Öldungaráð
|
1. 2602-1375 : Gott að eldast, aðgerðaráætlun um þjónustu við fólk með heilabilun Verktakasamningur við aðila sem sinnt hefur þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra rennur út 28.02.26. Óskað er eftir heimild til að framlengja samninginn út árið 2026. Heildarkostnaður fyrir árið 2026 verður að hámarki 2.880.000 kr. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 17. febrúar 2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð telur mikilvægt að standa vörð um þessa þjónustu við fólk með heilabilun og mælir með áframhaldandi fjárveitingu til verkefnisins. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði ásamt viðauka. Öldungaráð tekur undir bókun velferðar- og mannréttindaráðs og telur mikilvægt að styðja áfram við þetta verkefni. Jafnframt telur öldungaráð brýnt að auka við úrræði og styðja enn betur við þau sem fyrir eru.
|
|
2. 2601-0831 : Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - endurbætur á aðstöðu Forstöðumaður íþróttamannvirkja hefur óskað eftir að skoðaðir verði möguleikar á endurbótum í sameiginlegum rýmum íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum s.s. búningsklefum, afgreiðslu og aðgengi að sundlaug í kjölfar fjölgunar gesta á svæðinu. Lagt er til að gerðar verði útbætur á aðgengi fyrir fatlaða við endurbætur á sameiginlegum rýmum og þá sér í lagi búningsklefum í vallarhúsi. Málið hefur nú þegar verið tekið til sameiginlegrar umfjöllunar hjá mennta- og menningarráði og skipulags- og umhverfisráði sem veittu starfsfólki sviðanna umboð til að framkvæma kostnaðarmat og mótun frekari breytingatillagna. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. febrúar sl. var eftirfarandi bókað: Skipulags- og umhverfisráð og skóla- og frístundaráð veita verkefnastjóra mannvirkja og forstöðumanni Íþróttamannvirkja umboð til að framkvæma kostnaðarmat og móta frekari breytingartillögur. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 17. febrúar sl. var eftirfarandi bókað: Velferðar-og mannréttindaráð styður við áætlanir um að starfsfólk mennta- og menningarsviðs og skipulags- og umhverfissviðs framkvæmi kostnaðarmat og móti frekari breytingartillögur. Ráðið telur mikilvægt að starfsfólk velferðar- mannréttindasviðs fái tækifæri til að koma sjónarmiðum notenda þjónustunnar á framfæri í vinnuferlinu. Á fundi notendaráðs um málefni fatlaðs fólks á Akranesi þann 21.02.26 var eftirfarandi bókað: Notendaráð leggur áherslu á að tryggt verði aðgengi fyrir öll. Öldungaráð styður við áætlanir um að framkvæma kostnaðarmat og móta frekari breytingatillögur. Jafnframt að tryggt verði gott aðgengi fyrir öll.
|
|
3. 2601-1138 : Farsæl efri ár - bæklingur Bæklingur um farsæl efri ár til kynningar og umræðu. Öldungaráð lýsir ánægju sinni með glæsilegan bækling um farsæl efri ár. Ráðið telur brýnt að bæklingurinn fari sem víðast og að aðgengi að honum verði gott.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





