Fara í efni  

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi

27. fundur 07. janúar 2026 kl. 16:15 - 17:30 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Halldór Jónsson formaður
  • Ólöf Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sylvía Kristinsdóttir aðalmaður
  • Jóhanna Nína Karlsdóttir aðalmaður
  • Ágústa Andrésdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Björnfríður Björnsdóttir verkefnastjóri stuðnings- og stoðþjónustu
  • Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna

1. 2601-0072 - Framhaldsmál - Skammtímadvöl á Vesturlandi
Umræða um bókun velferðar- og mannréttindaráðs frá fundi dags. 16.12.25 varðandi
skammtímadvöl fatlaðra barna á Vesturlandi: Velferðar- og mannréttindaráð er ekki einhuga um
undirritun viljayfirlýsingarinnar. Meirihluti ráðsins (KHS og EB) er á móti undirritun, en
minnihlutafulltrúi (AEE) er fylgjandi undirritun.
Meirihluti velferðar- og mannréttindaráðs ítrekar jákvæða afstöðu sína til samvinnu við
Þroskahjálp á Vesturlandi og önnur sveitarfélög á Vesturlandi um rekstur skammtímadvalar eins og
fram kom á fundi ráðsins þann 22. október. Meirihluti gerði athugasemd við viljayfirlýsinguna og
óskaði eftir breytingu á henni fyrir undirritun þar sem farið var fram á að staðsetning fyrirhugaðrar
skammtímadvalar yrði hluti af starfi verkefnahópsins. Ekki var fallist á þá breytingu. Meirihluti
velferðar- og mannréttindaráðs getur því ekki skrifað undir viljayfirlýsinguna óbreytta. Við teljum
ekki tímabært að skuldbinda sveitarfélagið við tiltekna staðsetningu, þ.e. Holt, að svo stöddu en
leggjum áherslu á að frekari greining fari fram áður en ákvörðun er tekin. Velferðar og
mannréttindaráð hefur um tíma stefnt að uppbyggingu skammtímadvalar á Akranesi. Meirihluti
velferðar- og mannréttindaráðs er opinn fyrir því að ræða framtíðaruppbyggingu skammtímadvalar
á Vesturlandi þar sem staðsetning verði einnig rædd.
Bókun frá fulltrúa framsóknar og frjálsra: Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins þann 22. október en
þar var eftirfarandi bókun samþykkt. „Velferðar- og mannréttindaráð er jákvætt gagnvart
undirritun viljayfirlýsingar um að skoðaðar verði lausnir um uppbyggingu skammtímadvalar í
samvinnu við Þroskahjálp á Vesturlandi og önnur sveitarfélög á Vesturlandi.“ Því kemur sú
stefnubreyting sem nú hefur orðið hjá fulltrúum meirihlutans virkilega á óvart. Fulltrúi framsóknar
og frjálsra í velferðar- og mannréttindaráði leggur áherslu á mikilvægi þess að Akraneskaupstaður
verði virkur þáttakandi í samráði og samvinnu um uppbyggingu skammtímardvalar á Vesturlandi.
Unnið hefur verið markvisst að uppbyggingu og útfærslu skammtímadvalar allt þetta kjörtímabil.
Þetta skref er því mikilvægur áfangi í þeirri vegferð. Hafa skal í huga að eitt þarf ekki að útiloka
annað og því mikilvægt að áfram verði unnið að uppbyggingu á Akranesi svo hægt sé að mæta
ólíkum þörfum skjólstæðinga þjónustunnar.
2/2
Notendaráð lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá tillögu meirihluta Velferðar- og
mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar að bæjarfélagið verði dregið út úr fyrirhuguðu samstarfi
sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar um uppbyggingu skammtímavistunar á Vesturlandi.
Samstarf sem að nokkru er að ágætu frumkvæði og mótað af starfsfólki Akraneskaupstaðar. Þarfir
þeirra, er slíkri skammtímavistun þurfa á að halda, eru mjög misjafnar og margvíslegar. Einungis
með auknu samstarfi sveitarfélaga og félagasamtaka er hægt að fjölga kostum og nálgast betur
þarfir hvers og eins. Skapað í sameiningu tækifæri sem hvert og eitt sveitarfélag getur ekki boðið
skjólstæðingum sínum.Þjónusta við fatlað fólk mun og getur aldrei miðast við eitt afmarkað úrræði
og/eða staðsetningu eins húss. Að halda slíku fram lýsir mikilli skammsýni og vanþekkingu. Ráðið
skorar því á bæjarstjórn Akraness að hafna tillögu meirihluta Velferðar- og mannréttindaráðs og
ganga nú þegar að nýju til áðurnefnds samstarfs á grundvelli undirritaðrar viljayfirlýsingar. Tryggja
þannig að íbúar á Akranesi sitji við sama borð og íbúar nágrannasveitarfélaganna. Ekki síst í ljósi
þess að enginn kostur er til staðar í sveitarfélaginu til þeirrar þjónustu sem um ræðir. Jafnframt
átelur Notendaráðið þau vinnubrögð Velferðar- og mannréttindaráðs að leita ekki umsagnar og
álits Notendaráðs í málinu, ekki síst áður en afgreidd er tillaga um að hverfa frá upphaflegu
samstarfi. Notendaráð vísar málinu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.

Vísað til bæjarstjórnar


2. 2601-0354 - Skógarlundur 42, stofnframlag vegna íbúðakjarna 2023
Umræða um stöðu Skógarlundar 42.
Umræða um stöðu málsins.

Lagt fram
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu