr. 1362/2025 - Kross L198194 og Krossland Eystra L205470 - Umsögn í Skipulagsgátt

Lögð er fram til umsagnar auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032, sem varðar svæði Kross (L198194) og Krossland eystra (L205470). Tillagan er auglýst á tímabilinu 27. apríl til 8. júní 2026 skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að svæði fyrir samfélagsþjónustu (S8), um 1,3 ha að stærð, fellur út og verður skilgreint sem íbúðabyggð. Jafnframt er gert ráð fyrir stækkun íbúðarsvæða ÍB4 og ÍB5 og auknu byggingarmagni og íbúðafjölda. Samhliða er unnið að landsskiptum milli Kross og Krosslands eystra.

Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að vinna umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.

 

7. 2512-5202 - Vetrarþjónusta gatna og stíga 2020-25 - Verksamningur - Framlenging til 30.4.2027

Lögð er fram tillaga um að framlengja samning við Þrótt um vetrarþjónustu gatna, stíga og bílastæða aftur til 1 árs, sem er heimilt skv. samningsgögnum.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að framlengja samning við Þrótt um vetrarþjónustu gatna, stíga og bílastæða til 30.4.2027.

 

8. 2604-2869 - Vatnsþörf fyrir íbúa og atvinnulíf á Akranesi

Fyrir 2 árum var starfshópur sem vann greinargerð um vatnsþörf norðan Hvalfjarðar. Frá þeim tíma hefur Orkuveitan haldið áfram að skoða mögulega lagnaleið á Kjalarnesi og undirbúið mögulegar rannsóknarboranir norðan Akrafjalls.

Á þessu ári var gripið til þess ráðs að takmarka vatnsnotkun vegna fyrirhugaðrar loðnuvertíðar. Skipulags- og umhverfisráð leggur áherslu á að fyrir liggi markvissar áætlanir og tímasettar aðgerðir hjá Veitum um hvernig mæta á aukinni þörf eftir köldu vatni á Akranesi vegna aukins íbúafjölda og fjölgunar fyrirtækja á næstu árum.

 

9. 2601-0167 - Asbestlagnir á Akranesi

Lagðar eru fram upplýsingar frá Veitum um vatnslagnir úr asbesti á Akranesi.

Skipulags- og umhverfisráð óskar eftir áætlun og tímasettu aðgerðarplani frá Veitum um útskiptingu asbestlagna í vatnsveitukerfi á Akranesi.

 

10. 2604-2974 - Stefna og viðbragðsáætlun í EKKO málum

Drög að stefnu og viðbragðsáætlunar Akraneskaupstaðar í EKKO málum var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs þann 16. apríl sl. og þá vísað til fagráða Akraneskaupstaðar en gert er ráð fyrir að bæjarstjórn geti afgreitt málið á lokafundi sínum þann 12. maí nk. Yfirheiti á stefnunni ber heitið EKKO sem er skammstöfun á markmiðum hennar.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að stefnu og viðbragsáætlun Akraneskaupstaðar varðandi einelti, kynferðislegt áreitni, kynbundið áreitni og ofbeldi (EKKO).

 

11. 2604-2809 - Bíóhöll - Verðkönnun viðhald utanhús

Lögð er fram verðkönnun fyrir viðhald utanhús á Bíóhöll. Eftirfarandi tilboð bárust:

- Agnúi ehf, Málningavinna Carls 2.747.000 kr.

- Hermann Hermansson 4.846.000 kr.

Kostnaðaráætlun er 5.572.000 kr.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.

 

12. 2605-3445 - Fjárfestingaráætlun 2026-2027

Lögð er fram frumáætlun fyrir breytingu á fjárfestingar- og framkvæmdaráætlun fyrir árin 2026 og 2027 vegna eftirfarandi verkefna: 3 varanlegar leikskóladeildir við Akrasel, breytingar í Grundaseli, breytingar á Vallarhúsi og veitingaraðstöðu (Akraborgin) á Jaðarsbökkum.

Skipulags- og umhverfisráð óskar eftir afstöðu bæjarráðs til þessara verkefna. Ljóst er að þau auka kostnað við samþykkta fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun.

 

13. 2604-3002 - Mál nr. 0063/2025 - Galtarlækur L133627- Athafna- og hafnarsvæði - Umsögn í Skipulagsgátt

Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 fyrir jörðina Galtarlæk (L133627), sem auglýst er skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan felur í sér að skilgreint er nýtt athafna- og hafnarsvæði á um 101,7 ha svæði í stað núverandi landbúnaðarlands. Gert er ráð fyrir stækkun athafnasvæðis AT15 og skilgreiningu nýs hafnarsvæðis neðan þess, með viðlegukanti fyrir flutninga- og skemmtiferðaskip. Á svæðinu er gert ráð fyrir fjölbreyttri athafnastarfsemi, m.a. vörugeymslum, léttum iðnaði og þjónustu tengdri hafnarrekstri, með áherslu á vistvænar lausnir og uppbyggingu í anda hringrásarhagkerfis. Unnin hefur verið umhverfismatsskýrsla með tillögunni, þar sem metin eru áhrif á helstu umhverfisþætti, m.a. landslag, vatn, lífríki og samfélag. Tillagan gerir ráð fyrir að nánari útfærsla og mótvægisaðgerðir verði skilgreindar á deiliskipulagsstigi. Tillagan er nú í auglýsingu og umsagnarferli stendur yfir.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða umsögn verkefnastjóra og að koma henni á framfæri til Hvalfjarðarsveitar.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu