Mennta- og menningarráð
|
1. 2609-7093 - Kynning á starfsemi grunnskólanna og áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla og Elsa Lára Arnarsdóttir skólastjóri Brekkubæjarskóla kynna starfsemi grunnskólanna og fer yfir helstu áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 Mennta- og menningarráð þakkar skólastjórum grunnskólanna fyrir greinargóða kynningu á starfsemi Grundaskóla og Brekkubæjarskóla og helstu áherslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Sigurður Arnar Sigurðsson og Elsa Lára Arnardóttir víkja af fundi. |
|
2. 2609-7094 - Kynning á starfsemi safna Akraneskaupstaðar og áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 Ingibjörg Ösp Júlíusdóttir bæjarbókavörður á bókasafni Akraneskaupstaðar og Erla Dís Sigurjónsdóttir héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Akraness kynna starfsemi safnanna og áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 Mennta- og menningarráð þakkar fyrir góða og ítarlega kynningu á starfsemi safnanna, þeim tækifærum og áskorunum sem starfinu fylgja og helstu áherslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Ingibjörg Ösp Júlíusdóttir og Erla Dís Sigurjónsdóttir víkja af fundi. |
|
3. 2609-6489 - Vinnuskólinn skýrsla 2026 Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála og Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri og umsjónarmaður vinnuskóla fara yfir starfsemi vinnuskólans og framtíðar áætlanir skólans. Mennta- og menningarráð þakkar Jóni og Heiðrúnu fyrir yfirferðina og leggur áherslu á að vinna við endurskoðun á Vinnuskóla Akraness hefjist sem fyrst. Ráðið leggur til að fulltrúar úr mennta- og menningarráði og skipulags- og umhverfisráði ásamt starfsfólki sviðanna skipi vinnuhóp sem skilar af sér niðurstöðum í síðasta lagi í lok febrúar 2027. Heiðrún Janusardóttir og Jón Arnar Sverrisson víkja af fundi. |
|
4. 2609-7097 - Erindi frá Skátafélagi Akraness um aðgang að sundlaug eða Guðlaugu vegna Fálkaskátadags Skátafélag Akraness óskar eftir aðgangi að sundlauginni að Jaðarsbakkalaug eða Guðlaugu vegna Fálkaskátadagsins sem haldinn verður 7. nóvember næst komandi Mennta- og menningarráð tekur vel í erindi Skátafélag Akraness og vísar málinu áfram til afgreiðslu hjá bæjarráði. |





