Skipulags- og umhverfisráð
1.2604-3252 - Fyrirhuguð stækkun Dvalarheimilisins Höfða
Breyting á deiliskipulagi Sólmundarhöfða vegna Dvalarheimilisins Höfða. Fyrir liggja áform um verulega stækkun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis við Sólmundarhöfða. Drög að frumathugun vegna verkefnisins, dags. 26. mars 2026, gera ráð fyrir verulegri fjölgun hjúkrunarrýma og viðbyggingu við núverandi húsnæði. Í frumathugun eru settir fram nokkrir valkostir um útfærslu uppbyggingarinnar og liggur endanleg staðsetning og umfang viðbyggingar ekki fyrir. Ljóst er að eftir því hvaða valkostur verður fyrir valinu kann að þurfa að taka nánar afstöðu til samræmis við gildandi skipulagsheimildir. Svæðið er skilgreint sem samfélagsþjónusta (S208) í Aðalskipulagi Akraness 2021–2033 og er uppbygging hjúkrunarheimilis í samræmi við þá landnotkun. Hins vegar kann útfærsla einstakra valkosta að hafa áhrif á afmörkun byggingarreita og nýtingu lóðar.
Skipulags- og umhverfisráð og aðrir fundarmenn frá bæjarstjórn tóku jákvætt í og fagna áformum um stækkun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis. Ljóst er að fyrirhuguð uppbygging felur í sér verulega breytingu á byggingarmagni og skipulagsforsendum. Skipulags- og umhverfisráð felur sviðstjóra/verkefnastjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja vinnu við verulega breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Horft verði til þess að stækkunin verði til suðurs frá núverandi hjúkrunarheimili.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





