Fara í efni  

Mennta- og menningarráð

3. fundur 18. ágúst 2026 kl. 08:15 - 11:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Liv Aase Skarstad formaður mennta- og menningarráðs
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson varaformaður mennta- og menningarráðs
  • Helga Björg Þrastardóttir aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi
  • Finney Aníta Thelmudóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs
  • Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri mennta- og menningarsviðs
Fundargerð ritaði: Maren Ósk Elíasdóttir Verkefnastjóri

1. 2608-5894 - Nemendatölvur - erindi frá Brekkubæjarskóla

Skólastjórnendur Brekkubæjarskóla óska eftir viðbótarfjárheimild til kaupa á 10 nemendatölvum. Ásmundur G. Haraldsson aðstoðarskólastjóri Brekkubæjarskóla fylgir málinu eftir fyrir hönd stjórnenda.

Mennta- og menningarráð þakkar Ásmundi Haraldssyni, aðstoðarskólastjóra Brekkubæjarskóla, fyrir greinargóða yfirferð á stöðu endurnýjunar tölvubúnaðar skólans. Ráðið felur sviðsstjóra að skoða verkefnið heildstætt, með hliðsjón af endurnýjunaráætlun búnaðar og samræmingu verkefnisins milli skóla. Málið verður tekið aftur fyrir á næsta fundi ráðsins.

Ásmundur Haraldsson víkur af fundi

2. 2606-5241 - Endurmenntun grunnskóla 2026-2027

Mennta- og menningarsvið Akraneskaupstaðar stóð fyrir dagskrá á endurmenntunardögum kennara dagana 12. og 13. ágúst. Að þessu sinni var um að ræða samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar.

Mennta- og menningarráð lýsir ánægju með vel heppnaða endurmenntunardaga kennara og samstarf sveitarfélaganna þriggja. Ráðið fagnar því jafnframt að áformað sé að halda samstarfinu áfram.

3. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri fer yfir stöðu málaflokka mennta- og menningarráðs fyrir fyrstu fimm mánuði ársins.

Mennta- og menningarráð þakkar fjármálastjóra fyrir góða yfirferð.

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

4. 2604-2763 - Afhending verkefna menningar- og safnanefndar 2026

Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri menningar- og safnamála kynnir fyrir nefndinni minnisblað frá menningar- og safnanefnd um verkefni nefndarinnar.

Mennta- og menningarráð þakkar verkefnastjóra fyrir ítarlega og góða kynningu á verkefnum menningar- og safnanefndar.

Vera Líndal verkefnastjóri víkur af fundi

5. 2604-3317 - 8. bekkur sumar 2026 - þátttaka í námskeiðum/viðburðum

Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála og Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir verkefnastjóri farsæls frístundastarfs fara yfir þátttöku 8. bekkinga í sumartilboðum Akraneskaupstaðar.

Mennta- og menningarráð þakkar Heiðrúnu og Guðrúnu fyrir góða yfirferð á þátttöku í sumartilboðum Akraneskaupstaðar. Fram kom að um 60 prósent barna í 8. bekk skráðu sig í eitt eða fleiri tilboð. Mennta- og menningarráð leggur áherslu á að unnin verði heildstæð áætlun um Vinnuskóla Akraneskaupstaðar þar sem hlutverk, markmið, verkefni, mönnun og kostnaður verði skýrð. Ráðið telur mikilvægt að undirbúningur og kynning á sumarúrræðum hefjist fyrr og að skoðað verði hvernig samþætta megi námskeið, tómstundir og vinnuskóla með markvissum hætti. Mæting í almennu félagsmiðstöðvastarfi hélst mjög góð fyrri hluta sumaropnunar í júní en dróst lítillega saman eftir því sem leið á sumarið. Almennt tókst viðbótaropnun yfir sumarið mjög vel og var hún, að sögn starfsmanna, afar skemmtileg.

6. 2608-5793 - Íslenskar æskulýðsrannsóknir - Niðurstöður vorönn 2026

Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála og Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir verkefnastjóri farsæls frístundastarfs kynna helstu niðurstöður Akraneskaupstaðar úr Íslensku æskulýðsrannsókninni.

Ráðið þakkar fyrir góða yfirferð. Í heildina eru niðurstöðurnar góðar en mikilvægt er að nýta þær áfram til umbóta. Lagt er til að skólarnir komi með tillögur að því hvernig niðurstöðurnar verði nýttar. Sviðsstjóra falið að fylgja því eftir.

7. 2601-0744 - Farsældarráð Vesturlands

Mennta- og menningarráð gerir tillögu til bæjarstjórnar að fulltrúa úr ráðinu til setu í Farsældarráði Vesturlands.

Mennta- og menningarráð gerir það að tillögu sinni að Liv Aase Skarstad verði fulltrúi fyrir hönd mennta- og menningarráðs Akraneskaupstaðar í Farsældarráði Vesturlands og Finney Aníta Telmudóttir verði til vara.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu