Fara í efni  

Mennta- og menningarráð

7. fundur 06. október 2026 kl. 08:15 - 11:45 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Liv Aase Skarstad formaður mennta- og menningarráðs
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson varaformaður mennta- og menningarráðs
  • Helga Björg Þrastardóttir aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi
  • Finney Aníta Thelmudóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs
  • Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri mennta- og menningarsviðs
Fundargerð ritaði: Maren Ósk Elíasdóttir Verkefnastjóri

1. 2610-7250 - Beiðni frá Teigaseli um tilfærslu á skipulagsdögum

Íris Guðrún Sigurðardóttir leikskólastjóri Teigasels óskar eftir því við mennta- og menningarráð að leikskólinn verði opinn 4. janúar og 30. mars en lokaður 7. og 10. maí 2027.

Mennta- og menningarráð samþykkir beiðni leikskólastjóra Teigasels um tilfærslu á skipulagsdögum leikskólana vegna fyrirhugaðrar endurmenntunar starfsfólks.

2. 2610-7241 - Kynning á starfsemi Byggðarsafnsins og áherslur í fjárhagsáætlun 2027

Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri menningar- og safnamála kynnir starfsemi Byggðarsafnsins í Görðum og áherslur í fjárhagsáætlun 2027

Mennta- og menningarráð þakkar fyrir áhugaverða kynningu á starfseminni og þeim verkefnum sem Byggðasafnið stendur fyrir og ráðið getur tekið mið af við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Vera Líndal Guðnadóttir víkur af fundi.

3. 2609-6842 - Kynning á starfsemi leikskólanna og áherslur í fjárhagsáætlun 2027

Leikskólastjórar Akrasels, Garðasels, Teigasels og Vallarsels kynna starfsemi leikskóla og áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027

Mennta- og menningarráð þakkar leikskólastjórum fyrir greinargóða kynningu á starfsemi leikskólanna á Akranesi og helstu áherslur við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Leikskólastjórar víkja af fundi.

4. 2610-7288 - Fjölgun leikskólaplássa

Mennta- og menningarráð tekur til umræðu stöðuna á fjölda barna í leikskólum og framtíðarsýn í tengslum við fjölgun leikskólaplássa í sveitarfélaginu.

Mennta- og menningarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar ráðsins.

5. 2609-6659 - Samningstilboð UNICEF - Barnvænt sveitarfélag 2026-2029

Lagt er fram minnisblað um ávinning fyrir Akraneskaupstað af innleiðingu á verkefninu Barnvænt sveitarfélag í tengslum við ákvörðun um endurnýjun samstarfs við UNICEF um áframhald verkefnisins.

Mennta- og menningarráð hefur kynnt sér framlagt minnisblað um ávinning verkefnisins "Barnvænt sveitarfélag" og tekur undir mikilvægi þess að sá árangur sem náðst hefur verði tryggður til framtíðar. Ráðið leggur til við bæjarráð að tekin verði afstaða til endurnýjunar samstarfs við UNICEF á Íslandi um Barnvænt sveitarfélag og leggur áherslu á að ákvörðuninni fylgi tryggt starfshlutfall til umsjónar með verkefninu, enda hefur reynslan sýnt að trygg mönnun er forsenda þess að árangur náist.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu