Fara í efni  

Félagsmálaráð (2002-2008)

657. fundur 06. janúar 2004 kl. 16:00 - 17:10

657. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 6. janúar  2004 og hófst hann kl.16:00.


Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
 Tryggvi Bjarnason
 Guðný Sigurðardóttir
 Sigurveig Stefánsdóttir
                                   
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Sveinborg Kristjánsdóttir yfirfélagsráðgjafi sem ritaði fundargerð.



Fundur settur af formanni.

 

Fyrir tekið:


1. Námsstyrkir
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók

 

2. Framfærsla
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók

 

3. Viðbótarlán
Þann 1. janúar hækkar hámarksverð íbúða sem gilda fyrir veitingu viðbótarlána miðað við fjölskyldustærð:

 

Stærð fjölskyldu Hámarksverð
Einstaklingur kr.   8.200.000
Tveir kr.   9.300.000
Þrír kr. 10.600.000
Fjórir kr. 11.600.000
Fimm eða fleiri kr. 13.300.000


Samþykkt voru sex viðbótarlán að upphæð kr. 14.505.000,-

 

4. Húsaleigubætur
Fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2003 voru greiddar kr. 5.043.709,-í húsaleigubætur. Samtals voru greiddar kr. 18.303.538,- í húsaleigubætur á árinu 2003.

 

5. Barnaverndarmál í hreppunum sunnan Skarðsheiðar
Barnaverndarmálin í hreppunum sunnan Skarðsheiðar eru frá 1. janúar 2004 komin úr umsjá barnaverndarvefndar Akraneskaupstaðar.

 

Fundi slitið kl. 17:10

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00