Fara í efni  

Mennta- og menningarráð

2. fundur 04. ágúst 2026 kl. 08:15 - 11:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Liv Aase Skarstad formaður mennta- og menningarráðs
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson varaformaður mennta- og menningarráðs
  • Helga Björg Þrastardóttir aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs
  • Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri mennta- og menningarsviðs
Fundargerð ritaði: Maren Ósk Elíasdóttir Verkefnastjóri

1. 2601-0828 - Foreldrafélög grunnskólanna - reglubundið samráð við mennta- og menningarsvið

Reglubundið samtal fulltrúa foreldrafélaga grunnskólanna og mennta- og menningarráðs. Anna María Þórðardóttir, Ella Þóra Jónsdóttir og Einar Örn Guðnason sitja fundinn fyrir hönd foreldrafélaga grunnskólanna.

Mennta- og menningarráð þakkar fyrir málefnalegar og gagnlegar umræður þar sem m.a. kom fram að staða skólalóða grunnskólanna sé mjög aðkallandi og mjög mikilvægt sé að ljúka endurbótum á skólalóðum grunnskólanna í kjölfar þeirra framkvæmda sem hafa staðið yfir. Rætt um hvernig nýting var á þeim frístundatilboðum sem árgangi 2012 bauðst í sumar, foreldrafélög óska eftir áframhaldandi samráði vegna slíkra tilboða fyrir unglinga á sumrin.

Áheyrnarfulltrúar foreldra grunnskólanna víkja af fundi.

2. 2608-5619 - Íþróttamannvirki haustið 2026

Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja fer yfir stöðu í mannvirkjunum fyrir haustið 2026.

Mennta- og menningarráð þakkar fyrir góða yfirferð.

Daníel S. Glad víkur af fundi.

3. 2601-0034 - Leikskólamál - Valkostagreining 2025-2026

Sviðsstjóri fer yfir minnisblöð í tengslum við valkostagreiningu leikskóla.

Lagt fram til kynningar.

4. 2605-3504 - Fjárhagsáætlun leikskóla 2026-2027

Sviðsstjóri leggur fram minnisblað vegna fjárhagsáætlunar leikskóla skólaárið 2026-2027.

Lagt fram til kynningar. Málinu vísað áfram til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu