Fara í efni  

Menningarmála- og safnanefnd (2000-2008)

60. fundur 15. ágúst 2007 kl. 17:00 - 18:20

60. fundur í menningarmála- og safnanefnd var haldinn miðvikudaginn 15. ágúst 2007 í fundarsal bæjarskrifstofu að Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 17:00.


 

Mættir:             Magnús Þór Hafsteinsson, formaður

Þorgeir Jósefsson

                        Valgarður Jónsson.

Varamaður:     Rún Halldórsdóttir

                        Ólafur Haraldsson

 

Auk þeirra, Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari sem einnig ritaði fundargerð. 


 

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna til fundar.

 

Fyrir tekið:

 

1. Bréf bæjarritara dags. 9/8 2007, þar sem óskað er eftir hugmyndum menningarmála- og safnanefndar um aukið samstarf við Hvalfjarðarsveit í menningarmálum.

Farið var yfir ýmsar hugmyndir sem taldar koma til greina.  Formanni og bæjarritara falið að ganga frá minnisblaði til viðræðunefndar sveitarfélaganna um þau atriði sem rætt var um á fundinum sem möguleg samstarfsverkefni.

 

2. Írskir dagar.  Minnisblað bæjarstjóra dags. 19/7 2007 um framvindu hátíðarinnar.  Viðræður við Tómas Guðmundsson og Ólöfu Guðnadóttur, markaðsfulltrúa.

Rætt var um hvernig til hafi tekist með fyrirkomulag Írskra daga árið 2007.

 

3. Húsnæðismál stofnana sem heyra undir menningarmála- og safnanefnd.

Bæjarritari gerði grein fyrir stöðu mála.

 

4. Vökudagar 2007 ? áherslur og undirbúningur.

Málið rætt.  Ákveðið að auglýsa eftir aðilum sem vilja standa fyrir viðburðum á Vökudögum þetta árið.  Einnig rætt um undirbúning og fleira því tengdu.

 

5. Önnur mál.

Valgarður spurðist fyrir um listaverk sem fjarlægt var við Langasand.  Bæjarritari upplýsti um málið.

 

 Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:20.

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00