Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2603-2522 - Akraborgin félagsaðstaða, Jaðarsbakkar - Tillaga ÍA
Lögð er fram beiðni frá Íþróttabandalagi Akraness (ÍA) um að bæta félagsaðstöðu við Akraneshöllina á Jaðarsbökkum með því að breyta rými, svokallaðri Akraborg, úr óupphituðu geymslurými í varanlega félagsaðstöðu með heimild til veitingasölu, án eldunaraðstöðu. Beiðnin felur jafnframt í sér að opnuð verði tenging milli rýmisins og Akraneshallar til að bæta aðgengi og flæði gesta. Markmið breytingarinnar er að bæta aðstöðu fyrir gesti og iðkendur í íþróttamannvirkjum á Jaðarsbökkum, meðal annars með aukinni þjónustu og bættri setuaðstöðu í tengslum við íþróttaviðburði. Gert er ráð fyrir að Akraneskaupstaður hafi umsjón með hönnun og nauðsynlegum formlegum breytingum á húsnæðinu, en aðildarfélög ÍA annist framkvæmd og kostnað að þeim loknum. Fyrirhugað er að rýmið verði hluti af rekstri KFÍA og nýtist öllum félögum á svæðinu. Sameiginlegur dagskrárliður með skóla- og frístundaráð.
Ráðin taka jákvætt í erindið. Skipulags- og umhverfisráð felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram og leggja kostnaðarmat fyrir næsta fund.
|
|
2. 2601-0831 - Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - endurbætur á aðstöðu
Erindi um að skoðað verði hvað hægt er að breyta til að gera aðstæður fyrir sundlaugargesti betri og þannig að upplifun allra verði sem best í húsakynnum sundlaugarinnar, með tilliti til kostnaðar. Sameiginlegur dagskrárliður með skóla- og frístundaráð.
Skipulags- og umhverfisráð fór yfir stöðuna. Tillaga og kostnaðarmat er í vinnslu og þarf að liggja fyrir sem fyrst.
|
|
3. 2601-0311 - Umsókn um breytingu útlit og framkvæmdir - Jaðarsbakkar 1
Lögð er fram tillaga Ask arkitekta að útliti bragga og vallarhúss við Jaðarsbakka.
Umhverfis- og skipulagsráð fellur frá tillögu um breytingu á útliti braggans. Ráðið felur sviðstjóra að framkvæma verðkönnun á málningarvinnu á vallarhúsi.
|
|
4. 2601-0034 - Leikskólamál - Valkostagreining 2025-2026
Farið yfir kynningu á byggingarlausnum vegna fyrirhugaðrar stækkunar Akrasels. Sameiginlegur dagskrárliður með skóla- og frístundaráði.
Ráðin eru sammála um að hefja undirbúning að útboði. Skipulags- og umhverfisráð felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið hratt áfram.
|
|
5. 2512-5423 - Grassláttur útboð 2026
Tilboð í grasslátt á opnum svæðum fyrir tímabilið 2026 - 28 liggur fyrir frá 3 aðilum.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að ganga til samninga við Garðlist kt. 450598-2409 en tilboð þeirra í þjónustuna fyrir árin 2026-2028 að upphæð kr. 101.115.000 er hagstæðasta tilboðið skv. ákvæðum útboðsins.
|
|
6. 2601-1090 - Timburs - Losun á móttökusvæði jarðefna
Fyrirspurn frá Elkem um losun á timburflís á móttökusvæði jarðefna.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að heimila Elkem að losa umbeðið efni á móttökusvæði jarðefna og felur umhverfisstjóra afgreiðslu málsins.
|
|
7. 2512-5187 - Breyting á deiliskipulag - Akraneshöfn Fylling
Breyting á Deiliskipulagi Akraneshafnar, landfylling í samræmi við Aðalskipulag Akraness, fyrir hafsækinn iðnað. Vinnslutillaga var kynnt í skipulagsgátt 23. mars -29. mars 2026 . Lögð er fram fundargerð kynningarfundar sem haldin var 5. mars á Dalsbraut 4.
Skipulags- og umhverfisráð felur sviðstjóra að vinna málið áfram og koma með tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar.
|
|
8. 2601-0968 - Deiliskipulag - Skógarhverfi 3C - Skógarlundur 36 - 38 - 40
Tillaga að breyttu deiliskipulagi var grenndarkynnt frá 24. febrúar til 27. mars 2026 í skipulagsgátt. Tvær umsagnir bárust án efnislegra athugasemda. Breytingin felst í að lóð nr. 36 við Skógarlund breytist úr einbýlishúsi í raðhús á einni hæð með þremur íbúðum. Þá er lóðum nr. 38 og 40 breytt þannig að þær skiptast í þrjár lóðir, nr. 38, 40 og 40a, og verður heimilt að byggja fjórar íbúðir á hverri lóð. Með breytingunni fjölgar íbúðum úr 10 í 15. Nýtingarhlutfall lækkar úr 0,50 í 0,45. Breytingin felur í sér þéttingu byggðar innan íbúðarsvæðis án breytinga á megin landnotkun.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis, áfanga 3C, vegna Skógarlundar 36, 38, 40 og 40a, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að annast frágang gagna og birtingu breytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni samþykkt bæjarstjórnar.
|
|
9. 2602-1805 - Skagabraut 7 - Umsókn til skipulagsfulltrúa
Lögð er fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Skagabrautar 7. Í breytingunni felst að heimila þrjá kvisti á þaki hússins ásamt auknu byggingarmagni. Leitað var umsagnar Minjastofnunar Íslands þar sem húsið var byggt 1934 og er því umsagnarskylt. Minjastofnun gerði enga athugasemd í bréfi sínu sem fylgir með tillögunni.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vegna Skagabrautar 7 skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur verkefnastjóra að annast kynninguna. Tillagan skal kynnt fyrir eigendum aðliggjandi lóða Skagabrautar 5, 8, 9-11, Sunnubraut 21 og 30 ásamt Kirkjubraut 46.
|
|
10. 2602-1595 - Bárugata 15 - Umsókn til skipulagsfulltrúa
Lögð er fram umsókn til skipulagsfulltrúa um breytt deiliskipulag fyrr lóðina Bárugata 15. Breytingin felst í því að heimiluð bygging er lækkuð úr fjórum hæðum í tvær hæðir og heimilaðar íbúðir fækkað úr átta í fimm. Heimilað byggingarmagn íbúðarhluta lækkar úr 850 m² í 504 m² og nýtingarhlutfall lóðar lækkar úr 1,6 í 1,06. Heildarbyggingarmagn innan lóðar verður því allt að 734 m². Byggingarreitur fjórðu hæðar er felldur út og hámarkshæð A-hluta lækkar úr 12 m í 7,9 m. Atvinnuhluti hússins (C-hluti) helst óbreyttur að stærð og notkun. Jafnframt eru skilgreindar nánari heimildir fyrir svalir á efri hæð, þar sem heimilt er að svalir gangi allt að 1,8 m út frá suðausturhlið, allt að 1,65 m frá norðausturhlið og allt að 1,8 m yfir þak B-hluta húss. Byggingarlína svala er sýnd á uppdrætti. Aðkoma að bílastæðum innan lóðar er skilgreind og heimilt er að hafa sorpgeymslur innan lóðar eða innan húss. Að öðru leyti haldast skilmálar gildandi deiliskipulags óbreyttir.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vegna Bárugötu 15, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að annast kynningu málsins. Tillagan skal kynnt fyrir eigendum fasteigna að Bárugötu 17, 18 og 19 og Háteig 10.
|
|
11. 2602-1777 - Umsókn til skipulagsfulltrúa - Lækjarflói 13
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis vegna Lækjarflóa 13. Breytingin felst í minnkun lóðar úr 4.291 m² í 3.618 m². Ekki er gert ráð fyrir breytingum á byggingarmagni, nýtingarhlutfalli eða landnotkun.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis vegna Lækjarflóa 13, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í minnkun lóðar úr 4.291 m² í 3.618 m² og að lóðin Lækjarflói 15 stækki sem því nemur. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á byggingarmagni, nýtingarhlutfalli eða landnotkun. Samþykktin er með fyrirvara um frágang uppfærðra deiliskipulagsgagna. Breytingin verði birt í B-deild Stjórnartíðinda, sbr. 44. gr. skipulagslaga. Allur kostnaður vegna umbeðinna breytinga skal greiddur af umsækjanda, m.a. deiliskipulagsbreyting og merkjalýsing.
|
|
12. 2512-5387 - Esjubraut - hraðakstur
Tillaga um að hraðatakmörkun á Esjubraut sem var samþykkt á fundi skipulags- og umhverfisráðs á fundi 336, 3. janúar 2026, verði breytt í 30 km til samræmis við aðrar takmarkanir.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að takmörkunin milli hraðahindrana verði 30 km.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





