Fara í efni  

Framkvæmdastjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita (2001-2006)

8. fundur 11. febrúar 2002 kl. 20:00 - 22:00

Ár 2002, mánudaginn 11. febrúar kl. 20:00  kom framkvæmdastjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita saman til fundar í Safnaskálanum að Görðum.

Til fundarins komu: Valdimar Þorvaldsson, Jósef H. Þorgeirsson og Anton Ottesen.
 Auk þeirra sátu fundinn:  Jón Allansson forstöðumaður og Björn G. Björnsson hönnuður.

Þetta gerðist á fundinum:

1. Lögð fram tilboð í sýningarbúnað íþróttasýningar, sem opnuð voru 7. febrúar s.l. 

Samþykkt að taka tilboði frá Sviðsmyndum vegna íþróttasýningar með tveimur atkvæðum, einn var á móti.

2. Kynningaráætlun v/safnasvæðisins á Akranesi.

Drög að áætlun, sem gerð er af Magnúsi Magnússyni markaðsfulltrúa, var lögð fram og rædd ítarlega.

Sérstakur fundur verður um málið í Safnaskálanum n.k. fimmtudag kl. 12:00.

3. Lagður fram samningur, dags. 15. janúar 2002, milli Akraneskaupstaðar og Steinaríkis Íslands um rekstur upplýsingamiðstöðvar.  Samningur þessi lagður fram til kynningar.

 Fleira ekki gert, fundi slitið.

 Jósef H. Þorgeirsson (sign)
 Valdimar Þorvaldsson (sign)
 Anton Ottesen (sign)
 Jón Allansson (sign)

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00