Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

27. fundur 15. febrúar 2016 kl. 16:15 - 18:30 í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson formaður
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Valgarður L. Jónsson aðalmaður
  • Kristín Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Karitas Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
  • Íris Reynisdóttir garðyrkjustjóri
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Dagskrá

1.Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2016

1512116

Garðyrkjustjóri fór yfir hugmyndir um framkvæmdir á stofnanalóðum Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð þakkar góða kynningu.

Farið yfir framkvæmdarverkefni 2016. Stefnt að því að halda opinn íbúafund í mars um framkvæmdir ársins.

2.Aðalskipulag - endurskoðun

1409116

Farið yfir áhersluatriði frá skipulagshönnuði.

3.Deilisk. - Skógarhverfi 2. áfangi, Eyrarlundur 2-4-6.

1601121

Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið. Bent skal á að allur kostnaður vegna breytinganna fellur á lóðarhafa hvort sem um er að ræða lagnabreytingar eða aðrar breytingar sem kunna að falla til.

4.Deilisk. - Dalbraut-Þjóðbraut, Dalbraut 6

1405059

Málið kynnt.

5.Samræmd lóðaafmörkun sveitarfélaga

1601145

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 8. jan. 2016 varðandi samræmda lóðaafmörkun.
Lagt fram.

6.Suðurgata 64

1505065

Sviðsstjóra falið að gera verðkönnun um niðurrif á Suðurgötu 64.

7.Kirkjugarður - stækkun

1512060

Málið kynnt. Sviðsstjóra falið að ræða við stjórn kirkjugarðs Akraness um framhald málsins.

8.Sorphirða - framlenging á samningi

1501126

Skipulags- og umhverfisráð leggur til að farið verði í útboð á sorphreinsun til fjögurra ára (2016-2020) í samvinnu við Borgarbyggð.

9.Jaðarsbakkar 1 - útisvæði sundlaugar.

1601378

Farið yfir endurnýjaðar tillögur Basalt varðandi hönnun á útisvæði við Jaðarsbakkalaug.

Fundi slitið - kl. 18:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00