Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2009-2014)

109. fundur 31. mars 2014 kl. 16:00 - 17:50 í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Guðmundur Þór Valsson formaður
  • Reynir Þór Eyvindsson aðalmaður
  • Runólfur Sigurðsson byggingar- og skipulagsfulltrúi
  • Sigurður Páll Harðarson framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
  • Alfreð Þór Alfreðsson varamaður
  • Íris Reynisdóttir garðyrkjustjóri
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Dagskrá

1.Grenigrund 7, umsókn um stækkun bílgeymslu og breytingar innbyrðis.

1403115

Vísun frá byggingarfulltrúa. Málefni til grenndarkynningr.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að stækkunin verðið grenndarkynnt samkvæmt 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Grendarkynnt skal fyrir húseigendum að Grenigrund 5, 6, 7 og 8.

2.Skarðsbraut 1-3-5, umsókn um klæðninu hússins.

1403121

Byggingarleyfi til kynningar.

3.Laugabraut 19, gróðurhús

1403117

Staðsetning gróðurskála til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

4.Sementsreitur - íbúafundur v/ skipulagsmála.

1309103

Samantekt á niðurstöðu íbúafundar.

Sigurður Páll fór yfir niðurstöður fundarins.

5.Deiliskipulagsbreyting, Kalmansvellir 4A.

1403134

Fyrirspurn vegna viðbyggingar.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið, og leggur til við bæjarstjórn að heimila fyrirspyrjenda að leggja fram breytingu á deiliskipulagi.

6.Deiliskipulag - fyrirspurn um Þjóðbraut 1

1403195

Fyrirspurn um hvort fengist að breyta sal á 2. hæð í 4. íbúðir. Íbúðafjöldi myndi breytast úr 40 í 44 stk. Um er að ræða sal alls 246,2m2 og tvö þjónusturými alls 85,2m2. Ekki er um stækkn húss að ræða.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið, og leggur til við bæjarstjórn að fyrirspyrjanda verði heimilað að leggja fram breytingu á deiliskipulagi.

7.Breiðin - umhverfismál

1304196

Kynning á tíma- og kostnaðaráætlun deiliskipulags Breiðarinnar.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að farið verði í gerð deiliskipulags.

8.Breiðargata 8b - lóðarstækkun

1401204

Lögð fram teikning frá ASK vegna fyrirspurnar HB Granda hf.

Sigurður Páll gerði grein fyrir skoðunarferð bæjarstjórnar og skipulags- og umhverfisnefndar í þurrkverksmiðjuna Haustak. Byggingar- og skipulagsfulltrúa falið að ræða við forsvarsmenn HB Granda hf. um fyrirliggjandi uppdrátt dags. 20.1.2014. Skoðað verði m.a. hvort stækkun fyrirhugaðra mannvirkja þurfi að ná út á klappirnar.

Fundi slitið - kl. 17:50.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00