Notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi
|
1. 2601-1144 - Uppbygging skammtímadvalar á Akranesi Á fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar sl. var uppbygging skammtímadvalar til umræðu. Var samþykkt tillaga þess efnis að gert verði mat á þörf fyrir skammtímavistunarúrræði til að geta metið hverskonar úrræði og form þarf og hvaða möguleikar eru á samnýtingu á öðrum úrræðum fyrir þjónustu við fatlaða. Í framhaldinu verði skoðað hvernig húsnæði þarf til að mæta þjónustuþörfunum. Sá hluti lóðarinnar við Laugarbraut 6, þar sem nú stendur fyrrum áhaldahús bæjarins, verði tekinn frá til hugsanlegrar uppbyggingar á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Ráðist verði í kostnaðargreiningu svo unnt sé að áætla heildarkostnað verkefnisins og leggja fram raunhæfa áætlun. Því næst verði hafist handa við skipulags- og hönnunarvinnu á svæðinu með það að markmiði að nálægð við aðra þjónustu, s.s. Bjarnalaug og búsetukjarnann við Laugarbraut, nýtist sem best. Var málinu vísað til velferðar- og mannréttindaráðs til úrvinnslu og eftirfylgni. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. febrúar sl. lýsti ráðið yfir ánægju sinni yfir ákvörðun bæjarstjórnar um uppbyggingu skammtímadvalar á Akranesi. Ráðið hefur um langt skeið fjallað um nauðsyn slíks úrræðis og m.a. fengið kynningar, farið og skoðað skammtímadvalir og látið framkvæma þarfagreiningar. Velferðar- og mannréttindaráð leggur til að stofnaður verði verkefnahópur þvert á svið Akraneskaupstaðar til að vinna heildræna áætlun um uppbyggingu skammtímadvalar við Laugarbraut 6. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. Málinu vísað til umfjöllunar í Skipulags- og umhverfisráði og til kynningar í notendaráði. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. febrúar sl. var eftirfarandi bókað: Skipulags- og umhverfisráð tekur einnig jákvætt í bókun bæjarstjórnar Akraness um uppbygginguskammtímadvalar við Laugarbraut 6. Ráðið tekur jafnframt jákvætt í stofnun starfshóps og telur mikilvægt að helstu hagsmunaaðilar komi að verkefninu frá upphafi. Notendaráð fagnar fyrir áætlunum um uppbyggingu skammtímadvalar á Akranesi og að fyrir hendi verði fjölbreytileiki í úrræðum fyrir fötluð börn og ungmenni. Notendaráð leggur áherslu á að kostnaður vegna uppbyggingar verði tekinn fyrir í umræðu um fjárhagsáætlun 2027. Ráðið áréttar að hugur fylgi máli hjá bæjarstjórn.
|
|
2. 2601-1147 - Samræmdar greiðslu til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi árið 2025 í hóp fagaðila, frá hverju sveitarfélagi, til að yfirfara greiðslur til stuðningsfjölskyldna á svæðinu og leggja fram tillögu að samræmdri gjaldskrá. Verkefnahópurinn fundaði í átta skipti tímabilið október - desember 2025 og hefur nú lagt fram tillögu að samræmdri gjaldskrá sem lögð er fram til kynningar og umræðu. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 03.02.2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð þakkar verkefnahópnum fyrir vel unnin störf. Ráðið samþykkir nýja samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði. Lagt fram til kynningar.
|
|
3. 2601-0722 - Tónlistarnám fyrir fullorðið fatlað fólk Þann 29. janúar sl. samþykkti bæjarráð að veita fjármagn til Tónlistarskóla Akraness vegna tilraunaverkefnis um að þróa tónlistarkennslu fyrir fullorðið fatlað fólk, að fjárhæð kr. 600.000. Ákvörðun varðandi haustönn 2026 þarf að liggja fyrir með vorinu og erindi þess efnis þá að berast bæjarráði. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 03.02.2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð fagnar ákvörðun bæjarráðs og vísar málinu til kynningar í notendaráði. Notendaráð fagnar þessu tilraunaverkefni eindregið.
|
|
4. 2601-1130 - Framhaldsmál - Samfélagsmiðstöðin Dalbraut 8 - uppbygging- framkvæmd verkefnisins Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 03.02.2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð fagnar því að verkefnið er á fjárhagsáætlun 2026 og óskar eftir upplýsingum um stöðu útboðsgagna samfélagsmiðstöðvar frá skipulags- og umhverfisráði. Velferðar- og mannréttindaráð telur mikilvægt að útboð fari fram sem fyrst. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16.02.2026 var eftirfarandi bókað: Skipulags- og umhverfisráð leggur til sameiginlegs fundar með velferðar- og mannréttindaráði ásamt skóla- og frístundaráði áður en að útboð fari fram. Staða málsins lögð fram til kynningar.
|
|
5. 2602-1216 - Fjöliðjan - sumarafleysingar 2026 Ákveðið hefur verið að hafa Fjöliðjuna opna í allt sumar til að tryggja þjónustu fyrir fatlað fólk í hæfingu allt árið um kring. Auk þess hefur það sýnt sig að margir búar í búsetu fatlaðra eiga erfitt með löng frí. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 17. febrúar sl. var lögð fram beiðni um heimild til að ráða tvo sumarafleysinga starfsmenn inn í Fjöliðjuna í þrjá mánuði. Beiðnin kemur til þar sem farið hefur verð fram á það við forstöðumann að hafa Fjöliðjuna opna í allt sumar til að koma á móts við þarfir hinna fötluðu starfsmanna. Velferðar- og mannréttindaráð samþykkti beiðnina vísaði henni til afgreiðslu í bæjarráði. Notendaráð fagnar þessari ákvörðun.
|
|
6. 2602-1580 - Reglur um stuðnings- og stoðþjónustu fullorðinna á Akranesi Í 12. gr. reglna um stuðnings- og stoðþjónustu fullorðinna á Akranesi er kveðið á um viðmið um útlagðan kostnað vegna stuðningsþjónustu við fatlað fólk. Það viðmið hefur hins vegar ekki verið sett, né hefur verið gert ráð fyrir slíkum kostnaði af hálfu sveitarfélagsins í fjárhagsáætlun fyrir 2026. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 16.12.26 samþykkti ráðið viðmið vegna útlagðs kostnaðar vegna stuðningsþjónustu að upphæð 7.500 kr. á mánuði eða allt að 90.000 kr. á ári. Málið kynnt.
|
|
7. 2601-0831 : Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - endurbætur á aðstöðu Forstöðumaður íþróttamannvirkja hefur óskað eftir að skoðaðir verði möguleikar á endurbótum í sameiginlegum rýmum íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum s.s. búningsklefum, afgreiðslu og aðgengi að sundlaug í kjölfar fjölgunar gesta á svæðinu. Lagt er til að gerðar verði útbætur á aðgengi fyrir fatlaða við endurbætur á sameiginlegum rýmum og þá sér í lagi búningsklefum í vallarhúsi. Málið hefur nú þegar verið tekið til sameiginlegrar umfjöllunar hjá mennta- og menningarráði og skipulags- og umhverfisráði sem veittu starfsfólki sviðanna umboð til að framkvæma kostnaðarmat og mótun frekari breytingatillagna. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. febrúar sl. var eftirfarandi bókað: Skipulags- og umhverfisráð og skóla- og frístundaráð veita verkefnastjóra mannvirkja og forstöðumanni Íþróttamannvirkja umboð til að framkvæma kostnaðarmat og móta frekari breytingartillögur. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 17. febrúar sl. var eftirfarandi bókað: Velferðar-og mannréttindaráð styður við áætlanir um að starfsfólk mennta- og menningarsviðs og skipulags- og umhverfissviðs framkvæmi kostnaðarmat og móti frekari breytingartillögur. Ráðið telur mikilvægt að starfsfólk velferðar- mannréttindasviðs fái tækifæri til að koma sjónarmiðum notenda þjónustunnar á framfæri í vinnuferlinu. Notendaráð leggur áherslu á að tryggt verði aðgengi fyrir öll.
|
|
8. 2601-0072 : Skammtímadvöl á Vesturlandi Farið yfir stöðu málsins. Staða málsins kynnt. Notendaráð fagnar samþykkt bæjarstjórnar um undirritun viljayfirlýsingar og áframhaldandi vinnslu málsins.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





