Fara í efni  

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi

29. fundur 13. maí 2026 kl. 16:15 - 17:35 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Halldór Jónsson formaður
  • Ólöf Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Ágústa Rósa Andrésdóttir aðalmaður
  • Sylvía Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sólveig Salvör Sigurðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna

1. 2601-0354 - Skógarlundur 42, stofnframlag vegna íbúðakjarna 2023

Málið var tekið fyrir á fundi Velferðar- og mannréttindaráðs þann 24.03.2026 þar sem Steinar
Dagur Adolfsson, sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs fór yfir stöðu málsins. Staða málsins lögð
fram til kynningar og umræðu.

Notendaráð leggur áherslu á að niðurstaða náist um það sem allra fyrst hvort haldið verði áfram
að vinna að uppbyggingu Skógarlundar 42 sem næsta búsetukjarna fyrir fatlaða á Akranesi. Aö
öðrum kosti þarf að finna nýja lóð og hefja undirbúning að nýjum kjarna. Notendaráð telur
mikilvægt að næsta bæjarstjórn setji sér þröng tímamörk varðandi úrlausn þessa máls þar sem
frekari úrræði í þessum málaflokki virðast sitja á hakanum á meðan beðið er niðurstöðu þessa máls.

 

2. 2601-1144 - Uppbygging skammtímadvalar á Akranesi

Í kjölfar bókun bæjarstjórnar um uppbyggingu skammtímadvalar við Laugarbraut 6 hefur málið
verið tekið fyrir á fundum velferðar- og mannréttindaráð, þann 2. febrúar sl., og skiplags- og
umhverfisráðs, þann 16. febrúar sl., þar sem jákvætt er tekið undir uppbyggingu skammtímadvalar
á Akranesi og stofnun starfshóps með viðeigandi hagsmunaaðila innanborðs. Á fundir velferðarog mannréttindaráðs þann 13.04.2026 var gerð eftirfarandi bókun: Velferðar- og mannréttindaráð
tilnefnir sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs í starfshópinn og skipulags- og umhverfissvið
tilnefnir Lárus Ársælsson. Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að starfshópurinn skili drögum
að tímalínu á fundi ráðsins 19. maí nk.

Notendaráð vill benda á að þörfin fyrir úrræði skammtímadvalar er knýjandi. Notendaráð telur
mjög mikilvægt að þrátt fyrir þessa löngu tímabæru fyrirhuguðu uppbyggingu leysir hún ekki þann
bráðavanda sem við er að etja í málaflokknum. Því er afar brýnt að bæjarstjórn missi ekki sjónar á
því samstarfi sem hafið er með sveitarfélögum á Vesturlandi um uppbyggingu skammtímadvalar.
Sú uppbygging mun án efa leysa hluta vandans fyrr en sú sem fyrirhuguð er á Akranesi. 

 

3. 2603-2423 - Breytingar í búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar

Kynning og umræða um fyrirhugaðar breytingar á yfirstjórn búsetukjarna Akraneskaupstaðar.

Notendaráð lýsir ánægju sinni að stefnt skuli að aukinni fagþekkingu starfsmanna í þjónustu við
fatlað fólk. 

 

4. 2601-0072 - Framhaldsmál - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 24.03.2026 samþykkti ráðið fyrirliggjandi samning og
vísaði honum til afgreiðslu í bæjarráði. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 11.05.2026
var lögð er fram til umfjöllunar tillaga um uppbyggingu og rekstur sameiginlegrar skammtímadvalar
fyrir börn og ungmenni með fötlun og umfangsmiklar stuðningsþarfir á Vesturlandi. Verkefnið er
unnið í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar á Vesturlandi og miðar að því að
tryggja jafnt aðgengi að lögbundinni þjónustu óháð búsetu. Gert er ráð fyrir að skammtímadvölin
starfi í húsnæðinu að Holti í Borgarbyggð, rekin af sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri. Lagt er til að
sveitarfélög á Vesturlandi stofni sjálfseignarstofnunina, en hún sjái um rekstur þjónustunnar og
leigi fasteignina að Holti. Fyrir liggur ítarlegt minnisblað ásamt fylgigögnum: Drög að samþykktum
fyrir skammtímadvöl Vesturlands ses. Tillaga að rekstrarmódeli og fjárhagsáætlun, þarfagreining á
húsnæði Holts og drög að leigusamningi.

Ráðum sveitarfélaganna er ætlað að taka afstöðu til:
1. Val á sviðsmynd: Hvort stefnt skuli að sviðsmynd 1 eða 2 við fulla opnun, eða hvort
útfærslan eigi að vera með öðrum hætti. a. Verkefnastjórn leggur til að sviðsmynd 1 verði fylgt
fram að áramótum og sviðsmynd 2, eða full opnun, verði langtímamarkmiðið.
2. Útfærsla tekjumódels: Val milli valkosts A (skipt eftir íbúafjölda) og valkosts B (50% fastur
kostnaður eftir íbúafjölda og 50% breytilegur eftir keyptum sólarhringum), eða hvort útfærslan eigi
að vera með öðrum hætti. a. Verkefnastjórn leggur til að valkosti B verði fylgt, á grundvelli
jafnræðissjónarmiða barna á svæðinu.
3. Fjöldi fulltrúa í fulltrúaráði: Stofnaðilar þurfa að taka afstöðu til þess hve margir fulltrúar
eigi að sitja í fulltrúaráði og hvernig tilnefningu þeirra verði háttað. a. Verkefnastjórn leggur til að
einn fulltrúi, frá hverju sveitarfélagi, komi úr röðum notendaráðs.
4. Framlag stofnenda: Ákvörðun um skiptingu stofnfjár milli sveitarfélaga. a. Verkefnastjórn
leggur til jafna skiptingu milli sveitarfélaga.
5. Tímasetning stofnunar opnunar: Staðfesting á að formleg skráning fari fram tímanlega fyrir
áformaða opnun haustið 2026.

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 11.05.2026 var gerð eftirfarandi bókun: Velferðar- og
mannréttindaráð tekur undir tillögur verkefnahóps um afgreiðslu allra liða að undanskildum lið 2,
er varðar útfærslu tekjumódels. Velferðar- og mannréttindaráð er mótfallið báðum þeim
útfærslum sem verkefnahópur lagði fram og leggur til að farin verði tillaga C, sem gerir ekki ráð
fyrir neinum fasta kostnaði af hálfu sveitarfélaganna, heldur greiði þau hærra gjald fyrir þá
sólarhringa sem þau nýta í skammtímadvölinni. Áætlað gjald yrði ákvarðað í upphafi hvers árs á
grundvelli rekstraráætlunar og áætlaðrar nýtingar. Velferðar- og mannréttindaráð leggur einnig til
að öðrum sveitarfélögum standi til boða að kaupa pláss í úrræðinu sem sveitarfélögin á Vesturlandi
sjá ekki fram á að geta nýtt. Tekjur af sölu ónýttra rýma til annarra sveitarfélaga kæmu til lækkunar
á heildarkostnaði áður en innra gjald yrði endanlega gert upp. Sviðsstjóra er falið að upplýsa
verkefnahópinn um afstöðu velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar. Málinu vísað til
afgreiðslu í bæjarráði.
Notendaráð ítrekar stuðning sinn við uppbyggingu þessa úrræðis og vísar í fyrri bókanir ráðsins.

 

5. 2604-2850 - Stefna í málefnum fatlaðs fólks

Velferðar- og mannréttindaráð hefur haft á sinni stefnuskrá að unnin verði stefna í málefnum
fatlaðs fólks. Önnur sveitarfélög á Vesturlandi hafa einnig hug á gerð slíkrar stefnu. Stjórnendur í
velferðarþjónustu á Vesturlandi hafa rætt um hvort grundvöllur sé fyrir gerð sameiginlegrar stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi, sem hvert sveitarfélag eða svæði myndi í framhaldinu taka
áfram og staðfæra. Óskað er eftir afstöðu velferðar- og mannréttindaráðs til þeirrar nálgunar. Á
fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 13.04.2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og
mannréttindaráð telur að stefna í málefnum fatlaðs fólks sé verkefni sem skynsamlegt væri að
vinna í samvinnu við önnur sveitarfélög á Vesturlandi og sviðsstjóra falið umboð til áframhaldandi
samtals.
Notendaráð fagnar því unnið verði að stefnu í málefnum fatlaðs fólks. Notendaráð er jafnframt
sammála því að skynsamlegt sé að vinna stefnuna í samvinnu við önnur sveitarfélög á Vesturlandi
enda nýverið hafið samstarf í þessum málaflokki.

 

6. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun

Verið er að vinna að breytingum á sundlaugarbyggingu og vallarhúsi vegna áskoranna í
klefamálum, vegna aukinnar aðsóknar og aðgreiningar sundlaugagesta og nemenda í skólasundi.
Samhliða því er verið að skoða breytingar á anddyri sundlaugar byggingar vegna mikils fjölda gesta
sem staldrar þar við, sem hefur aukist töluvert frá opnun líkamsræktarinnar og nýjum útgangi frá
líkamsrækt út að sundlaugarsvæði. Breytingin á anddyrinu felst í því að opna rýmið, fjarlægja veggi
og stiga, færa afgreiðsluborð og gera breytingu á salernisaðstöðu og starfsmanna aðstöðu í
anddyri. Við þá vinnu spratt upp sú hugmynd að setja upp gott salerni sem hentar öllum, til
samræmis við Changing places international, sem velferðar- og mannréttindaráð kynnti fyrir
skipulags- og umhverfisráði á síðasta ári. Verið er að teikna breytingar á anddyrinu þar sem gert er
ráð fyrir að salernið verði staðsett þar sem starfmanna aðstaða er í dag. Salernið verður
aðgengilegt á opnunartíma sundlaugarbyggingar. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann
11.05.2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð fagnar áætlunum um
uppbyggingu aðgengilegrar salernisaðstöðu fyrir fatlað fólk og að Akraneskaupstaður leggi áherslu
á að nýta nýjustu þekkingu í sínum nálgunum í anda Changing Places International.

Notendaráð lýsir ánægju sinni með fyrirhugaða uppbyggingu á aðgengilegri salernisaðstöðu fyrir
fatlað fólk.

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu