Fara í efni  

Menningar- og safnanefnd

117. fundur 22. febrúar 2023 kl. 17:00 - 19:00 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Guðríður Sigurjónsdóttir formaður
  • Ella María Gunnarsdóttir varaformaður
  • Einar Örn Guðnason aðalmaður
  • Martha Lind Róbertsdóttir aðalmaður
  • Jóhannes Geir Guðnason aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigrún Ágústa Helgudóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigrún Ágústa Helgudóttir Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Safnaklasi Vesturlands - stofnun

2301158

Framlagt erindi frá Sigursteini Sigurðssyni, menningarfulltrúa Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi.

Safnaklasi Vesturlands er formlegur samstarfsvettvangur fyrir söfn á Vesturlandi sem starfar að sameiginlegum hagsmunum safna í landshlutanum.

Menningar- og safnanefnd leggur til að Akraneskaupstaður taki þátt í stofnun safnaklasa Vesturlands sem eigandi Byggðasafnsins í Görðum.

Nefndin telur jafnframt mikilvægt að þessi vinna verði kynnt fyrir nefndinni, þegar formleg stofnun hefur átt sér stað.

Samþykkt 5:0

2.Styrkir til menningartengdra verkefna árið 2023

2212093

Á 116. fundi menningar- og safnanefndar þann 8. febrúar 2023 hófst úrvinnsla umsókna til menningatengdra verkefna fyrir árið 2023.



Alls bárust 32 umsóknir og heildarumsóknarfjárhæðin er kr. 19.786.000 en til úthlutunar eru kr. 3.520.000.
Nefndin þakkar fyrir áhugann og fjölda fjölbreyttra umsókna til menningartengdra verkefna.

Helmingur þeirra umsókna sem bárust hljóta styrk að þessu sinni úr menningarsjóði og þurfti nefndin að hafna mörgum frambærilegum og áhugaverðum umsóknum.

Við úrvinnslu umsóknanna var horft til áherslna menningarstefnu Akraneskaupstaðar 2018-2023.
Jafnframt var lögð áhersla á að styðja við ný og fjölbreytt verkefni, með það að markmiði að skapa blómlegt menningarlíf á Akranesi.

Menningar og safnanefnd úthlutar samtals 3.520.000 kr. til eftirfarandi 16 verkefna:

Undir yfirborðinu, málverkasýning Aldísar Petru - 100.000 kr
Straumar, skúlptúrar úr leir, Guðný Sara Birgisdóttir - 100.000 kr
Tónlistarverkefni, Smiðjuloftið - 100.000 kr
Artic Light, málverkasýning Jaclyn Ashley Pouchel - 100.000 kr
Flýttu þér hægt, myndlistarviðburður Angelu Árnadóttur - 150.000 kr
Söngstundir í leikskólum með Hafdísi Huld - 175.000 kr
Hinseginhátíð Vesturlands Akranesi - 195.000 kr
Blái þráðurinn, hönnunarsýning Ásu Katrínar Bjarnadóttur - 200.000 kr
Kvikmyndaverk, Tengsl sonar og móður, Muninn kvikmyndagerð - 200.000 kr
Tónleikar á Írskum dögum, Rokkland ehf - 300.000 kr
Söngleikurinn Hlið við hlið, nemendafélag FVA - 300.000 kr
Skaginn syngur inn jólin, Eigið fé - 300.000 kr
Vefsíða um knattspyrnusögu Akraness, Á sigurslóð, Jón Gunnlaugsson - 300.000 kr
Tónleikar á sjómannadaginn, Amma og úlfarnir - 300.000 kr
Söngleikurinn Nornaveiðar, Grundaskóli - 300.000 kr
Samsýning listamanna, Listfélag Akraness - 400.000 kr

Verkefnastjóra er falið að koma tillögum nefndarinnar um styrkveitingar til afgreiðslu bæjarráðs sem fer með endanlega ákvörðun úthlutunarinnar.

Samþykkt 5:0

Fundi slitið - kl. 19:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00