Skipulags- og umhverfisráð
1. 2601-1089 : Umsókn um Framkvæmdaleyfi - Jarðhitaleit á Akranesi
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs sem haldinn var þann 02. febrúar 2026 var tekin fyrir umsókn Veitna um framkvæmdaleyfi vegna borunar á rannsóknarholu á Akranesi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdasvæðið er ráðgert við hlið bílastæðis við enda Jaðarsbrautar, vestan við fótboltavöll Skagamanna. Framkvæmdaleyfi var grenndarkynnt skv. 3. mgr. 43.gr fyrir lóðarhöfum Jaðarsbraut, 23,27,29,31,33,35,37,39,41 og Höfðabraut 2,4,6,7,8,10,12,12a,14,16. Garðabraut 16,18. Tvær athugasemdir bárust ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlitsins.
Skipulags- og umhverfisráð frestar málinu, ákveðið að haldinn verður sameiginlegur kynningarfundur með Veitum og íbúum sem fyrst.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





