Skipulags- og umhverfisráð
Dagskrá
1.Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa - Skagabraut 5
2505231
Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa um fyrirhugaða stækkun á svölum. Óskað er eftir afstöðu til Skipulags- og umhverfisráð til breytingarinnar.
Skipulags- og umhverfisráð tekur neikvætt í erindið. Eftirfarandi útfærslu um stækkun á svölum. Eftirfarandi útfærsla er ekki í takt við núveranadi hús, svalir sem eru núveranadi á húsinu eru úr stáli. Athugasemd er sett á útfærslu svala með einni burðarsúlu vegna árekstrar hættu. Svalirnar hafa neikvæð áhrif á birtuskilyrði á 2. hæð hússins. Svalirnar hafa mikil áhrif á götumynd Skagabrautar.
2.Skólabraut 26 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa
2506057
Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa frá Heimir Bergmann fyrir hönd Eignaberg ehf. um að breyta verslunarhúsnæði á jarðhæð á Skólabraut 26 í íbúð.
Markmið deiliskipulags Akratorgsreit er m.a. að styrkja og endurvekja mikilvægan kjarna í bæjarmyndinni. Eitt af meginatriðum í deiliskipulaginu er að gert sé ráð fyrir alhliða miðbæjarstarfsemi á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum. Breytingin í íbúðarrými á jarðhæð getur því ekki talist vera í samræmi við markmið núverandi deiliskipulags. Fyrirspurnin samræmist ekki meginmarkmiðum Aðalskipulags Akraness og núverandi deiliskipulags Akratorgsreits. Skipulags- og umhverfisráð tekur því neikvætt í fyrirspurnina.
3.Suðurgata 18 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa
2506060
Fyrirspurn lóðarhafa Suðurgötu 18 um stækkun lóðar í suður átt að Akursbraut.
Skipulags og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið, biður umsækjandi að leggja inn formleg deiliskipulagsgögn til grenndarkynningar. Deiliskipulag þarf að vera unnið af aðila sem hefur heimild til að breyta skipulagi.
4.Nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum - nýting
2406016
Knattspyrnufélag ÍA óskar eftir heimild til að nýta hluta geymslurýmis í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum sem félagsrými fyrir aðildarfélög ÍA.
Anna María Þráinsdóttir verkefnastjóri sat fund skóla- og frístundaráðs um málið.
Anna María Þráinsdóttir verkefnastjóri sat fund skóla- og frístundaráðs um málið.
Til þess að hægt sé að fara í svona breytingu á húsnæði þarf að gera brunahönnun og breyta rýminu þar sem hreinlætisaðstæða er til staðar sem og flóttaleiðir. Slíkt kostar umtalsvert og mun Akraneskaupstaðar ekki kosta slíkar breytingar.
Ráðið leggur til að skóla- og frístundaráð skoði nánar þessa beiðni sem og einnig hvernig geymslumálum skal þá háttað ef þetta rými breytist. Á sínum tíma þegar skipulag nýja íþróttahúsins var í fullum gangi var lögð mikil áhersla á geymslurými og átti þetta tiltekna rými að mæta þeirri þörf.
Ráðið lýsir yfir vilja að taka sameignlegan fund með skóla- og frístundaráði um málið.
Ráðið leggur til að skóla- og frístundaráð skoði nánar þessa beiðni sem og einnig hvernig geymslumálum skal þá háttað ef þetta rými breytist. Á sínum tíma þegar skipulag nýja íþróttahúsins var í fullum gangi var lögð mikil áhersla á geymslurými og átti þetta tiltekna rými að mæta þeirri þörf.
Ráðið lýsir yfir vilja að taka sameignlegan fund með skóla- og frístundaráði um málið.
5.Suðurgata 106 - Umsókn um byggingarlóð
2505017
Umsókn um lóð að Suðurgötu 106 og jafnframt fyrirspurn um breytingu á deiliskipulag Sementsreit þar sem sótt er um að fjölga íbúðum á lóð.
Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa vinna málið áfram.
Fundi slitið - kl. 18:15.