Fara í efni  

Félagsmálaráð (2002-2008)

741. fundur 01. október 2007 kl. 16:00 - 17:00

741. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,

Stillholti 16-18, mánud. 1.okt. 2007 og hófst hann kl. 16:00.


 Mættir voru:                   Magnús Þór Hafsteinsson, formaður

                                      Margrét Þóra Jónsdóttir
                                      Tryggvi Bjarnason

                                      Hallveig Skúladóttir
                           

Auk þeirra Ingibjörg Gunnarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi og Sveinborg Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.


  

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1. Fjárhagsaðstoð.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

2. Barnavernd.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

3. Fjárhagsstaða fjölskyldusviðs.
Staðan kynnt.

4. Biðlistar eftir félagslegu leiguhúsnæði.
Kynnt staðan á Akranesi miðað við landið allt.  28 fjölskyldur eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði á Akranesi.

5. Framkvæmdaráætlun í barnaverndarmálum.
Í 19. gr. Barnaverndarlaga er mælt fyrir um skyldu sveitarfélaga til að marka stefnu og framkvæmdaáætlun í barnavernarmálum fyrir hvert kjörtímabil. Félagsmálaráð hefur skipað vinnuhóp til að vinna að gerð framkvæmdaáætlunar í barnaverndarmálum.  Í vinnuhópnum verða Tryggvi Bjarnason, Margrét Þóra Jónsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir.



Fundi slitið kl. 17:00

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00