Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)
34. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18 þriðjudaginn 12. ágúst 2003 kl. 16:00.
Mættir á fundi:  Magnús Guðmundsson, Lárus Ársælsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Eydís Aðalbjörnsdóttir, Edda Agnarsdóttir. 
Auk þeirra voru mættir  Hrafnkell Á Proppé.
1. Íbúaþing, Mál nr. SU030052
Fulltrúar ALTA, Sigurborg Kr. Hannesdóttir og Hildur Kristjánsdóttir lögðu fram drög að dagskrá íbúaþings sem haldið verður þann 6. september nk. Magnús Magnússon markaðs- og atvinnufulltrúi lagði fram áætlun um kynningarleiðir og kostnað. 
Dagskráin yfirfarin og samþykkt.  Verkáætlun yfirfarin ásamt helstu verkefnum.  Kynningaráætlun samþykkt.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:15
 
					
 
  
 



