Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

325. fundur 05. maí 2025 kl. 17:00 - 19:00 í Klöpp á Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson formaður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir varaformaður
  • Anna Sólveig Smáradóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi
  • Lárus Ársælsson umhverfisstjóri
  • Anna María Þráinsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags og umhverfismála
Dagskrá

1.Nýtt deiliskipulag Kirkjubraut

2502161

Kynning á umferðargreiningu á Kirkjubraut. Albert Skarphéðinsson frá Elfu kynnir niðurstöður á umferðar talningu á Kirkjubraut.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar Alberti fyrir greinagóða kynningu og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnu í málinu.
Gestir víkja af fundi.

2.Grundaskóli - lausar kennslustofur (gámar)

2502156

Umræða um sölu og nýtingu á lausum kennslustofum (gámum) við Grundaskóla.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að setja allar lausar kennslustofur í almennt útboðsferli.

3.Bjarkargrund 26 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

2504121

Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa varðandi skipulagsbreytingu á Bjarkargrund 29. Sótt er um að bæta við 2. hæð.
Skipulags- og umhverfisráð frestar afgreiðslu málsins.

4.Grundaskóli - lóðarhönnun 2025

2504198

Verkefnastjóri kynnir stöðu hönnunar á lóð Grundaskóla.
Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að kynna fyrirliggjandi hönnun og tillögu að forgangsröðun fyrir skóla- og frístundaráði.

5.Álmskógar 17 - umsókn til skipulagsfulltrúa

2302122

Uppfærð gögn vegna sólstofu á Álmskógum 17 lögð fram.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til að erindið verði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verður fyrir lóðarhöfum Álmskóga 15, 16, 18, 19, 20 og Eikarskóga 8 og 10.

Fundi slitið - kl. 19:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00