Mennta- og menningarráð
|
1. 2606-4852 - Fundir mennta- og menningarráðs Lagt er til að næsti fundur mennta- og menningarráðs verði haldinn 4. ágúst næst komandi, vegna sumarleyfa í júlímánuði. Fastir fundir ráðsins verða 1. og 3. þriðjudag í mánuði. Mennta- og menningarráð staðfestir að næsti fundur ráðsins verði 4. ágúst n.k. kl. 8:15. |
|
2. 2606-4854 - Erindisbréf mennta- og menningarráðs Við upphaf nýs kjörtímabils tekur mennta- og menningarráð til starfa í samræmi við skipurit sveitarfélagsins. Ráðið tekur við hlutverkum skóla- og frístundaráðs og menningar- og safnanefndar. Vegna þessa þarf að uppfæra erindisbréf ráðsins til samræmis við breytt fyrirkomulag. Mennta- og menningarráð fór yfir erindisbréf skóla- og frístundaráðs. Sviðsstjóri mun vinna tillögu að uppfærðu erindisbréfi ráðsins í samstarfi við sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs. |
|
3. 2606-4477 - Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar 2026-2030 Formaður mennta- og menningarráðs fylgir eftir málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar 2026-2030 með áherslu á málefni mennta- og menningarsviðs. Lagt fram til kynningar. |
|
4. 2606-4856 - Verkefnaskrá mennta- og menningarsviðs Sviðsstjóri fer yfir verkefnaskrá Akraneskaupstaðar frá fyrra kjörtímabili með áherslu á verkefni á mennta- og menningarsviði. Lagt fram til kynningar. |
|
5. 2606-4575 - Íþróttavika Evrópu - Styrkveitingar ÍSÍ vegna þátttöku sveitarfélaga Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands vekur athygli sveitarfélaga á að hægt er að sækja um fjárstyrk til ÍSÍ fyrir framkvæmd viðburða í íþróttavikunni. Lagt fram til kynningar. Sótt verður um fyrir hönd Akraneskaupstaðar og í samstarfi við Íþróttabandalag Akraness líkt og fyrri ár. |





