Fara í efni  

Mennta- og menningarráð

5. fundur 16. september 2026 kl. 15:30 - 19:30 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Liv Aase Skarstad formaður mennta- og menningarráðs
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson varaformaður mennta- og menningarráðs
  • Helga Björg Þrastardóttir aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi
  • Finney Aníta Thelmudóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs
  • Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri mennta- og menningarsviðs
Fundargerð ritaði: Maren Ósk Elíasdóttir Verkefnastjóri

1. 2609-6745 - Kynning á starfsemi Þorpsins og áherslur í fjárhagsáætlun 2027

Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins og Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála kynna starfsemi Þorpsins og áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027

Mennta- og menningarráð þakkar fyrir góða og ítarlega kynningu á starfsemi Þorpsins og helstu áherslum við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027.

Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins og Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála víkja af fundi.

2. 2609-6786 - Erindi frá Þorpinu - ósk um aukna fjárveitingu til leigu á ökutæki

Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins óskar eftir að gert verði ráð fyrir fjárheimild í fjárhagsáætlun vegna leigu á bifreið sem nýst getur fjölbreyttri starfsemi Þorpsins.

Mennta- og menningarráð felur forstöðumanni Þorpsins að afla mismunandi tilboða í rekstur á bíl sem hentar starfsemi Þorpsins, með hliðsjón af rekstrarkostnaði, þjónustuþörf og hagkvæmni fyrir starfsemina. Niðurstöður verði lagðar fyrir ráðið til frekari umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar 2027.

3. 2609-6747 - Kynning á starfsemi íþróttamannvirkjanna og áherslur í fjárhagsáætlun 2027

Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja kynnir starfsemi íþróttamannvirkjanna á Akranesi og áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027.

Mennta- og menningarráð þakkar Daníel fyrir ítarlega kynningu á starfsemi íþróttamannvirkja og þau verkefni sem ráðið getur tekið mið af inn í fjárhagsáætlunargerð 2027.

4. 2609-6793 - Ósk um heimild til lokunar íþróttamannvirkja vegna starfsdags starfsfólks

Forstöðumaður íþróttamannvirkja óskar eftir heimild til að loka íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar — Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum, Íþróttahúsinu við Vesturgötu og Bjarnalaug — vegna starfsdags á vegum Símenntunar á Vesturlandi. Tímasetning starfsdagsins liggur ekki fyrir en við ákvörðun hennar verður leitast við að lágmarka röskun á starfsemi mannvirkjanna, meðal annars með hliðsjón af vikudegi.

Mennta- og menningarráð tekur jákvætt í erindið og vísar beiðni forstöðumanns íþróttamannvirkja, um heimild til að loka íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar vegna endurmenntunar starfsfólks, til umfjöllunar hjá bæjarráði. Ráðið leggur áherslu á að lokunin verði ákveðin í samráði við hagsmunaaðila og tímasett þannig að hún valdi sem minnstri röskun á starfsemi mannvirkjanna. Forstöðumanni íþróttamannvirkja er falið að ákveða heppilega tímasetningu með hliðsjón af framangreindu.

Daníel S. Glad víkur af fundi.

5. 2609-6748 - Kynning á menningarmálum og viðburðarhaldi Akraneskaupstaðar og áherslum fyrir fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027

Vera L. Guðnadóttir verkefnastjóri menningar- og safnamála kynnir fyrir ráðinu stöðu menningarmála og viðburðahalds og áherslur í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027.

Mennta- og menningarráð þakkar verkefnastjóra menningar - og safnamála fyrir góða kynningu.

6. 2609-6762 - Menningarverðlaun 2026

Mennta- og menningarráð fer yfir tilnefningar til menningarverðlauna árið 2026. Ráðið þakkar fyrir fjölda tilnefninga, verðlaunin verða veitt á setningu Vökudaga líkt og undanfarin ár.

Niðurstöðu mennta- og menningarráðs ásamt rökstuðningi verður vísað til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarstjórn.

Vera L. Guðnadóttir verkefnastjóri víkur af fundi

7. 2609-6785 - Beiðni frá Akraseli um tilfærslu á skipulagsdögum

Leikskólastjóri óskar eftir því við mennta- og menningarráð að leikskólinn verði opinn 4. janúar og 30. mars en lokaður 7. og 10. maí 2027 vegna náms- og kynnisferðar starfsfólks.

Mennta- og menningarráð samþykkir beiðni leikskólastjóra Akrasels um tilfærslu á skipulagsdögum leikskólana vegna fyrirhugaðrar endurmenntunar starfsfólks.

8. 2609-6799 - Tónberg - ljósabúnaður

Erindi frá skólastjóra tónlistarskólans um endurnýjun á ljósabúnaði í Tónbergi. Núverandi búnaður er úreltur og erfitt að fá perur og aðra varahluti til að halda honum við.

Mennta- og menningarráð óskar eftir því að skólastjóri fái uppfært tilboði vegna ljósabúnaðar í Tónberg. Jafnframt að aflað sé fleiri tilboða og kannað hvort unnt sé að áfangaskipta verkefninu.

9. 2608-5813 - Íþróttavika - Be Active 2026

Í tilefni af Íþróttaviku 2026 leggja Íþróttabandalag Akranes og mennta- og menningarsvið Akraneskaupstaðar til að frítt verði í sund laugardaginn 26. september 2026. ÍA og Akraneskaupstaður munu bjóða upp á ýmsa viðburði dagana 23. - 30. september og lagt er til að boðið verði upp á einn gjaldfrjálsan dag á tímabilinu.

Mennta- og menningarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu