Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)
11. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, miðvikudaginn 25. október 2006 kl. 16:00.
| Mætt á fundi:             | Sæmundur Víglundsson formaður Helga Jónsdóttir  Magnús Guðmundsson  Hrafnkell Á Proppé  Bergþór Helgason  | 
| Auk þeirra voru mætt:  | Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð | 
 
| 1. | Skógarhverfi, deiliskipulag - 2. áfangi |  | Mál nr. SU060019 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Gylfi Guðjónsson arkitekt og Hrund Skarphéðinsdóttir verkfræðingur komu á fundinn og kynntu fyrirliggjandi tillögu ásamt byggingarskilmálum. Stefnt er að afgreiðslu tillögunnar á fundi 13. nóvember.
| 2. | Ökugerði, staðsetning |  | Mál nr. SB060065 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt kynnti hugmyndir sínar að staðsetningu og útliti ökugerðis. Ákveðið var að senda tillöguna áfram til umfjöllunar hjá starfshópi um ökugerði á Akranesi.
| 3. | Flóahverfi - Nýtt athafnasvæði, deiliskipulag |  | Mál nr. SU060023 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt mætti á fund nefndarinnar og gerði grein fyrir framvindu verkefnisins. Stefnt er að afgreiðslu deiliskipulagstillögunar á fundi 13. nóvember n.k.
| 4. | Dalbraut - Þjóðbraut, deiliskipulag - endurskoðun |  | Mál nr. SU050069 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Endurskoðuð tillaga frá hönnuði lögð fram.
Ákveðið var að boða lóðarhafa á svæðinu til næsta fundar skipulags- og byggingarnefndar mánudaginn 30. október kl. 16.00.
| 5. | Kirkjubraut 4-6, deiliskipulagsbreyting |  | Mál nr. SB060082 | 
490102-6390 Verslunin Nína ehf, Kirkjubraut 4-6, 300 Akranesi
Umsókn Runólfs Sigurðssonar f.h. Verslunarinnar Nínu ehf. um að sameina lóðirnar Kirkjubraut 4-6 og stóran hluta lóðarinnar við Suðurgötu 69.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi og fellst á að grenndarkynna breytinguna fyrir lóðarhöfum við Suðurgötu 67,69,71 og Kirkjubraut 2 og 6a.
| 6. | Dalbraut - Esjuvellir,  gangstígur |  | Mál nr. SB060083 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Beiðni bæjarráðs um umsögn vegna óska íbúa við Dalbraut 21 og Esjuvalla 24 um að mega taka göngustíg milli húsanna til eigin afnota.
Skipulags- og byggingarnefnd getur ekki fallist á umbeðna tillögu þar sem stígurinn er hluti af stígakerfi bæjarins. Nefndin telur ekki marktækt að stígurinn sé ?ekkert notaður? þar sem lítil starfsemi hefur verið á Miðbæjarsvæðinu fram til þessa en breyting er að verða þar á.
| 7. | Umferðamál, Skógarhverfi og Smiðjuvellir |  | Mál nr. SB060070 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að meðfylgjandi tillögur um ný umferðarmerki verði samþykkt.
| 8. | Kalmansbraut, lenging |  | Mál nr. SB060084 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Lenging Kalmansbrautar að nýju fyrirhuguðu hringtorgi norðaustan við Smiðjuvelli.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna.
| 9. | Smiðjuvellir 32, innkeyrsla |  | Mál nr. SB060085 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Bréf bæjarráðs dags. 16. okt. þar sem óskað er eftir umfjöllun skipulags- og byggingarnefndar á því að setja út- og innakstur af lóðinni nr. 32 út á Þjóðbraut.
Fyrir liggur afstaða Vegagerðarinnar til málsins þar sem þeir geta fallist á að útbúin verði tenging sem leyfir hægri beygju inn á lóðina frá nýjum Akranesvegi (Þjóðbraut) en aðrir beygjustraumar verði ekki mögulegir.
Skipulags- og byggingarnefnd getur fallist á tillögu Vegagerðarinnar sem lausn á málinu en nefndin bendir á að gera þarf breytingu á gildandi deiliskipulagi.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:15
 
					
 
  
 



