Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

348. fundur 16. mars 2026 kl. 17:00 - 20:00 í Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson formaður
  • Sædís Alexía Sigmundsdóttir varaformaður
  • Anna Sólveig Smáradóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Berglind Sigurðardóttir verkefnastjóri
  • Lárus Ársælson umhverfisstjóri
  • Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri
  • Anna María Þráinsdóttir byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Berglind Sigurðardóttir verkefnastjóri

1. 2602-1314 : Vinnuskóli - tillögur til vinnuhóps í kjölfar samantektar á störfum og stöðu vinnuskólans 2025

Umræða um tillögur vinnuhóps að breytingum á Vinnuskóla Akraness. Jón Arnar Sverrisson, garðyrkjustjóri, situr fundinn undir þessum lið.

Skipulags-og umhverfisráð samþykkir að hækka laun flokkstjóra vinnuskólans úr launaflokki 127 í 130 til samræmis við kjör hjá leiðbeinendum í frístundastarfi hjá Þorpinu. Hækkun verði mætt með lækkun á öðrum kostnaðarliðum vinnuskólans.

 

2. 2603-2236 : Staða byggingarmála

Byggingarfulltrúi fer yfir stöðu byggingarmála2026.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar byggingarfulltrúa góða kynningu.

 

3. 2602-1451 : Jaðarsbakkar - Umsókn um að setja upp skjá á útisvæði sundlaugar

Umsókn frá Sundfélagi Akraness um að setja upp auglýsingaskjá á útisvæði sundlaugarinnar við Jaðarsbakka.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir erindi Sundfélags Akranes um að setja skjá á sundlaugarbyggingu á Jaðarsbökkum. 

 

4. 2602-1622 : Akraneshöll Viðhald þaks lausn Proseal

Lögð er fram kostnaðaráætlun um viðhald á klæðningu Akraneshallar sem byggir á tillögu frá Proseal.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til að við viðgerð á ytra byrði hússins verði þak einangrað og gaflar málaðir. Með þessu verklagi verður möguleika haldið opnum á upphitun hússins seinna meir. Einnig að viðgerðir hefjist á árinu 2027 og því verði útboð verksins á árinu 2026.

 

5. 2603-1921 : Umsagnarmál nr. 0221/2026 - Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 - Efnistöku- og efnislosunarsvæði í Hvalfjarðarsveit

Lögð fram skipulagslýsing til umsagnar vegna áforma um breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir efnistökusvæði í Hvalfjarðarsveit. Sveitarfélagið hefur gert úttekt á efnismagni sem unnið hefur verið í níu stærstu efnistökusvæðunum og hyggst sveitarfélagið gera breytingar á gildandi aðalskipulagi í samræmi við niðurstöðu vinnunnar, þar sem þess gerist þörf. Samhliða þessu er til skoðunar að skilgreina svæði fyrirefnislosun á óvirkum úrgangi.

Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 er varðar efnistöku- og efnislosunarsvæði.

Ekki er gerð athugasemd við lýsinguna á þessu stigi málsins en Akraneskaupstaður áskilur sér rétt til að koma á framfæri umsögn á síðari stigum skipulagsferlisins þegar tillaga að breytingu á aðalskipulagi liggur fyrir.

 

6. 2603-1990 : Umsagnarmál nr. 0220/2026 - Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 - Fellsendi L133625 - Bílasafn

Lögð er fram skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 og nýs deiliskipulags fyrir bílasafn á Fellsenda, dags. 12. febrúar 2026. Í breytingunni felst að skilgreint verður nýtt verslunar- og þjónustusvæði í landi Fellsenda, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu fornbílasafns ásamt tengdri þjónustu og afþreyingu. Samhliða verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Hvalfjarðarsveit óskar eftir umsögn Akraneskaupstaðar um skipulagslýsinguna.

Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 og vegna nýs deiliskipulags fyrir bílasafn á Fellsenda.

Að mati ráðsins snertir fyrirhuguð skipulagsgerð ekki beint hagsmuni Akraneskaupstaðar og gerir ráðið því ekki athugasemdir á þessu stigi málsins en áskilur sér rétt til að koma á framfæri umsögn á síðari stigum skipulagsferlisins ef tilefni þykir til.

 

7. 2601-1089 : Umsókn um Framkvæmdaleyfi - Jarðhitaleit á Akranesi

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 2. febrúar 2026 var tekin fyrir umsókn Veitna, dags. 26. janúar 2026, um framkvæmdaleyfi vegna borunar á rannsóknarholu á Akranesi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.

Framkvæmdasvæðið er ráðgert við hlið bílastæðis við enda Jaðarsbrautar, vestan við fótboltavöll Skagamanna.

Umsóknin var grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum að Jaðarsbraut 23, 27, 29, 31, 33, 35, 37, 39 og 41, Höfðabraut 2, 4, 6, 7, 8, 10, 12, 12a, 14 og 16 og Garðabraut 16 og 18.

Tvær athugasemdir bárust, annars vegar frá lögmönnum Laugardal, dags. 3. mars 2026, f.h. eigenda íbúða að Jaðarsbraut 37 og hins vegar frá húsfélagi Jaðarsbrautar 39–41, dags. 4. mars 2026, auk umsagnar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, dags. 4. mars 2026.

Boðað var til kynningarfundar fyrir íbúa vegna umsóknar Veitna þann 11. mars 2026 í sal Grundaskóla á Akranesi. Á fundinum var farið yfir framkvæmdina, framkvæmdasvæðið og fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir vegna hávaða og annarra umhverfisáhrifa.

Fyrir liggja spurningar og svör vegna umsóknarinnar, umsögn Veitna um framkomnar athugasemdir, dags. 4. mars 2026, og greinargerð skipulagsfulltrúa, dags. 13. mars 2026, þar sem fjallað er um framkvæmdina og svör við athugasemdum. Einnig lögð fram fundargerð frá kynningarfundi með hagsmunaaðilum, dags. 11. mars 2026.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar íbúum fyrir þátttöku og málefnalegar umræður á kynningarfundi um málið. Um er að ræða mikilvægt mál er snertir öryggi á afhendingu á heitu vatni til framtíðar.

Ráðið hefur farið yfir framkomnar athugasemdir sem bárust á kynningartíma og tekur undir niðurstöður greinargerðar skipulagsfulltrúa varðandi afgreiðslu þeirra.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi greinagerð skipulagsfulltrúa sem umsögn um framkvæmdina og svör við athugasemdum og að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborunar eftir jarðhita í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að teknu tilliti til umsagnar skipulagsfulltrúa og svara við athugasemdum.

Ráðið leggur áherslu á að við framkvæmdina verði tryggt öryggi vegfarenda, að ónæði gagnvart nágrönnum verði haldið í lágmarki og að umgengni á svæðinu verði góð.

Viðbótarskilyrði fyrir leyfinu verði að áður en framkvæmdir hefjast framkvæmi Veitur ástandsúttekt á nærliggjandi húsnæði m.t.t. athugasemda íbúa.

 

8. 2512-5542 : Breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna - Hringtorg Akranesvegur

Tillaga aðbreytingu á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna. Gert er ráð fyrir nýju hringtorgi við Akranesveg. Breytingin felur í sér stækkun skipulagsvæðis, aðlögun á göngustíg skv. uppdrætti og gerð hringtorgs við gatnamót Akranesveg, Akrafjallsveg og Lækjaskógar. Vinnslutillagan var kynnt 27. febrúar - 12. mars sl. og kynningarfundur haldinn á Dalbraut 4, þann 5 mars sl. Lögð er fram fundargerð kynningarfundar ásamt umsögnum sem bárust á kynningartíma vinnslutillögufrá Vegagerðinni, Veitum og Minjastofnun.Lögð er fram uppfærð tillaga þar sem tillit hefur verið tekið til framkominna umsagna.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst skv. 1 mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/201.

 

9. 2602-1509 - Breyting á deiliskipulag Flóahverfis v. hringtorgs

Breytingin felst í að breyta skipulagsmörkum samhliða breyttu deiliskipulagi Garðalaundar og Lækjarbotna vegna nýs hringtorgs.Vinnslutillaga var kynnt 27. febrúar - 12. mars sl. og kynningarfundur haldinn á Dalbraut 4, þann 5. mars sl. Fundargerð kynningarfundar lögð fram ásamt umsögnum sem bárust á kynningartíma frá Vegagerðinni, Veitum og Minjastofnun.

Skipulags- og umhverfisráð telur að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir breytinguna.

Ráðið felur verkefnastjóra að ganga frá gögnum til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda þegar afgreiðslu breytinga á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna er lokið.

 

10. 2601-0074 : Kirkjubraut 4-6 umsókn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram að lokinni grenndarkynningu tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 4–6, ásamt minnisblaði verkefnastjóra að viðbrögðum við fram kominni athugasemd sem barst f.h. íbúa við Suðurgötu.

Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir framkomnar athugasemdir íbúa við Suðurgötu og umsögn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands vegna grenndarkynningar á breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 4–6. Ráðið samþykkir framlagt minnisblað verkefnastjóra sem svar við framkominni athugasemd. Ráðið telur að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur hvorki í sér aukið byggingarmagn né breytingu á hæð eða nýtingarhlutfalli og er í samræmi við Aðalskipulag Akraness 2021–2033. Framkomin athugasemd gefur ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Skipulags- og umhverfisráð vísar tillögunni til staðfestingar í bæjarstjórn og felur verkefnastjóra að ganga frá gögnum til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

 

11. 2602-1450 - Æðaroddi - rekstrarhringur (Dreyri)

Hestamannafélagið Dreyri óskar eftir framlengingu á fyrri heimild fyrir reiðhring við Æðarodda til 31.7.2027.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að framlengja heimild fyrir reiðhring til 31.7.2027. Þá verði reglur og fyrirkomulag yfirfarið og reynslan metin.

 

12. 2512-5423 : Grassláttur útboð 2026

Lögð fram opnunarskýrsla dags. 10. marsíútboðinu Grassláttur 2026. Í útboðsverkið bárust tilboð frá eftirfarandi þremur aðilum: 1. Garðlist ehf kt. 450598-2409. 101.115.000 kr. 2. Gísli Jónsson ehf kt. 500602-3090. 171.360.000 kr. 3. Garðaþjónusta Sigurjóns ehf kt. 560719-0780. 102.960.000 kr.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að fela umhverfisstjóra að vinna málið áfram.

 

13. 2603-2346 : Yfirlit helstu verkefna á skipulags- og umhverfissviði

Tímalína og áhersluverkefni sem unnið er að á skipulags- og umhverfissviði 2026

Sviðsstjóri fór yfir stöðu helstu verkefna á sviðinu, þar með talið áhersluverkefni frá skipulags- og umhverfisráði.

 

 

Fundi slitið kl.20:00, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu