Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

344. fundur 02. febrúar 2026 kl. 17:00 - 20:57 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson formaður
  • Sædís Alexía Sigmundsdóttir varaformaður
  • Anna Sólveig Smáradóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis
  • Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi
  • Lárus Ársælsson umhverfisstjóri
  • Sigurður Páll Harðarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis

1. 2601-0829 - Erindi frá Fimleikafélagi ÍA um aðgengi og öryggi í stúku í fimleikahúsi

Fimleikafélag ÍA óskar eftir því að sett verði upp handrið í stúkuna í fimleikahúsinu til að tryggja betur aðgengi og öryggi. Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umræðu hjá skipulags- og umhverfisráði.

Skipulags- og umhverfisráð vísar málinu til rekstrarstjóra og verkefnastjóra til frekari skoðunar og skila inn minnisblaði um útfærslur og kostnað til ráðsins.

2. 2602-1164 - drög að frumvarpi um stofnun innviðafélags

Umsögn lögð fram vegna frumvarps í samráðsgátt um stofnun sérstaks innviðafélag sem heldur utan um fjármögnun og uppbyggingu tiltekinna samgöngumannvirkja. Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn.

3. 2602-1166 - Samgönguáætlun - Umsögn

Samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030 lögð fram til umræðu. Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Skipulags- og umhverfisráð felur bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa að útbúa og skila inn umsögn Akraneskaupstaðar vegna fyrirliggjandi samgönguáætlunar. Haraldur Benediktsson víkur af fundi.

4. 2601-0700 - Framhaldsmál - Bjarkargrund 26 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Umsókn um breytingu á húsnæði á lóðinni Bjarkargrund 26, aukið byggingarmagn á lóð, hækkun hámarkshæð.

Skipulags- og umhverfisráð frestar afgreiðslu málsins og hyggst taka það upp að nýju á næsta fundi ráðsins.

5. 2601-0903 - Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi - Jaðarsbraut 18

Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi Sementsreits vegna Jaðarsbrautar 18. Breytingin felur í sér tilfærslu byggingarreits, þar sem hann færist 2 m til austurs og 1,5 m til suðurs. Gert er ráð fyrir tveggja hæða húsi með tvöföldum bílskúr á lóðinni. Aðrir skipulagsskilmálar haldast óbreyttir.

Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

6. 2601-1120 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Óðinsgata 6

Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa vegna breytinga á deiliskipulagi Sementsreits vegna Óðinsgötu 6. Breytingar fela í sér að jarðhæð verði nýtt sem atvinnuhúsnæði, stækkun grunnflatar atvinnurýmis í allt að 360 m² og breytingu á leyfilegri heildarfermetratölu ofanjarðar og verði 1060 fm, þá 6 íbúðir á 3 hæðum (tannlæknastofa á fyrstu hæð, 3 íbúðir á annarri hæð og 3 íbúðir á þriðju hæð.)

Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

7. 2601-0968 - Deiliskipulag - Skógarhverfi 3C - Skógarlundur 36 - 38 - 40

Breyting á deiliskipulagi Skógarhverfis 3c fyrir lóðir 36, 38 og 40 við Skógarlund. Breytingin felst í að lóð nr. 36 er breytt úr einnar hæðar einbýlishúsi í raðhús á einni hæð með þremur íbúðum, raðhús á lóð nr. 38, 40 og nýrri lóð 40a verða fjórar íbúðir á hverri lóð, íbúðum fjölgar úr 10 í 15 og breyting er gerð á nýtingarhlutfalli lóða verður 0,45 í stað 0,5.

Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

8. 2601-0791 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Álfalundur 55

Óskað er eftir upplýsingum um möguleika á að fá gistileyfi fyrir skammtímaleigu fasteignarinnar umfram 90 daga að Álfalundi 55. Jafnframt er óskað eftir leiðbeiningum um skilyrði og umsóknarferli slíks leyfis, verði það talið mögulegt.

Skipulags- og umhverfisráð tekur neikvætt í erindið. Samkvæmt lögum nr. 85/2007 er einungis heimilt að leigja út íbúðarhúsnæði án rekstrarleyfis í allt að 90 daga á ári. Umfram það telst starfsemin rekstrarleyfisskyld og krefst viðeigandi skipulagsheimilda, sem ekki eru til staðar á viðkomandi stað. Svæðið er samkvæmt skipulagi eingöngu ætlað íbúðarhúsnæði, og gistiþjónusta umfram 90 daga samræmist ekki notkun þess.

9. 2601-1089 - Umsókn um Framkvæmdaleyfi - Jarðhitaleit á Akranesi

Umsókn Veitna um framkvæmdaleyfi vegna rannskókna á jarðhita á Akranesi við Jaðarsbrauts skv. 13.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012. Rannsóknarholan er ráðgerð við hlið bílastæðiðs við enda Jaðarsbrautar, vestan við fótboltavöll Skagamanna, óskað er eftir leyfis fyrir borun nýrrar holu niður á 800-1.200m dýpi, borað verður með 40 tonna jarðbor. Borplan þarf að vera 1.200 fm og aðkoma að framkvæmdasvæði verði um Jaðarsbraut. Áætlað er að framkvæmd muni fara fram vorið 2026 og áætlaður bortími er 6-10 vikur. Ef holan reynist nýtanleg mun veitur hefja samtal við sveitarfélgaið um nýtingu ásamt skipulagsbreytingu og nýtingarleyfi.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna framkvæmdaleyfi skv. 3. mgr. 43.gr fyrir lóðarhöfum Jaðarsbraut, 23,27,29,31,33,35,37,39,41 og Höfðabraut 2,4,6,7,8,10,12,12a,14,16. Garðabraut 16,18.

10. 2512-5159 - Endurskoðun Deiliskipulag Ægisbrautar - Undirbúningur

Undirbúiningur fyrir frumhönnun nýs leikskóla og nýtt deiliskipulag Ægisbrautar.

Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að koma með drög að verkefnalýsingu til samþykktar á næsta fundi ráðsins.

11. 2512-5187 - Breyting á deiliskipulag - Akraneshöfn Fylling

Breyting á Deiliskipulag Akraneshöfn, landfylling í samræmi við Aðalskipulag Akraness, fyrir hafsækinn iðnað.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar skipulagsfulltrúa fyrir yfirferðina og felur henni að vinna málið áfram.

12. 2512-5540 - Uppbygging mannvirkja á Jaðarsbakka starfshópur

3. Fundargerð starfshóps upbbygingu mannvirkja á Jaðarsbökkum. 4. Fundargerð starfshóps upbbygingu mannvirkja á Jaðarsbökkum.

Fundargerðir lagðar fram.

13. 2512-5043 - Gönguþverun við Akralund 18 - athugasemdir við staðsetningu

Íbúi gerir athugasemd við staðsetningu gönguþverunar yfir Akralund.

Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfisstjóra að leggja fram drög að svörum við fyrirspurninni.

14. 2601-1086 - Lambhúsasund - Aflagning siglingamerkja

Erindi frá Faxaflóahöfnum um aflagningu siglingamerkja í Lambhúsasundi

Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemd við aflagningu siglingamerkja í Lambhúsasundi.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu