Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2009-2014)

106. fundur 03. febrúar 2014 kl. 16:00 - 18:20 í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Guðmundur Þór Valsson formaður
  • Björn Guðmundsson aðalmaður
  • Sigurður V Haraldsson aðalmaður
  • Reynir Þór Eyvindsson aðalmaður
  • Bergþór Helgason aðalmaður
  • Runólfur Sigurðsson byggingar- og skipulagsfulltrúi
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Dagskrá

1.Deiliskipulagsbreyting Smiðjuvalla, Kalmansvellir 6 og Smiðjuvellir 3.

1401126

Niðurstaða funda með fasteignaeigendum Smiðjuvalla 3 og Rolf hjá Akraborg.

Skipulags- og umhverfisnefnd fellst á að farið verði í breytingu á deiliskipulagi í samræmi við undirritað samkomulag lóðarhafa á lóðunum við Smiðjuvelli 3 og Kalmansvellir 6, dags. 27. janúar 2014.

2.Fyrirspurn varðandi breytta notkun lóðar við Heiðarbraut 40.

1401127

Áður frestuðu máli frá síðasta fundi nefndarinnar.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið.

3.HB-Grandi - lóðaumsókn, götustæði neðst á Suðurgötu undir fiskmóttökuhús.

1401083

Bréf bæjarráðs dags. 31. janúar s.l.

Skipulags- og umhverfisnefnd heimilar HB Granda að láta vinna breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis í samræmi við tillögu HB Granda, bréf dags. 5. desember 2013

4.Deiliskipulagsbreyting - Sólmundarhöfði, innkeyrsla frá Innnesvegi.

1308181

Kynning á afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lagt fram.

5.Aðalskipulagsbreyting - Kirkjuhvoll (Merkigerði 7) og Vesturgata 101.

1312129

Skipulagslýsing gerð af Teiknistofu akritekta Gylfi Guðjónsson og félagar ehf. dags. 30. janúar s.l. lögð fram.

Skipulags- og umhverfisnefnd telur skynsamlegt að aðalskipulagi verði jafnframt breytt fyrir Vesturgötu 102, til samræmis við Kirkjuhvol (Merkigerði 7).

Skipulagslýsingin tekur til ofangreindra lóða. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkomna skipulagslýsingu og leggur til að hún verði kynnt á opnum fundi sem haldinn verður í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18 kl. 17:00.

6.Breiðargata 8b - lóðarstækkun

1401204

Bréf HB Granda dags. 23. janúar 2014,varðandi fyrirhugaða stækkun Breiðargötu 8B og ósk um stækkun lóðarinnar.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að haldinn verði fundur með nefndinni og bæjarstjórn, þar sem forsvarsmenn HB Granda kynni hugmyndir sínar.

7.Stillholt 17, framkvæmdir án byggingarleyfis.

1310168

Kynning á stöðu málsins.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita byggingar- og skipulagsfulltrúa heimild til að beita dagsektum í samræmi við vinnureglur og gjaldskrá Akraneskaupstaðar þar um.

8.Deiliskipulagsbreyting Skógarhverfi 1. áfangi, Viðjuskógar 8-14, og 16-18.

1104152

Fundur með bæjarstjórn.

Farið yfir málið.

Fundi slitið - kl. 18:20.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00