Mennta- og menningarráð
|
1. 2610-7240 - Kynning á starfsemi mennta- og menningarsviðs og áherslur í fjárhagsáætlun 2027 Sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs kynnir starfsemi sviðsins og áherslur fyrir fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 Mennta- og menningarráð þakkar Dagnýju Hauksdóttur sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs fyrir ítarlega og fræðandi kynningu á starfsemi sviðsins og helstu áherslur við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. |
|
2. 2610-7467 - Tillaga og beiðni frá Íþróttabandalagi Akraness um aukna opnun í sundlauginni á Jaðarsbökkum Íþróttabandalags Akraness óskar eftir því að skoðaður verði sá möguleiki að lengja opnunartíma sundlaugarinnar á Jaðarsbökkum á laugardagskvöldum til kl. 22:00. Að mati ÍA gæti slík breyting haft margvísleg jákvæð áhrif fyrir samfélagið, ekki síst fyrir ungmenni. Markmiðið er að skapa öruggan, heilsueflandi og eftirsóknarverðan samverustað þar sem ungt fólk getur komið saman á kvöldin um helgar undir jákvæðum og skipulögðum formerkjum. Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja- og íþróttamála situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Mennta- og menningarráð leggur til við bæjarráð að farið verði í tilraunaverkefni til eins árs með aukinni opnun til kl. 22:00 á laugardagskvöldum með áherslu á öruggan samverustað fyrir ungt fólk. Forstöðumaður íþróttamannvirkja áætlar að viðbótarkostnaður vegna verkefnisins sé kr. 6.000.000 á ársgrunni og rúmist ekki innan fjárheimilda íþróttamannvirkjanna. Daníel S. Glad víkur af fundi. |
|
3. 2610-7883 - Nemendatölvur - mat á verkefni Mennta- og menningarráð fól sviðsstjóra að skoða heildstætt mat á verkefninu um nemendatölvur grunnskólanema með hliðsjón af endurnýjunaráætlun búnaðar og samræmingu verkefnisins milli skóla. Ráðið óskaði eftir samtali við kerfisstjóra um framlagðar tillögur er snúa að endurnýjun búnaðar. Jóhann Guðmundsson kerfisstjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Mennta- og menningarráð þakkar Jóhanni fyrir samtalið. Niðurstöður mats á verkefninu sýna að verkefnið hafi skilað verulegum faglegum ávinningi. Tölvurnar eru orðnar mikilvægur þáttur í námi og kennslu og styðja við fjölbreytta verkefnavinnu, virkni nemenda, einstaklingsmiðað nám og endurgjöf. Jafnframt stuðlar verkefnið að jafnræði í aðgengi nemenda að námstækjum. Ráðið leggur áherslu á að tryggja áframhald verkefnisins og að næstu skref taki mið af þörf fyrir markvissa endurnýjun tækja, gott utanumhald og aukinn kennslufræðilegan stuðning. Mennta- og menningarráð leggur til við bæjarráð að endurnýjun tækjabúnaðar verði sem nemur einum árgangi á ári. Jóhann Guðmundsson víkur af fundi. |
|
4. 2609-6799 - Tónberg - ljósabúnaður Erindi frá skólastjóra Tónlistarskóla Akraness um endurnýjun á ljósabúnaði í Tónbergi. Núverandi búnaður er úreltur og erfitt að fá perur og aðra varahluti til að halda honum við. Mennta- og menningarráð óskaði eftir uppfærðum gögnum og tilboðum frá fleiri söluaðilum. Alfreð Þór Alfreðsson situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Þörf fyrir endurnýjun ljósabúnaðar í Tónbergi hefur verið til umfjöllunar frá árinu 2023. Mennta- og menningarráð tekur jákvætt í erindið en það er mat rekstrarstjóra og fulltrúa mennta- og menningarráðs að umfang og eðli verkefnisins sé með þeim hætti að um fjárfestingu sé að ræða fremur en hefðbundið viðhald. Verkefnið eigi því heima í fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins. Mennta- og menningarráð vísar málinu til afgreiðslu hjá bæjarráði í tengslum við yfirstandandi gerð fjárhags- og fjárfestingaráætlana. Alfreð Þ. Alfreðsson víkur af fundi. |
|
5. 2609-6797 - Erindi vegna hljóðfærakaupa Lagt er fram erindi skólastjóra Tónlistarskóla Akraness þar sem óskað er eftir heimild til kaupa á Steinway-flygli sem nú er í eigu Íslensku óperunnar. Núverandi flygill í Tónbergi er farinn að láta á sjá vegna mikillar notkunar og er gert ráð fyrir að hann verði færður í hljómsveitarstofu skólans þar sem einnig er þörf á endurnýjun hljóðfæris. Um er að ræða vandað hljóðfæri í mjög góðu ástandi sem mun að mati skólastjóra nýtast skólanum næstu 20–30 árin. Áætlað kaupverð er 12 m.kr. en til samanburðar má gera ráð fyrir að kostnaður við kaup á nýjum Steinway-flygli af sambærilegum gæðum sé á bilinu 20–35 m.kr. eftir stærð og gerð hljóðfærisins. Hér gefst því afar hagstætt tækifæri til endurnýjunar á hljóðfæraeign skólans til langs tíma. Jafnframt er von á gjöf frá velunnurum skólans til hljóðfærakaupanna. Áætluð fjármögnunarþörf Akraneskaupstaðar nemur því um 10 m.kr. Mennta- og menningarráð tekur undir sjónarmið skólastjóra um mikilvægi endurnýjunar á hljóðfæraeign Tónlistarskóla Akraness. Að mati ráðsins felst í kaupunum einstakt tækifæri til að eignast hágæða hljóðfæri á hagstæðu verði sem mun nýtast til tónlistarkennslu og tónleikahalds næstu áratugi. Kaupin myndu jafnframt styrkja enn frekar þá góðu aðstöðu til tónleikahalds sem er í Tónbergi. Mennta- og menningarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu hjá bæjarráði í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. |
|
6. 2609-6796 - Beiðni um fjölgun stöðugilda í Tónlistarskóla Akraness - fjárhagsáætlun 2027 Skólastjóri tónlistarskólans óskar eftir því við mennta- og menningarráð Akraneskaupstaðar að veitt verði fjármagn til fjölgunar stöðugilda sem nemur 1,75 stöðugildi í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Mennta- og menningarráð leggur til við bæjarráð að stöðugildum við Tónlistarskóla Akraness verði fjölgað um samtals 1,0 á árinu 2027. Gert er ráð fyrir að fjölgunin komi til framkvæmda í tveimur áföngum, að stöðugildum fjölgi um 0,5 frá janúar til maí og um 0,5 í ágúst til desember. Afstaða til frekari fjölgunar stöðugilda verði tekin í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2028.Fjölgun stöðugilda er ætlað að mæta tónlistarkennslu fyrir fatlað fólk auk þess að draga úr biðlistum eftir námi við skólann. Ráðið tekur undir ábendingar skólastjóra um að stöðugildafjöldi við Tónlistarskóla Akraness hafi haldist óbreyttur frá því að íbúafjöldi á Akranesi var um 5.000 manns og hafi því ekki tekið mið af þeirri umtalsverðu íbúafjölgun og auknu eftirspurn eftir námi við skólann sem orðið hefur á undanförnum árum. Málinu er vísað til afgreiðslu hjá bæjarráði í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. |
|
7. 2611-8616 - Hækkun á niðurgreiðslum til dagforeldra Lögð er fram tillaga um hækkun á niðurgreiðslu Akraneskaupstaðar vegna vistunar barna hjá dagforeldrum. Mennta- og menningarráð leggur til að fjárhæð niðurgreiðslu vegna dvalar hjá dagforeldrum fyrir börn sem náð hafa innritunaraldri í leikskóla hækki úr 105.000 kr. í 116.000 kr. á mánuði frá og með 1. janúar 2027. Málinu er vísað til afgreiðslu hjá bæjarráði. |
|
8. 2611-8636 - Framlög til bókakaupa á bókasöfnum Akraness Endurskoðun á framlögum til bókakaupa í bókasöfnum Akraneskaupstaðar í tengslum fjárhagsáætlanagerð 2027. Framlög til bókakaupa hjá bókasöfnum Akraneskaupstaðar hafa ekki tekið hækkunum undanfarin ár. Mennta- og menningarráð leggur til að framlög til bókakaupa verði hækkuð um 11% fyrir árið 2027 með það að markmiði að efla bókakost, auka aðgengi að fjölbreyttu lesefni og stuðla að auknum lestraráhuga meðal íbúa á öllum aldri. Um er að ræða skólabókasöfnin í Brekkubæjarskóla og Grundaskóla ásamt Bókasafni Akraness.Mennta- og menningarráð vísar málinu til afgreiðslu hjá bæjarráði í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. |
|
9. 2611-8641 - Vökudagar 2026 Menningarhátíðin Vökudagar var haldin dagana 22. október til 1. nóvember 2026. Mennta- og menningarráð lýsir sérstakri ánægju með vel heppnaða Vökudaga 2026. Hátíðin endurspeglar þann kraft, sköpun og samstöðu sem einkennir menningarlíf á Akranesi. Ráðið þakkar viðburðastjóra og verkefnastjóra fyrir metnaðarfullt skipulag og framkvæmd, fjölmörgum listamönnum og öðrum þátttakendum fyrir þeirra ómetanlega framlag og verslunar- og fyrirtækjaeigendum fyrir góða þátttöku og samstarf. Ráðið þakkar jafnframt íbúum Akraness fyrir góðar móttökur og þátttöku sem á ríkan þátt í að skapa þá einstöku stemningu sem einkennir Vökudaga. |
|
10. 2611-8642 - Styrkir til menningartengdra verkefna 2027 Akraneskaupstaður auglýsir umsókn til menningarstyrkja árið 2027. Auglýsingar verða settar í loftið í vikunni 16-20 nóvember. Mennta- og menningarráð samþykkir að auglýsa eftir umsóknum um styrki til menningartengdra verkefna fyrir árið 2027. Verkefnastjóra er falið að opna fyrir umsóknir um menningarstyrki og annast kynningu á umsóknarfresti. |
|
11. 2610-7636 - Erindi frá Keilufélagi Akraness - óskað er eftir hækkun á árlegur rekstrarframlagi til félagsins Keilufélag Akraness óskar eftir því við Akraneskaupstað að árlegt rekstrarframlag Keilufélags Akraness verði hækkað úr 2.181.170 kr. í 2.922.768 kr. frá og með næsta samningstímabili og verði áfram vísitölutryggt. Rekstur keilusalarins hefur verið í höndum félagsins um árabil og felur í sér umsjón með daglegum rekstri, viðhaldi og þjónustu við almenning, skóla og íþróttastarf. Mennta- og menningarráð óskaði eftir frekari gögnum sem hér verða tekin til umfjöllunar. Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi S-lista og Ólafur Rúnar Sigurðsson áheyrnarfulltrúi M-lista víkja af fundi undir þessum dagskrárlið. Með hliðsjón af gildandi samningi Akraneskaupstaðar og Keilufélags Akraness sem og ársreikningum félagsins fyrir árin 2024 og 2025, telur mennta- og menningarráð ekki forsendur til hækkunar á rekstrarstyrk til félagsins á yfirstandandi samningstímabili, einkum í ljósi þess að samningurinn er nú þegar vísitölutryggður.Samkvæmt ákvæðum samningsins framlengist hann óbreyttur til þriggja ára í senn, hafi honum ekki verið sagt upp af öðrum hvorum samningsaðila með sex mánaða fyrirvara. Mennta- og menningarráð lýsir yfir vilja til að taka samninginn til endurskoðunar árið 2028 en hann gildir nú til 31. desember 2028. |





