Fara í efni  

Fjölskylduráð (2009-2014)

125. fundur 01. október 2013 kl. 16:30 - 18:45 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Dagný Jónsdóttir formaður
  • Þröstur Þór Ólafsson varaformaður
  • Sveinn Kristinsson aðalmaður
  • Einar Brandsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helga Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu
  • Svala Kristín Hreinsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir verkefnisstjóri
Dagskrá

1.Skagaforeldrar - 2013

1302191

Skagaforeldrar hafa sent fyrirspurn til fjölskylduráðs þar sem spurt er um hlutdeild foreldra í rekstri leikskólanna, hvort fyrirhugað sé að hækka leikskólagjöld árið 2014. Einnig er spurt hvort hægt sé að koma til móts við foreldra sem eiga börn fædd fyrri hluta árs og bera mikinn kostnað vegna greiðslna til dagforeldra.

Á fundinn mættu kl. 16:30 Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri Akrasels, Ingunn Sveinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Garðasels, Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri Teigasels, Brynhildur Björg Jónsdóttir leikskólastjóri Vallarsels, Íris Sigurðardóttir áheyrnafulltrúi starfsmanna leikskóla og Rósa Kristín Guðnadóttir áheyrnafulltrúi foreldra.

Fyrirhuguð hækkun á leikskólagjöldum 2014: Vinna við fjárhagsáætlun stendur yfir og er gert er ráð fyrir að allar gjaldskrár Akraneskaupstaðar hækki um 3%.

Hlutdeild foreldra í rekstri leikskóla: Í ársreikningi 2012 nemur greiðsla foreldra 20,9% af heildarútgjöldum við beinan rekstrarkostnað leikskóla. Rekstrarkostnaðurinn nam kr. 610.513.000 og greiðslur foreldra námu kr. 127.757.000 þannig að útgjöld Akraneskaupstaðar námu kr. 482.755.000 vegna ársins. Í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs er gert ráð fyrir að heildarrekstrarkostnaður nemi kr. 743.726.000, greiðslur foreldra nemi kr. 136.797.000 og að útgjöld Akraneskaupstaðar verði kr. 506.929.000 eða 21.3%.

Tekjutenging leikskólagjalda: Starfshópurinn var skipaður og í honum sitja Karl Alfreðsson, Björn Guðmundsson, Rún Halldórsdóttir og Guðmundur Páll Jónsson. Starfshópurinn hefur ekki skilað niðurstöðum og er reiknað með að þær verði ekki tilbúnar fyrr en í lok árs.

Koma til móts við foreldra barna sem eru fædd fyrri hluta árs og bera mikinn kostnað vegna greiðslna til dagforeldra: Fjölskylduráð mun taka þetta erindi nánar til athugunar.

2.Garðasel - breyting á skipulagsdögum 2013-14

1309170

Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri Garðasels hefur óskað eftir afstöðu fjölskylduráðs til breytinga á skóladagatali. Starfsfólk leikskólans hyggur á námsferð til Minneappolis vikuna 27. - 30. maí. Nýttir yrðu þrír skipulagsdagar til ferðarinnar. Foreldraráð Garðasels hefur samþykkt þessa beiðni fyrir sitt leyti.

Fjölsylduráð samþykkir breytingu á skipulagsdögum fyrir sitt leyti.

3.Starfsáætlanir leikskóla 2013-2014

1309150

Leikskólastjórar fóru yfir helstu áhersluþætti í skólastarfi leikskóla skólaárið 2013-2014. Hægt er að nálgast starfsáætlanir leikskóla á heimasíðum leikskólanna. Fjölskylduráðið þakkar leikskólastjórunum fyrir ítarlegar og góðar upplýsingar.

Rósa Kristín vék af fundi kl. 17:50.

4.Skólastarf í tölum 2013-2014

1309054

Farið var yfir tölulegar upplýsingar um leikskólastarfið 2013-2014. Hægt verður að nálgast upplýsingarnar á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

5.Barnasáttmáli SÞ og fræðsluþing um ofbeldi gegn börnum.

1309186

Innanríkisráðuneytið gengst fyrir málþingi um ákvæði í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um land allt. Málþing verður í Fjölbrautaskóla Vesturlands mánudaginn 14. október kl. 12:15.

Lagt fram til kynningar.

Anney, Ingunn, Margrét Þóra, Brynhildur Björg og Íris viku af fundi kl. 18:25.

6.Uppsögn á starfi - útkeyrsla á mat og gögnum

1309156

Eiríkur Sigmar Jóelsson sem hefur séð um útkeyrslu matarbakka til aldraðra um árabil hefur sagt starfi sínu lausu. Hann óskar eftir að láta af störfum 20. desember n.k.

Fjölskylduráð þakkar Eiríki Sigmari fyrir vel unnin störf.

Fjölskylduráð mun kanna möguleika á útfærslu á þessu verkefni.

7.Fjárhagsáætlun 2013 - Fjölskyldustofa

1208119

Framkvæmdastjóri leggur til viðauka við fjárhagsáætlun þar sem færð verði kr. 1.000.000 frá lið 04-02 til 02-28.

Fjölskylduráð samþykkir þessa tilfærslu á milli liða.

Fundi slitið - kl. 18:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00