Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2602-1314 - Vinnuskóli - tillögur til vinnuhóps í kjölfar samantektar á störfum og stöðu vinnuskólans 2025 Störf nemenda í 8. bekk við Vinnuskólann 2026. Dagskrárliður þessi var sameiginlegur hjá skóla- og frístundaráði og skipulags- og umhverfisráði.Upp er komin sú staða að Akraneskaupstaður getur ekki boðið nemendum í 8. bekk vinnu við Vinnuskólann í sumar þar sem ekki hafa fengist nægjanlega margir flokkstjórar til starfa sumarið 2026. Hingað til hefur 8. bekkur fengið um 30 klukkustundir í vinnu yfir sumartímann sem hefur verið dreift yfir 10 daga, hálfan dag frá mánudegi til fimmtudags.Skipulags- og umhverfisráð og skóla- og frístundaráð harma þessa stöðu verulega en bregðast þarf við með þeim hætti að tryggja nemendum í 9. og 10. bekk vinnu í sumar með þeim fjölda flokkstjóra sem þegar hefur verið gengið frá ráðningu við.Í maí verður skoðað hvort hægt verði að bjóða upp á námskeið fyrir nemendur í 8. bekk. Sú vinna verður unnin í samstarfi við Þorpið og verður kynnt sérstaklega síðar.Ráðin eru sammála um að ráðast þurfi í endurskipulagningu á Vinnuskóla Akraness til að tryggja nemendum í 8.–10. bekk vinnu í framtíðinni og á sama tíma gera störf flokkstjóra eftirsóknarverðari. Verður það verkefni nýrrar bæjarstjórnar eftir komandi kosningar.
|
|
2. 2601-0669 - Grundasel Endurbætur Verkefnastjóri framkvæmda kynnir tillögu að endurbótum að frístundarmiðstöð Grundaseli. Tillagan felur í sér breytingu á húsnæðinu fyrir betri samnýtingu frístundastarfs og kennslu grunnskóla. Dagskrárliður þessi var sameiginlegur hjá skóla- og frístundaráði og skipulags- og umhverfisráði.Kynntar voru tillögur að endurbótum í Grundaseli sem varða meðal annars viðgerð á rakasperru, nýja loftræstingu, endurnýjun gólfdúks o.fl. Fyrir liggur að umtalsvert rask verður í húsinu, sem hefur verið nýtt undir frístundastarf í Grundaskóla.Jafnframt hafa komið upp hugmyndir um að nýta húsið betur en gert er í dag þannig að samhliða nauðsynlegu viðhaldi sem áætlað er að kosti um 150 millj. kr. verði rýmið endurskipulagt þannig að þar verði þrjár nýjar kennslustofur sem geti nýst Grundaskóla í framtíðinni, bæði fyrir 1. bekk og frístund.Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna þeirrar framkvæmdar upp á um 300 millj. kr.Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að endurskoða fjárfestingaráætlun vegna þessa fyrir næsta fund ráðsins.
|
|
3. 2604-2994 - Grundaskóla lóð - Hönnun Hönnun á skólalóð Grundaskóla lögð fram. Dagskrárliður þessi var sameiginlegur hjá skóla- og frístundaráði og skipulags- og umhverfisráði.Lögð fram tillaga að endurbótum á Grundaskólalóð. Um er að ræða svæði undir ýmis leiktæki norðan megin við skólann og körfuboltavöll og gerfigrassvæði sunnan megin við skólann. Ráðin leggja til að byrjað verði á svæði undir leiktæki norðan megin við skólann strax á þessu ári. Lóðin verði síðan kláruð á árunum 2027 og 2028.
|
|
4. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun Verkefnastjóri kynnir tillögu að breytingu á sundlaugarbyggingu. Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra framkvæmda að vinna málið áfram.
|
|
5. 2604-3003 - Teigasel - Loftgæðamæling 2026 Til kynningar er skýrsla um niðurstöður loftgæðamælinga í Leikskólanum Teigasel. Í skýrslunni kemur fram að rokgjörn lífræn efni (VOC) séu í sjálfu sér ekki talin hættuleg. Hins vegar þurfi að bregðast við of háum gildum koltvísýrings í sal leikskólans með því að setja þar upp fullnægjandi loftskiptikerfi.
|
|
6. 2604-2989 - Jaðarsbakkar 1 - Breytingar á 3. hæð Laugar ehf. hefur lagt inn byggingarleyfisumsókn vegna tannlæknastofu á 3. hæð Jaðarsbakka 1. Skv. leigusamningi skal leigutaki óska eftir samþykkt breytinga á húsnæðinu. Að auki er leigutaka óheimilt að framleigja rými nema með samþykki leigusala. Skipulags- og umhverfisráð heimilar Laugum að framleigja rými á 3. hæð Jaðarsbakka 1.
|
|
8. 2602-1828 - Sementsreitur Deiliskipulag Reitir A og B Lögð var fram breyting á deiliskipulagi Sementsreits sem felst í því að heimilt verður að hækka mæni húsa á skipulagsreitum A og B og auka þar með sveigjanleika í hönnun. Samanlögð hæð þakhæðar og aðalhæðar var áður 7,1 metri en verður eftir breytingu 8,0 metrar. Grenndarkynning fór fram í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhafa við Jaðarsbraut 3, 5, 7, 9, 11, 13, 15, 17, 19, 21 og 23, sem og við Sementsbraut 12 og 15. Athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að taka saman drög að viðbrögðum vegna þeirra athugasemda sem bárust og leggja fyrir ráðið á næsta fundi.
|
|
9. 2601-0713 - Framhaldsmál - Nýtt deiliskipulag Kirkjubraut Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Kirkjubraut og Kalmansbraut var auglýst frá 11. febrúar til 27. mars 2026. Að loknum auglýsingatíma bárust umsagnir frá lögbundnum umsagnaraðilum sem gera ekki efnislegar athugasemdir, auk athugasemda frá almenningi. Athugasemdirnar snúa fyrst og fremst að útfærslu einstakra þátta, svo sem bílastæðum og aðgengi, blágrænum ofanvatnslausnum og útfærslu almenningsrýma. Málið er lagt fram til kynningar að loknum auglýsingatíma. Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir tillögu að nýju deiliskipulagi Kirkjubrautar að loknum auglýsingatíma.Fyrir liggja umsagnir og athugasemdir sem kynntar eru ráðinu.Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að taka saman drög að svörum við framkomnum umsögnum og athugasemdum.
|
|
11. 2603-2532 - Suðurgata 57 Lögð eru fram drög að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57. Tillagan felur í sér að heimila hækkun núverandi húss um eina hæð þannig að það verði fjórar hæðir með kjallara auk þess sem gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 1,36 í 1,78. Jafnframt er gert ráð fyrir breyttri starfsemi í húsinu, þar sem áformað er að starfrækja hótel á efri hæðum og veitingastað á jarðhæð, ásamt veislusal á 4. hæð. Svæðið er skilgreint sem miðsvæði í Aðalskipulagi Akraness 2021–2033 og er tillagan í grunninn í samræmi við stefnu aðalskipulags um þéttingu byggðar og aukna blandaða starfsemi í miðbænum. Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57. Ráðið telur tillöguna í grunninn vera í samræmi við stefnu aðalskipulags um miðsvæði og þéttingu byggðar.Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að vinna málið áfram og kynna vinnslutillögu fyrir íbúum og hagsmunaaðilum, meðal annars með kynningarfundi, áður en tillagan verður lögð fram til formlegrar auglýsingar.
|
|
12. 2604-3050 - Hreinsunarvika
Lagt er til að standa fyrir hreinsunarviku fyrir garðeigendur og plokkdegi fyrir bæjarbúa með það að markmiði að efla umhirðu bæjarins og hvetja íbúa til þátttöku í hreinna og snyrtilegra umhverfi. A. Stóri plokkdagurinn – 26. apríl Þennan dag sameinast íbúar um að plokka rusl úr nærumhverfi sínu, bæjarlandinu, Garðalundi og öðrum opnum svæðum. Af því tilefni verða settir lokaðir gámar á þrjár grenndarstöðvar, merktir „Blandaður úrgangur“. Gámarnir verða aðgengilegir í þrjá daga, frá föstudeginum 24. apríl til mánudagsins 27. apríl. Um er að ræða þátttöku í landsátaki og verður framtakið jafnframt auglýst á vefmiðlum. B. Hreinsunarvika – 27. apríl til 4. maí Á hreinsunarvikunni verða íbúar hvattir til að hreinsa garðaúrgang í eigin görðum og fá tækifæri til að losa hann í nágrenninu. Sett verða opnir gámar á þrjár grenndarstöðvar, merktir „Garðaúrgangur“. Gámarnir verða aðgengilegir í sjö daga, frá mánudeginum 27. apríl til mánudagsins 4. maí. Hreinsunarvikan verður auglýst sérstaklega á vefmiðlum.
Umhverfisstjóri kynnti fyrirkomulag á plokkunardegi og hreinsunarviku.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





