Fara í efni  

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi

26. fundur 25. nóvember 2025 kl. 16:15 - 17:30 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Halldór Jónsson aðalmaður
  • Ólöf Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Ágústa Rósa Andrésdóttir aðalmaður
  • Sólveig Salvör Sigurðardóttir aðalmaður
  • Jóhanna Nína Karlsdóttir aðalmaður
  • Sylvía Kristinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
  • Björnfríður Björnsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Dagskrá

1.Heilsuefling fatlaðs fólks

2501132

Framkvæmdastjóri ÍA sótti um styrk í Hvatasjóð til að stuðla heilsueflingu fullorðinna fatlaðra. Sótt var um 2,2 milljónir, en við fengum eina milljón. Til að starta verkefninu þyrfti að koma á móti framlag frá Akraneskaupstað. Ósakað er eftir umræðu um framhaldið.

Velferðar- og mannréttinaráð vísaði málinu til fjárhagsáætlunar vegna ársins 2026.
Notendaráð mælir með því við bæjarráð að gert verði ráð fyrir fjármagni inn í fjárhagsáætlun 2026 til að mæta þörfum fatlaðs fólks til heilsueflingar sem stuðlar að bættum lífsgæðum.
Notendaráð felur starfsfólki velferðar - og mannréttindasviðs að vinna áfram að málinu.

2.Athugun á þjónustu í búsetuúrræði fatlaðs fólks

24042202

Frumkvæðisúttekt á búsetukjörnum fatlaðs fólks á Akranesi fór fram að beiðni Gæða- og eftirlistsstofnunar haustið 2024.Fenginn var hlutlaus utanaðkomandi verktaki til að sinna verkefninu og var niðurstöðum skilað í desember 2024.
Niðurstöður frumkvæðisathuganar kynntar ásamt þeim úrbótum sem unnið hefur verið að í ljósi niðustöðu athugunarinnar.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu