Menningar- og safnanefnd
Dagskrá
1.Sjómannadagurinn 2025
2505091
Verkefnastjóri menningarmála fer yfir Sjómannadaginn á Akranesi 2025
2.17 júní þjóðhátíðardagur 2025
2503134
Verkefnastjóri menningarmála fer yfir dagskrá 17. júní.
Menningar- og safnanefnd þakkar viðburðastjórum fyrir drög að dagskrá og hvetur bæjarbúa til að taka þátt í hátíðarhöldum á Þjóðhátíðardaginn.
Dagskrá verður birt á næstu dögum á www.akranes.is og samfélagsmiðlum kaupstaðarins.
Dagskrá verður birt á næstu dögum á www.akranes.is og samfélagsmiðlum kaupstaðarins.
3.Írskir dagar 2025
2504057
Verkefnastjóri menningarmála fer yfir undirbúning fyrir Írska daga.
Menningar- og safnanefnd þakkar verkefnastjóra fyrir yfirferðina og fagnar áframhaldandi umbótum og góðri samvinnu viðbragðs- og hagsmunaraðila til að gera Írska daga að þeirri fjölskylduhátíð sem henni er ætlað að vera.
4.Bæjarlistamaður Akraness 2025
2505077
Menningar- og safnanefnd fer yfir innsendar tillögur um Bæjarlistamann Akraneskaupstaðar 2025.
Farið yfir tilnefningar til bæjarslistamanns 2025
Menningar- og safnarnefnd fór yfir mjög frambærilegar tilnefningar og var einróma um val á bæjarlistamanni Akraness 2025. Alls bárust 47 tilnefningar og þakkar nefndin bæjarbúum fyrir góðar undirtektir.
Menningar- og safnanefnd vísar tilnefningu sinni um bæjarlistamann Akraness 2025 til samþykkis hjá bæjarstjórn.
Tilkynnt verður um val bæjarlistamanns á hátíðarhöldum á Akratorgi þann 17. júní næstkomandi.
Samþykkt 5:0

5.Verkefnastaða Byggðasafnsins í Görðum Q2 2025
2505115
Verkefnastjóri menningarmála fer yfir punkta frá Byggðasafninu í Görðum.
Menningar- og safnanefnd þakkar sýningarstjóra og forstöðumanni Byggðasafnsins í Görðum fyrir upplýsingar um stöðu sýningar í bátahúsinu sem opnar á Vökudögum 2025.
Fundi slitið - kl. 18:10.
Þakkir fá styrktaraðilar hátíðarinnar Faxaflóahafnir sf, Vignir G.J, Akraborg, Fiskmóttakan á Akranesi, Frystihúsið, Norðanfiskur, Björgunarfélag Akraness og Galito fyrir þeirra framlag.