Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

249. fundur 31. október 2022 kl. 17:00 - 18:30 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson formaður
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Grenndarstöðvar - staðsetning

2204096

Staðsetning grenndarstöðva á Akranesi.
Björn Breiðfjörð Gíslason, sat undir þessum dagskrárlið.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að hafin verði undirbúningur að grenndarstöðvum við Vesturgötu 27, Dalbraut 1, bílastæði við Jörundarholt og í framhaldinu verði horft til fleiri staðsetninga.

Horft verði til úrgangsflokka sem innihalda málma, gler, pappír, plast, textíl.

2.Jaðarsbakkar 1 skilti - fyrirspurn til byggingarfulltrúa

2210059

Knattspyrnudeild ÍA er að óska eftir að setja upp skilti á stúkuna.
Skipulags- og umhverfisráð getur ekki orðið við erindinu.

3.Deiliskipulag Skógarhverfi áf. 3A - Skógarlundur 4, breyting

2205011

Umsókn um að breyta skipulagi Skógarhverfis áfanga 3A, vegna lóðar nr. 4 við Skógarlund. Breyting felst í að breyta nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,35 í 0,39 og heimilt verður að hluti byggingar verður á tveimur hæðum. Breytingin var grenndarkynnt frá 29. september til og með 29. október 2022. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna. Skipulagsbreytingin verði send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild stjórnartíðinda.

4.Deiliskipulag - Garðabraut 1

2204191

Kynningargögn vegna áframhaldandi vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir Garðabraut 1.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að haldinn verði kynningarfundur um gerð nýs deiliskipulag við Garðabraut 1.

5.Deiliskipulag Smiðjuvalla - fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

2210185

Fyrirspurn um heimild til að breyta deiliskipulagi á Smiðjuvöllum 12-18.
Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í fyrirspurnina. Fyrirspurn felst í að breyta deiliskipulagi á Smiðjuvöllum 12-22 úr atvinnu-, verslun- og þjónustuhúsnæði í íbúðar-, verslunar- og þjónustuhúsnæði. Byggingarmagn eykst úr 32.350 fm í 45.385 fm.

Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Fundi slitið - kl. 18:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00