Skipulags- og umhverfisráð
1. 2602-1314 - Vinnuskóli - tillögur til vinnuhóps í kjölfar samantektar á störfum og stöðu vinnuskólans 2025
Sameiginlegur dagskráliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs um tillögur vinnuhóps breytingar í tengslum við Vinnuskóla Akraness.
Farið er yfir niðurstöður vinnuhóps um vinnuskólann 2026. Sviðsstjórum skóla- og frístundasviðs og skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna málið áfram.
2. 2512-5159 - Endurskoðun Deiliskipulag Ægisbrautar - Undirbúningur
Sameiginlegur dagskráliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs. Undirbúningur fyrir frumhönnun nýjum leikskóla og nýtt deiliskipulag Ægisbrautar, skv. Aðalskipulag Akraness 2021-2033.
Skipulags- og umhverfisráð stefnir að því að samþykkja verkefnalýsingu á næsta fundi ráðsins.
3. 2601-0034 - Leikskólamál - Valkostagreining 2025
Sameiginlegur dagskráliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs. Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs fer yfir valkostagreiningu um uppbyggingu og framtíðarþörf leikskólahúsnæðis á Akranesi 2026 - 2030.
Skipulag- og umhverfisráð felur sviðstjóra skóla- og frístundaráðs að vinna málið áfram í samstarfi við verkefnastjóra framkvæmda. Niðurstöður greiningar gera ráð fyrir fjölgun deilda árið 2027 skv. fjárhagsáætlun Akraskaupstaðar. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við breytinga á skipulagi við leikskólann Akrasel.
4. 2601-0831 - Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - endurbætur á aðstöðu
Sameiginlegur dagskráliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs. Forstöðumaður íþróttamannvirkja óskar eftir að skoðaðir verði möguleikar á endurbótum í sameiginlegum rýmum íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum s.s. búningsklefum, afgreiðslu og aðgengi að sundlaug í kjölfar fjölgunar gesta á svæðinu. Daníel Glad Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja ásamt Heiðari Mar Björnssyni framkvæmdastjóra ÍA sitja þennan fundarlið.
Skipulags- og umhverfisráð og skóla- og frístundaráð veita verkefnastjóra mannvirkja og forstöðumanni Íþróttamannvirkja umboð til að framkvæma kostnaðarmat og móta frekar breytingartillögur.
5. 2602-1449 - Jaðarsbakkar klefar íþróttahúss - Skilrúm og augnskanni
Samseinlegur liður frá forstöðumanni íþróttamála- og íþróttamannvirkja og framkvæmdarstjóra ÍA varðandi skipulag og nýtingu á búningsklefum í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Daníel Glad Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja ásamt Heiðari Mar Björnssyni framkvæmdastjóra ÍA sitja þennan fundarlið.
Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umfjöllunar í bæjarráði.
6. 2601-1144 - Uppbygging skammtímadvalar á Akranesi
Á fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar sl. var uppbygging skammtímadvalar til umræðu. Var samþykkt tillaga þess efnis að gert verði mat á þörf fyrir skammtímavistunarúrræði til að geta metið hverskonar úrræði og form þarf og hvaða möguleikar eru á samnýtingu á öðrum úrræðum fyrir þjónustu við fatlaða. Í framhaldinu verði skoðað hvernig húsnæði þarf til að mæta þjónustuþörfunum. Sá hluti lóðarinnar við Laugarbraut 6, þar sem nú stendur fyrrum áhaldahús bæjarins, verði tekinn frá til hugsanlegrar uppbyggingar á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Ráðist verði í kostnaðargreiningu svo unnt sé að áætla heildarkostnað verkefnisins og leggja fram raunhæfa áætlun. Því næst verði hafist handa við skipulags- og hönnunarvinnu á svæðinu með það að markmiði að nálægð við aðra þjónustu, s.s. Bjarnalaug og búsetukjarnann við Laugarbraut, nýtist sem best. Var málinu vísað til velferðar- og mannréttindaráðs til úrvinnslu og eftirfylgni. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 03.02.2026 var gerð eftirfarandi bókun: Velferðar- og mannréttindaráð lýsir ánægju sinni yfir ákvörðun bæjarstjórnar um uppbyggingu skammtímadvalar á Akranesi. Ráðið hefur um langt skeið fjallað um nauðsyn slíks úrræðis og m.a. fengið kynningar, farið og skoðað skammtímadvalir og látið framkvæma þarfagreiningar.
Velferðar- og mannréttindaráð leggur til að stofnaður verði verkefnahópur þvert á svið Akraneskaupstaðar til að vinna heildræna áætlun um uppbyggingu skammtímadvalar við Laugarbraut 6. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. Málinu vísað til umfjöllunar í Skipulags- og umhverfisráði og til kynningar í notendaráði.
Skipulags- og umhverfisráð tekur einnig jákvætt í bókun bæjarstjórnar Akraness um uppbyggingu skammtímadvalar við Laugarbraut 6. Ráðið tekur jafnframt jákvætt í stofnun starfshóps og telur mikilvægt að helstu hagsmunaaðilar komi að verkefninu frá upphafi.
7. 2601-1130 - Samfélagsmiðstöðin Dalbraut 8 - uppbygging- framkvæmd verkefnisins
Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 03.02.2026 fagnaði ráðið því að verkefnið er á fjárhagsáætlun 2026 og óskaði eftir upplýsingum um stöðu útboðsgagna samfélagsmiðstöðvar frá skipulags- og umhverfisráði. Velferðar- og mannréttindaráð telur mikilvægt að útboð fari fram sem fyrst.
Skipulags- og umhverfisráð óskar eftir sameiginlegum fundi með velferðar- og mannréttindaráði ásamt skóla- og frístundaráði áður en að útboð fer fram.
8. 2602-1588 - Tjaldsvæði í Kalmansvík - framlenging á samningi um rekstur
Framlenging á samning til eins árs um rekstur tjaldsvæðisins.
Akraneskaupstaður hefur í samræmi við ákvæði gildandi rekstrarsamning, framlengt í tvígang samning við leigutaka um rekstur tjaldsvæðisins í Kalmansvík. Í ljósi þess að núna er hafin vinna í mótun ferðaþjónustustefnu um eflingu og uppbyggingu ferðaþjónustu á Akranesi þá metur ráðið skynsamlegt að framlengja núverandi rekstrarsamning til 31. desember 2026. Stefnan mun líta dagsins ljós þegar nær dregur sumri og hjálpar okkur við undirbúning útboðs tjaldsvæðisins með möguleikum á fyrirhugaðri uppbyggingu smáhýsa á svæðinu. Ráðið telur einnig skynsamlegt að hafist verði handa strax í sumar að gerð útboðsgagna og hefja útboð í haust 2026 til að tryggja góðan undirbúning mögulega nýs rekstraraðila að svæðinu fyrir ferðasumarið 2027.
9. 2601-1068 - Úttekt á Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar 31.10.2025
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveita óskar eftir að samstarfsnefnd sveitarfélaganna um Slökkviliðið komi saman til umfjöllunar og úrvinnslu erindis frá HMS og í kjölfarið verði drög að svari til HMS send inn til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
Skipulags- og umhverfisráð óskar eftir að Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri, komi inn á næsta fund skipulags- og umhverfisráðs til þess að fara betur yfir niðurstöður úttektar og mótun úrbótaáætlunar.
10. 2602-1247 - Reglur um innheimtu gjalda af jarðefnatippa
Lögð er fram tillaga að reglum um innheimtu gjalda vegna losunar á jarðefnum á jarðefnatipp. Samkvæmt breytingunni er rekstraraðila heimilt að hamla eða loka aðgengi að jarðefnatippnum gagnvart viðskiptavinum sem ekki uppfylla ákvæði reglna, þar á meðal um greiðslu gjalda og önnur skilyrði notkunar.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillögu um breytingu á reglum um jarðefnatipp.
11. 2601-0933 - Bíóhöll Ástandsskýrsla 2026
Ástandsskýrsla bíóhallar 2026 lögð fram.
Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að fara í verðkönnun á minniháttar viðhaldi utanhúss í samræmi við niðurstöður ástandsskýrslu
12. 2602-1369 - Vesturgata 62 - Niðurrif kostnaðaráætlun
Lögð er fram kostnaðaráætlun vegna niðurrifs á Vesturgötu 62.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir niðurrif á Vesturgötu 62. Húsið er ónothæft og í mjög slæmu ástandi samkvæmt ástandsskýrslu Verkís frá 2022. Ráðið felur verkefnastjóra að óska eftir heimilda Ríkiseigna til niðurrifs og þátttöku þeirra í því verki.
13. 2601-0088 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Smiðjuvellir 17
Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa vegna breytingar á deiliskipulagi Smiðjuvalla vegna Smiðjuvalla 17. Sótt er um breytingu á stærð lóðar, breytingu á nýtingarhlutfalli lóðar, ásamt heimild að fjölga bílastæðum á lóð.
Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
14. 2601-0700 - Framhaldsmál - Bjarkargrund 26 - Umsókn til skipulagsfulltrúa
Umsókn um breytingu á húsnæði á lóðinni Bjarkargrund 26, aukið byggingarmagn á lóð, hækkun hámarkshæð.
Skipulags- og umhverfisráð hafnar umsókn um hækkun íbúðarhúss að Bjarkargrund 26. Ráðið telur að fyrirhuguð hækkun fari geng gildandi byggingarskilmálum hverfisins, þar sem kveðið er að um hámarkshæð og samræmi byggðar. Jafnframt er það mat ráðsins að hækkun hússins myndi hafa neikvæð grenndaráhrif með mögulegri skerðingu á útsýni og friðhelgi nærliggjandi fasteigna. Þá telur ráðið að samþykkt umsóknarinnar myndi skapa slæmt fordæmi í hverfinu og grafa undan þeirri heildarmynd og samræmi sem lagt hefur verði upp með í skipulagi svæðis. Ráðið tekur hinsvegar jákvætt í að stækka byggingarreit og aukið byggingarmagn á einni hæð.
15. 2601-0903 - Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi - Jaðarsbraut 18
Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa vegna Jaðarsbrautar 18. Óskað er eftir að færa bygginareit 2 metra til austurs. 1,5 metra til suðurs. Hugmynd er að vera með hús á tveim hæðum með tvöföldum bílskúr á lóðinni. Aðrir skipulagsskilmálar munu gilda. Einnig er óskað eftir hækkun á mænishæð um 0,90 metra eða frá 7,1 í 8 metra.
Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að finna lausn á hækkun mænishæðar á reitum A og B.
16. 2512-5542 - Breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna - Hringtorg Akranesvegur
Veruleg breyting á deiliskipulag Garðalundar og Lækjarbotna vegna nýtt hringtorg við Akranesveg. Breytingin felur í sér stækkun skipulagsvæðis, aðlögun á göngustíg skv. uppdrætti og gerð hringtorgs við gatnamót Akranesveg, Akrafjallsveg og Lækjaskógar.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að eftirfarandi breyting verði kynnt í samræmi við 1. málsgr.
43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Í núverandi gögnum er gert ráð fyrir einum undirgöngum milli Flóahverfis og Skógarhverfis en það var einróma álit ráðsmanna að nauðsynlegt er samhliða þessari framkvæmd að tryggt verði meira og betra aðgengi norðanmegin hringtorgs með undirgöngum eða röri upp á framtíðaruppbyggingu Flóahverfis og auknum tengingum við Akraness. Sér í lagi yrði það betri tenging fyrir reiðfólk og íbúa vestan Akrafjallsvegar.
17. 2602-1509 - Breyting á deiliskipulag Flóahverfis v. hringtorgs
Veruleg breytingin á deiliskipulag flóahverfis vegna hringtorgs við gatnamót Akrafjallsveg og Akranesveg, breytingin felst í að aðlaga stíga að hönnun hringtorgs ásamt því að breyta skipulagsmörkum.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að eftirfarandi breyting verði kynnt í samræmi við 1. málsgr.
43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Í núverandi gögnum er gert ráð fyrir einum undirgöngum milli Flóahverfis og Skógarhverfis en það var einróma álit ráðsmanna að nauðsynlegt er samhliða þessari framkvæmd að tryggt verði meira og betra aðgengi norðanmegin hringtorgs með undirgöngum eða röri upp á framtíðaruppbyggingu Flóahverfis og auknum tengingum við Akraness. Sér í lagi yrði það betri tenging fyrir reiðfólk og íbúa vestan Akrafjallsvegar.
18. 2601-0968 - Deiliskipulag - Skógarhverfi 3C - Skógarlundur 36 - 38 - 40
Breyting á deiliskipulagi Skógarhverfis vegna Skógarlunds 36, 38 og 40. Breytingin felur í sér að lóð nr. 36 er breytt úr einnar hæðar einbýlishúsi í raðhús á einni hæð með þremur íbúðum.
Raðhúsalóð nr. 38 og 40 er breytt í þrjár lóðir; nr . 38, 40 og 40a og verða fjórar íbúðir á hverri lóð. Íbúðum fjölgar úr 10 í 15. nýtingarhlutfall fer úr 0,5 í 0,45.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að eftirfarandi breyting verði grenndarkynnt í samræmi við
- mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 fyrir lóðarhöfum Skógarlundur 17,19 og 42. Allur kostnaður sem verður til af breytingunni fer á lóðarhafa.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





