Mennta- og menningarráð
|
1. 2608-6267 - Lykiltölur á mennta- og menningarsviði haustið 2026 Yfirlit yfir fjölda barna í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla, frístundaheimilum og hjá dagforeldrum haustið 2026. Lagt fram til kynningar. |
|
2. 2608-6222 - Verklag um þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga við börn í leikskólum Drög að verklagi um þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga í leikskóla Akraneskaupstaðar lögð fram Mennta- og menningarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að verklagi um þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga í leikskólum Akraneskaupstaðar. Ráðið leggur áherslu á að verklagið tryggi samræmda, faglega og gagnsæja þjónustu með hagsmuni barna að leiðarljósi. Ráðið felur mennta- og menningarasviði að fullvinna og innleiða verklagið með stjórnendum leikskóla. |
|
3. 2608-6266 - Reiknilíkön leik- og grunnskóla Sviðsstjóri kynnir reiknilíkön leik- og grunnskóla fyrir nýju ráði og fjallar almennt um úthlutun fjármagns til leik- og grunnskóla. Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri situr fundinn undir dagskrárliðum 3 og 4. Lagt fram til kynningar. |
|
4. 2608-6265 - Kynning á starfsemi TOSKA og áherslur í fjárhagsáætlun 2027 Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri TOSKA kynnir starfsemi skólans og áherslur stjórnenda fyrir fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027. Mennta- og menningarráð þakkar Jónínu Ernu fyrir góða og fróðlega kynningu á starfsemi TOSKA. Ráðið leggur áherslu á að standa áfram vörð um þjónustu og mikilvægt starf Tónlistarskólans á Akranesi. Framlögð erindi TOSKA í tengslum við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027 verða tekin fyrir sérstaklega á næstu fundum ráðsins. Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri og Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri TOSKA víkja af fundi. |
|
5. 2512-5749 - Framhaldsmál - Invest in play Verkefnastjóri mennta- og menningarsviðs leggur fram tillögu um fyrirkomulag foreldranámskeiðsins Tengjumst í leik Mennta- og menningarráð samþykkir framlagða tillögu um fyrirkomulag foreldranámskeiðsins Tengjumst í leik. Ráðið felur verkefnastjóra að vinna að framkvæmd námskeiðsins í samræmi við tillöguna. |
|
6. 2608-5894 - Nemendatölvur - erindi frá Brekkubæjarskóla Skólastjórnendur Brekkubæjarskóla óska eftir viðbótarfjárheimild til kaupa á 10 nemendatölvum. Afgreiðslu málsins var frestað á síðasta fundi ráðsins. Mennta- og menningarráð vísar endanlegri afgreiðslu á beiðni Brekkubæjarskóla um frekari kaup á nemendatölvum til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027. Ráðið leggur áherslu að ákvörðun byggi á þeirri vinnu sem fram undan er við að kortleggja framkvæmd og nýtingu nemendatölva í grunnskólum Akraness. |





