Skipulags- og umhverfisráð
Dagskrá
1.Barnvænt sveitarfélag - lokaskýrsla og viðurkenning
2505112
Lokaskýrsla Akraneskaupstaðar um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í gegnum verkefnið Barnvæn sveitarfélög lögð fram til kynningar.
Akranes mun hljóta formlega viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag þann 2. júní 2025. Undir þessum lið sat Sólveig Sigurðardóttir, deildarstjóri farsældaþjónustu barna.
Akranes mun hljóta formlega viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag þann 2. júní 2025. Undir þessum lið sat Sólveig Sigurðardóttir, deildarstjóri farsældaþjónustu barna.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar Sólveigu fyrir kynninguna og óskar öllum sem að komu að verkefninu til hamingju með viðurkenninguna.
2.Stefnumótun Akraneskaupstaðar
2209259
Verkefnaskrá stjórnsýslu Akraneskaupstaðar tekin fyrir.
Umhverfis- og skipulagsráð fór yfir stöðu verkefna og stefnir á að fara yfir verkefnaskrá að nýju í ágúst 2025.
3.Sjómannadagurinn 2025
2505091
Menningar- og safnanefnd vill koma upplýsingum um þyrluflug á Sjómannadaginn. Viðkomandi er með öll þau leyfi sem þarf til að bjóða upp á útsýnisflug. Björgunarfélagið verður með gæslu á svæðinu og verður landhelgisgæslunni gert viðvart um þessa viðbót við dagskránna.
Hugmyndin var að nýta þyrlupallinn við fótboltavöllinn, en það er sundmót á Jaðarsbökkum á sama tíma - Nefndin óskar eftir hugmyndum af staðsetningum.
Hugmyndin var að nýta þyrlupallinn við fótboltavöllinn, en það er sundmót á Jaðarsbökkum á sama tíma - Nefndin óskar eftir hugmyndum af staðsetningum.
Skipulags og umhverfisráð leggur til að skoðað verði með möguleika á staðsetningu á bílaplani við útivistarvæðið á Breið.
4.Bjarkargrund 26 - Umsókn til skipulagsfulltrúa
2504121
Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa varðandi skipulagsbreytingu á Bjarkargrund 26. Sótt er um að bæta við 2. hæð.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir minnisblað skipulagsfulltrúa sem svar ráðsins við fyrirspurn umsækjanda.
5.Viðhald gatna og stíga 2025 - Útboð
2502155
Lögð fram útboðsgögn fyrir Viðhald gatna og stíga 2025.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða tillögu umhverfisstjóra um útboð á gatna- og gangstéttaviðhaldi.
6.Vesturgata 133 - fyrirspurn til skipulagsfulltrúa
2502165
Óskað er eftir afstöðu Skipulags- og umhverfisráðs á fyrirhugðum breytingum og stækkun á einbýlishúsi á lóðinni Vesturgötu 133.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir minnisblað skipulagsfulltrúa sem svar við fyrirspurn um breytingar á einbýlishúsi á lóðinni Vesturgötu 133.
7.Sementsreitur útboð á byggingarrétti C4 og E
2505171
Lagt fyrir til samþykktar útboðsgögn á Byggingarrétti sementsreit á reit C4 og E.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð að bjóða út fyrirliggjandi útboðsgögn á byggingarrétti á Sementsreit. Um er að ræða C4 og E reit.
8.Umferðaröryggi í Skógahverfi
2505191
Lögð fram tillaga um gönguþveranir í Skógarhverfi 1 og 2.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu umhverfisstjóra um bætt umferðaröryggi í Skógarhverfi.
Fundi slitið - kl. 19:29.