Fara í efni  

Mennta- og menningarráð

9. fundur 03. nóvember 2026 kl. 08:15 - 11:00 Lindin, Dalbraut 4
Starfsmenn
  • Liv Aase Skarstad formaður mennta- og menningarráðs
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson varaformaður mennta- og menningarráðs
  • Helga Björg Þrastardóttir aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi
  • Finney Aníta Thelmudóttir áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir Sviðsstjóri

1. 2610-8286 - Jaðarsbakkar - Innilaug

Ragnar Baldvin Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs kynnir meðfylgjandi hugmynd að staðsetningu nýrrar innisundlaugar á Jaðarsbökkum, fyrir mennta- og menningarráði.

Mennta- og menningarráð þakkar Ragnari fyrir kynninguna og tekur jákvætt í framkomnar hugmyndir um framtíðarþróun Jaðarsbakka og telur þær mikilvægt innlegg í áframhaldandi stefnumótun um uppbyggingu svæðisins. Fyrirliggjandi hugmyndatillögur geta nýst sem grunnur að frekari greiningu, stefnumótun og forgangsröðun verkefna. Ráðið leggur áherslu á að við áframhaldandi vinnu verði horft til fjölbreyttra þarfa samfélagsins, þar á meðal íþrótta-, tómstunda- og sundstarfs, almennrar lýðheilsu, aðgengis og hagkvæmrar nýtingar mannvirkja. Mikilvægt er að framtíðarskipulag svæðisins byggi á heildarsýn, samlegðaráhrifum mannvirkja og skýrri forgangsröðun verkefna til lengri tíma.

 

2. 2609-7072 - Laun Vinnuskólans

Bæjarráð óskar eftir umræðu um hækkun á launum vinnuskólans (n.tt.14 til 16 ára) í mennta- og menningarráði. Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri forvarna- og frístundamála fylgir málinu eftir ásamt Ragnari Baldvini Sæmundssyni formanni skipulags- og umhverfisráðs.

Mennta- og menningarráð felur vinnuhópi að skila niðurstöðum um þróun launakjara í Vinnuskólanum eigi síðar en í lok febrúar 2027. Í vinnuhópnum sitji tveir fulltrúar mennta- og menningarráðs og tveir fulltrúar skipulags- og umhverfisráðs ásamt starfsfólki viðkomandi sviða.

Heiðrún Janusardóttir og Ragnar Baldvin Sæmundsson víkja af fundi.

 

3. 2610-8103 - Verklagsreglur Tónlistarskólans á Akranesi

Stjórnendur Tónlistarskólans á Akranesi leggja fram til umfjöllunar í mennta- og menningarráði verklagsreglur um starfsemi skólans. Jónína Erna Arnardóttir situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Mennta- og menningarráð fagnar setningu fyrstu formlegu verklagsreglna Tónlistarskólans á Akranesi. Verklagsreglurnar stuðla að auknu samræmi, skýrari verkferlum og betri upplýsingagjöf til nemenda, forráðamanna og starfsfólks og styrkja um leið faglega umgjörð starfseminnar.

Jónína Erna Arnarsdóttir víkur af fundi.

 

4. 2611-8296 - Kynning á starfsemi Íþróttabandalags Akraness og áherslur 2027

Heiðar Mar Björnsson framkvæmdarstjóri Íþróttabandalags Akraness kynnir starfsemi ÍA og áherslur fyrir árið 2027.

Mennta- og menningarráð þakkar Heiðari Mar fyrir greinargóða kynningu á starfsemi íþróttabandalags Akraness og helstu áherslur við gerð fyrir árið 2027.

Heiðar Mar Björnsson víkur af fundi.

 

5. 2610-8106 - Starfsáætlun Grundaskóla 2026-2027

Starfsáætlun Grundaskóla er lögð fram til kynningar. Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla fylgir málinu eftir.

Mennta- og menningarráð staðfestir starfsáætlun fyrir Grundaskóla skólaárið 2026-2027 og þakkar Sigurði Arnari skólastjóra Grundaskóla fyrir góða kynningu.

Sigurður Arnar Sigurðsson víkur af fundi.

 

6. 2611-8295 - Heimgreiðslur til foreldra ungra barna

Lögð er fram tillaga að fyrirkomulagi heimgreiðslna til foreldra ungra barna, þeim er ætlað að brúa bilið þar til barn fær pláss hjá dagforeldri eða í leikskóla.

Mennta- og menningarráð telur mikilvægt að unnið verði að útfærslu heimgreiðslna sem tímabundins valkosts fyrir foreldra til að brúa bil þar til barn fær leikskólapláss eða pláss hjá dagforeldri. Ráðið lýsir vilja til þess að fyrirkomulagið taki gildi 1. janúar 2027. Við nánari útfærslu verði jafnframt horft til núverandi fyrirkomulags niðurgreiðslna vegna dagforeldra og samspils þessara úrræða, með það að markmiði að tryggja samræmt fyrirkomulag stuðnings við foreldra.

Málinu er vísað til afgreiðslu hjá bæjarráði ásamt tillögum að útfærslu heimgreiðslna og verklagsreglum um framkvæmd þeirra.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu