Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)

114. fundur 19. september 2005 kl. 17:00 - 18:30

114. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal að Dalbraut 8, mánudaginn 19. september 2005 kl. 17:00.


 

Mætt á fundi:           

Magnús Guðmundssonformaður

Lárus Ársælsson

Eydís Aðalbjörnsdóttir

Edda Agnarsdóttir

Elínborg Halldórsdóttir

Auk þeirra var mætt:

Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð

 


 

 

1.

Suðurgata 18 - Aðflutt hús, umsókn um byggingarlóð

 

Mál nr. SU050032

 

200350-4139 Þuríður Maggý Magnúsdóttir, Oddagata 16, 101 Reykjavík

080551-3559 Jón Jóel Einarsson, Oddagata 16, 101 Reykjavík

Erindið var grenndarkynnt skv. 43 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997  fyrir eigendum fasteignanna Suðurgötu 16,17, 19, 21 og 23, 25 og 26  Háteig 16 og Akursbraut 3. Einnig var lóðareiganda á Suðurgötu 22 send grenndarkynning.

Sviðsstjóra falið að vinna greinargerð um niðurstöðu grenndarkynningar. Gert er ráð fyrir afgreiðslu á næsta fundi skipulags- og umhverfisnefndar.

 

 

2.

Suðurgata 66 - Akratorg, umsögn - fjölbýlishús

 

Mál nr. SU050058

 

660804-2260 Bræðraból - fjárfestingar ehf, Jaðarsbraut 25, 300 Akranesi

Bréf Runólfs Sigurðssonar tæknifræðings kt. 0901572489 dags. 4.9.2005 f.h. Bræðraból-fjárfestingar ehf. þar sem óskað er umsagnar á því að byggja fjölbýlishús með 3-4 lúxusíbúðum og bílgeymslum.

Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að nú stendur yfir samkeppni um skipulag miðbæjar Akraness. Þar til niðurstaða liggur fyrir í þeirri samkeppni er ótímabært að taka afstöðu til fyrirspurnar bréfritara um íbúðabyggingu á lóðinni Suðurgötu 66.

 

 

3.

Presthúsabraut 31 - Stofnanareitur, deiliskipulagsbreyting- stækkun byggingarreits

 

Mál nr. SU050036

 

311051-4159 Ragnheiður Gunnarsdóttir, Presthúsabraut 31, 300 Akranesi

Erindi og uppdráttur Ragnheiðar Gunnarsdóttur og Björgvins Eyþórssonar dags. 8. ágúst um stækkun á byggingarreit á lóð nr. 31 við Presthúsabraut. Erindið var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að senda málið til umsagnar Skipulagsstofnunar.

  

 

4.

Vesturgata 65, sólstofa, svalir og kvistir

 

Mál nr. SU050052

 

290969-5149 Ingi Már Ingvarsson, Vesturgata 68, 300 Akranesi

Umsókn Runólfs Sigurðssonar dags. 9.8.2005 f.h. Inga Márs Ingvarssonar, um að fá að byggja sólstofu, svalir og tvo kvisti á þak hússins við Vesturgötu 65.

Fyrir liggur skriflegt samþykki annarra meðeigenda í húsinu.

Grenndarkynning skv. 43. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur farið fram án athugasemda.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytinguna og vísar málinu til afgreiðslu bygginganefndar.

 

 

5.

Sunnubraut 12 - Akratorgsreitur, fyrirspurn

 

Mál nr. SU040029

 

130863-5319 Guðrún Margrét Jónsdóttir, Sunnubraut 12, 300 Akranesi

Nýjar teikningar lagðar fram.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að málið verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997,  fyrir íbúum Suðurgötu 99, 103, Sunnubraut 10, 11, 13, 14 og 15.

 

 

6.

Skógarhverfi, deiliskipulag - 1. áfangi

 

Mál nr. SU050055

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Ný drög lögð fram.

   

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:30

 

 

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00