Fara í efni  

Mennta- og menningarráð

8. fundur 21. október 2026 kl. 15:30 - 20:30 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Liv Aase Skarstad formaður mennta- og menningarráðs
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson varaformaður mennta- og menningarráðs
  • Helga Björg Þrastardóttir aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi
  • Finney Aníta Thelmudóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs
  • Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri mennta- og menningarsviðs
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir Sviðsstjóri

1. 2610-7636 - Erindi frá Keilufélagi Akraness - ósað er eftir hækkun á árlegur rekstrarframlagi til félagsins

Keilufélag Akraness óskar eftir því við Akraneskaupstað að árlegt rekstrarframlag Keilufélags Akraness verði hækkað úr 2.181.170 kr. í 2.922.768 kr. frá og með næsta samningstímabili og verði áfram vísitölutryggt. Rekstur keilusalarins hefur verið í höndum félagsins um árabil og felur í sér umsjón með daglegum rekstri, viðhaldi og þjónustu við almenning, skóla og íþróttastarf. Guðmundur Sigurðsson framkvæmdarstjóri Keilufélags Akraness situr fundinn undir þess dagskrárlið ásamt Heiðari Mar Björnssyni framkvæmdarstjóri ÍA sem situr fundinn undir dagskrárliðum 1-3.

Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi Samfylkingar víkur af fundi.

Mennta- og menningarráð þakkar Guðmundi og Heiðari Mar fyrir gott samtal um umfang og rekstur félagsins. Ráðið óskar eftir frekari gögnum, þar með talið ársreikning félagsins svo hægt sé að vinna málið áfram.

 

Guðmundur Sigurðsson framkvæmdastjóri keilufélagsins víkur af fundi.

Kristinn Hallur Sveinsson tekur aftur sæti á fundinum.

2. 2610-7467 - Tillaga og beiðni frá Íþróttabandalagi Akraness um aukna opnun í sundlauginni á Jaðarsbökkum

Íþróttabandalags Akraness óskar eftir því að skoðaður verði sá möguleiki að lengja opnunartíma sundlaugarinnar á Jaðarsbökkum á laugardagskvöldum til kl. 22:00. Að mati ÍA gæti slík breyting haft margvísleg jákvæð áhrif fyrir samfélagið, ekki síst fyrir ungmenni. Markmiðið er að skapa öruggan, heilsueflandi og eftirsóknarverðan samverustað þar sem ungt fólk getur komið saman á kvöldin um helgar undir jákvæðum og skipulögðum formerkjum.

Mennta- og menningarráð tekur jákvætt í að kanna möguleika á opnun til kl. 22:00 með það að markmiði að skapa ungmennum öruggan, heilsueflandi og skipulagðan samverustað um helgar. Ráðið felur sviðsstjóra í samráði við forstöðumann íþróttamannvirkja að meta kostnað, mönnunarþörf og framkvæmd mögulegrar breytingar og leggja niðurstöður fyrir ráðið.

3. 2601-0028 - Framhaldsmál - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026

Kynning á samningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness fyrir nýjum fulltrúum í mennta- og menningarráði. Samningurinn tekur gildi 1. janúar 2027.

 Mennta- og menningarráð þakkar fyrir kynningu á nýjum þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.

Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri íþróttabandalags Akraness víkur af fundi.

4. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri fer yfir stöðu málaflokka mennta- og menningarráðs fyrir fyrstu átta mánuði ársins.

Mennta- og menningarráð þakkar fjármálastjóra fyrir greinargott yfirlit.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri víkur af fundi.

5. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Drög að gjaldskrám fyrir árið 2027 lagðar fram til kynningar.

Lagt fram.

6. 2610-7288 - Fjölgun leikskólaplássa

Mennta- og menningarráð tekur áfram til umræðu stöðuna á fjölda barna í leikskólum og framtíðarsýn í tengslum við leikskólapláss í sveitarfélaginu.

Mennta- og menningarráð hefur farið yfir stöðu leikskólaplássa í sveitarfélaginu og undirstrikar mikilvægi þess að tryggja bæði gæði leikskólastarfs og aðgengi barna að leikskólaplássum. Ráðið telur mikilvægt að forgangsraða uppbyggingu nýs leikskóla og að undirbúningur þeirrar framkvæmdar hefjist sem fyrst. 

Ráðið telur jafnframt mikilvægt að fjármunum sveitarfélagsins verði forgangsraðað þannig að þeir styðji sem best við framtíðaruppbyggingu leikskólamála. Við það mat þarf að horfa til kostnaðar, áhrifa á gæði leikskólastarfs og útisvæða barna, sem og þess ávinnings sem einstakar framkvæmdir skila til lengri tíma.

Verði nauðsynlegt að grípa til tímabundinna húsnæðislausna á framkvæmdatíma leggur ráðið áherslu á að skipulag þeirra taki mið af reynslu starfsfólks sem fram kemur í fyrirliggjandi gögnum. Sérstök áhersla verði lögð á að tryggja velferð barna, fjölbreytt og faglegt starf, aukna útivist, skiptingu í smærri hópa, aðgengi að rólegum rýmum og viðeigandi stuðning fyrir börn með ólíkar þarfir. Þá verði leitast við að viðhalda gæðum þjónustunnar eins og kostur er og tryggja að allar tímabundnar ráðstafanir styðji við markmið sveitarfélagsins um öruggt og uppbyggilegt umhverfi fyrir börn. 

Ráðið telur mikilvægt að allar ákvarðanir um húsnæðislausnir vegna leikskóla og frístundastarfs taki mið af bæði skammtímaþörfum og langtímaþróun sveitarfélagsins, með það að markmiði að tryggja börnum og fjölskyldum sem besta þjónustu til framtíðar.

 

Bókun frá fulltrúum Samfylkingar og Viðreisnar: Fulltrúi Viðreisnar og áheyrnarfulltrúi Samfylkingar í Mennta- og menningarráði eru ósammála því að áherslan verði eingöngu á uppbyggingu nýs leikskóla. Halda þarf áfram undirbúningi að stækkun Akrasels samhliða vinnu við nýjan leikskóla.

7. 2609-7015 - Starfsmannakönnun á stöðu farsældarþjónustu vor 2026

Lagðar eru fram niðurstöður tveggja kannana um farsældarþjónustu á Akranesi frá vorinu 2026. Önnur var lögð fyrir starfsfólk leikskóla, grunnskóla og frístundar, hin fyrir tengiliði og málstjóra farsældar.

Mennta- og menningarráð þakkar fyrir kynningu á niðurstöðum starfsmannakannana um farsældarþjónustu á Akranesi vorið 2026. Niðurstöðurnar endurspegla almenna ánægju með þjónustuna og samstarf þeirra aðila sem að henni koma. Jafnframt draga þær fram tækifæri til frekari þróunar og umbóta.

Ráðið fagnar sérstaklega því að mikill meirihluti svarenda telji þjónustu við börn og fjölskyldur hafa batnað frá gildistöku farsældarlaganna. Niðurstöðurnar eru mikilvæg staðfesting á þeim árangri sem náðst hefur og undirstrika mikilvægi þess að halda áfram markvissri þróun samþættrar þjónustu, með snemmtækan stuðning og hagsmuni barna að leiðarljósi.

Mennta- og menningarráð lýsir jafnframt þungum áhyggjum af áformum ríkisstjórnarinnar um að fella niður fjárframlög til sveitarfélaga vegna áframhaldandi innleiðingar og þróunar farsældarþjónustu og mótmælir þeim harðlega. Reynslan á Akranesi og niðurstöður starfsmannakannana sýna mikilvægi þeirrar uppbyggingar sem átt hefur sér stað og þess árangurs sem náðst hefur með aukinni samþættingu þjónustu og snemmtækum stuðningi við börn og fjölskyldur. Ráðið telur að fyrirhuguð niðurfelling framlaga geti stefnt áframhaldandi þróun þjónustunnar í hættu og dregið úr möguleikum sveitarfélaga til að festa þann árangur í sessi sem þegar hefur náðst. Ráðið skorar því á ríkisstjórnina að endurskoða áformin og tryggja sveitarfélögum áframhaldandi fjárhagslegan stuðning til að standa undir þeim verkefnum og þeirri ábyrgð sem farsældarlögin fela þeim, í þágu barna og fjölskyldna.

8. 2610-7883 - Nemendatölvur - mat á verkefni

Mennta- og menningarráð fól sviðsstjóra að skoða heildstætt mat á verkefninu um nemendatölvur grunnskólanema með hliðsjón af endurnýjunaráætlun búnaðar og samræmingu verkefnisins milli skóla. Lagt er fram minnisblað sem byggir á gögnum frá nemendum, kennurum, stjórnendum og tölvuumsjón.

Mennta- og menningarráð þakkar sviðsstjóra fyrir kynningu á minniblaði um þróun verkefnisins um nemendatölvur í grunnskólum Akraneskaupstaðar. Þar eru lagðar fram tillögur er snúa að endurnýjun búnaðar sem ráðið vill taka til frekari skoðunar með tölvuumsjónarmanni. Málið verður tekið aftur fyrir á næsta fundi ráðsins.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu