Fara í efni  

Öldungaráð

31. fundur 21. október 2026 kl. 14:30 - 16:00 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Erla Dís Sigurjónsdóttir formaður Öldungaráðs
  • Erla Björg Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Jóna Á. Adolfsdóttir aðalmaður
  • Anna Bjarnadóttir aðalmaður
  • Ragnheiður Helgadóttir aðalmaður
  • Rögnvaldur Einarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Erna Dögg Pálsdóttir forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu
  • Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna

1. 2609-7103 - Hreyfidagatalið - ein æfing á dag - allt árið

Æfing dagsins - hreyfidagatal. Höfundar Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Svandís Björk
Guðmundsdóttir sjúkraþjálfarar fyrir hönd Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu. Hildur
Aðalbjörg kom í september og kynnti hreyfidagatalið fyrir stjórnendum í farsældarþjónustu
fullorðinna.

Hreyfidagatalið lagt fram til kynningar og umræðu.



 2. 2609-7099 - Dala.care - innleiðingarferli

Til skoðunar er að taka upp Dala.care sem er vefkerfi fyrir þjónustu á velferðar- og
mannréttindasviði. Hugmyndin er að byrja innleiðinguna í stuðnings- og stoðþjónustu og
búsetuþjónustu fatlaðra. Fyrir liggur minnisblað með kostnaðargreiningu.

Öldungaráð lýsir ánægju með innleiðingu á vefkerfinu Dala.care. Kerfið hentar vel fyrir alla
velferðarþjónustu, er einfalt í notkun, auðvelt að aðlaga að breyttum þjónustuþörfum og er
kostnaðarlega hagkvæmt

 

3. 2610-7888 - Verkefnalisti meirihluta 2026-2030 - velferðar- og mannréttindasvið

Verkefnalisti meirihlutans sem snýr að málefnum eldra fólks.

Öldungaráð beinir því til velferðar- og mannréttindaráðs að verkefnum meirihlutans verði
forgangsraðað. Öldungaráð leggur áherslu á að sett verði í forgang að tryggja í samvinnu við ríkið
60 ný hjúkrunar- og hvíldarrými á Höfða og að fjölga úrræðum fyrir fólk með heilabilun.

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu